Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 120
88 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
„Við höfum ekkert breyst. Það hafa
bara allir í kringum okkur breyst,“
segir snigillinn Skúli Gautason, en
Sniglabandið fagnar 25 ára afmæli
sínu í ár. Af því tilefni gefur hljóm-
sveitin út þriggja diska afmælis-
pakka sem ber einfaldlega nafnið
„25“. Afmælispakkinn inniheld-
ur tvo hljómdiska og einn mynd-
disk. Fyrri hljómdiskurinn skart-
ar mörgum af vinsælustu lögum
Sniglabandsins en á þeim seinni
er að finna lög sem aldrei áður
hafa verið gefin út á geisladiski. Á
mynddisknum er svo hægt að horfa
á tvenna tónleika Sniglabandsins í
Borgarleikhúsinu.
Skúli segir að Sniglabandið hafi
spilað á margvíslegum uppákom-
um í gegnum árin, en að þeir tón-
leikar sem bandið hefur haldið í
leikhúsinu séu í uppáhaldi. „Þessi
hljómsveit á það til að fara út í
leikræna tilburði svo þegar við
spilum í Borgarleikhúsinu þá líður
okkur eins og litlum börnum sem
komast í dótakassa,“ segir Skúli.
Skúli er fljótur að svara þegar
hann er spurður út í vinsælasta lag
Sniglabandsins. „Ég myndi halda
að það væri „Jólahjól“. Við erum
beðnir um að spila það allan árs-
ins hring.“ Hann segir þá félaga
samt ekki vera orðna leiða á lag-
inu. „Það er eitthvað við þetta lag.
Það virðist vera orðið að sameign
þjóðarinnar og það gilda einhver
önnur lögmál um svoleiðis lög.“
- ka
Fáum ekki leið á Jólahjólinu
ALDARFJÓRÐUNGSAFMÆLI Strákarnir í Sniglabandinu hafa spilað saman í 25 ár. Þeir
gefa út þriggja diska afmælispakka af því tilefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Erpur Eyvindarson fer öfg-
anna á milli í textunum á
fyrstu sólóplötu sinni. Segja
má að platan skiptist í þrjá
hluta: Djamm, pólitík ásamt
hluta þar sem við heyrum
mýkri hlið á rapparanum
sem er aldrei kjaftstopp.
„Þegar maður er að fá sér, þarf
að tala um það. Þegar maður er í
frænkunum, þarf að tala um það.
Þegar maður er að mótmæla þarf
að tala um það og þegar maður
þarf að skrifa eitthvað til að koma
hlutunum frá sér á persónulegum
nótum, þá gerir maður það,“ segir
rapparinn Erpur Eyvindarson.
Erpur sendi nýlega frá sér plöt-
una Velkomin til Kópacabana. Plat-
an er stór í sníðum, inniheldur 21
lag sem tekur meira en klukkutíma
að spila. Erpur byrjaði að vinna að
plötunni fyrir tæpum fjórum árum
og fer öfganna á milli í textagerð-
inni. Hann hefur oft verið gagn-
rýndur fyrir grófa texta og í lag-
inu 112 stendur hann undir nafni:
Blaz Roca er halinn sem
börnin þín fíla, því að,
ég kenni þeim að ríða,
fýra og dett‘íða
Fjórfingra þig físa, fyrir
kynslóðina mína
Ég er Blaz Roca bíaaa,
étum krakkana þína
„Þetta er rosalega mikið fokk jú-
lag,“ útskýrir Erpur. „Eins og hann
Dabbi T segir í þessu lagi: „Dabbi
T og hinn alræmdi Erpur – ástæð-
an fyrir því að barnið þitt drekk-
ur.“ Þetta er náttúrulega bull.
Krakkar voru að drekka löngu
áður en ég byrjaði að rappa. Það er
svo mikil einföldun að kenna alltaf
tónlistinni um. Þetta snýst svolítið
mikið um það.“
Þannig að þetta er hæðni?
„Já. Bara pönk – að hræða lið
sem er svo hysterískt að það meik-
ar ekki sens. Sumir fatta ekki að
foreldrar ala upp krakka, ég get
ekki alið upp krakka annarra.“
Erpur fer út í persónulega og
mjúka sálma í lögunum Fram-
haldið, Má ég koma heim? og Má
ég koma aftur heim? Sem dæmi
um það er hér textabrot úr Má ég
koma heim?:
Hún er á maraþon túr
og rústa heilli íbúð
en ég sver upp á þennan púng
að ég hef alltaf verið trúr
Ég bara hata að vera þekktur
Af því ég er Erpur
Þá hlýt ég að vera að
negla aðrar stelpur
Mér finnst ég sjá nýjan Erp
þarna. Þetta kom mér svolítið
mikið á óvart.
„Það finnst mér líka. Uppáhalds-
lagið á plötunni minni er Má ég
koma heim? og það hafa margir
sagt það sama. Þetta er allt nýtt
og mun meira fullorðins. Maður
verður alltaf að gera eitthvað nýtt,
þó ég þurfi líka að skila ákveðnum
hlutum til þeirra sem hafa fylgst
mest með mér og hafa mest gaman
af mér. Það eru hlutir eins og sam-
félagsleg ádeila í lögum eins og
Stórasta landið, Hleraðu þetta,
Landráð og Reykjavík Belfast.“
Erpur útskýrir að það sé miklu
persónulegra að gera sólóplötu
heldur en þær sem hann hefur
gert t.d með hljómsveitinni XXX
Rottweiler.
„Þegar ég fer með Rottweiler
í stúdíó get ég ekki sagt: „Strák-
ar, munið þið eftir henni Gunnu?
Eigum við ekki að rappa aðeins um
hana?“ Þess vegna hef ég ekki gert
þetta áður. Í bandi er miklu meiri
málamiðlun um þemað. Þetta er
lang persónulegasta platan mín
og þetta er bara real shit.
Beint frá hjartanu?
Já. Þetta er það hreinskilnasta
sem ég hef gert opinberlega.“
Þannig að þú hefur lent í því sem
þú rappar um í þessum texta?
„Já, þetta er mjög klassískt, sko.
Ógeðslega klassískt hallæri. En
það eru kostir og gallar og þetta
er einn af göllunum. Það finnst
engum að gæjar eins og ég og fleiri
getum verið slakir heima á laugar-
dagskvöldi að spila í PlayStation.
Maður þarf alltaf að vera einhvers
staðar að láta sjúga sig.“
Þú ert ekki að gera mikið til að
kveða það niður!
„Ég er ekkert að stressa mig á
því hvað fólk heldur. En ef þetta
er að trufla samskipti manns við
einhvern sem skiptir máli þá er
það fáránlegt. Ég er samt ekki að
segja að það sé neitt að því að láta
sjúga sig öll laugardagskvöld – ég
er bara alltaf ekki að því.“
atlifannar@frettabladid.is
MÁ ÉG KOMA HEIM?
RISAPLATA Á nýrri plötu Erps er 21 lag og sjálfur segist hann aldrei hafa verið eins hreinskilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Samkvæmt tímaritinu The
Insider neyddist Anderson
Cooper, fréttahaukurinn hjá
CNN, næstum til að hætta í
miðju viðtali við söngkonuna
Lady Gaga sökum þess að
hann var að verða of full-
ur. Lady Gaga bauð Coop-
er upp á viskí á meðan
þau ræddu saman á bar
í London en Cooper er
hins vegar ekki mikill
viskímaður. „Hún náði
í drykki handa mér, tvo
að mig minnir, og eftir smá
stund var ég reiðubúinn að
slíta viðtalinu því ég gat
ekki spurt fleiri spurninga,“
viðurkennir Cooper.
CNN-maðurinn segist hins
vegar vera ákaflega þakk-
látur fyrir að hafa fengið að
eyða tveimur helgum með
poppstjörnunni. „Það var
virkilega skemmtilegt,“
játar Cooper, sem hingað
til hefur verið þekktastur
fyrir að leiða áhorfendur
bandarísku fréttastöðv-
arinnar í allan sannleik-
ann um hörmungar á ham-
farasvæðum.
FULLUR Lady Gaga hellti
fréttahaukinn Anderson Cooper
næstum fullan á bar í Englandi
þegar hann tók viðtal við hana.
Fullur með Gaga
77.900.000 NIÐURSTÖÐUR BIRTAST ef táningsstjörnunni Justin Bieber
er flett upp á Google.
Frábær tilboð alla helgina
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
O
L
5
21
41
1
0/
10
folk@frettabladid.is