Fréttablaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 22. janúar 2011
viska í
fjármálum
www.arionbanki.is/uglan
Námskeið byggð á sjónvarpsþáttunum vinsælu
Námskeið um fjármál - á mannamáli
Breki Karlsson vakti mikla athygli með sjónvarpsþáttunum
Ferð til fjár. Nú gefst þér kostur á að sækja námskeið hjá
Breka þar sem hann fer betur í saumana á fjármálum
einstaklinga og fjallar um peninga, sparnað og eyðslu
- sem sagt skemmtileg fræðsla á mannamáli.
26. jan. Borgartúni 19, Reykjavík
02. feb. Háskólanum á Akureyri
10. feb. Hafnarborg, Hafnarfirði
16. feb. Borgartúni 19, Reykjavík
23. feb. Bifröst, Borgarfirði
Þættirnir Ferð til fjár eru nú
aðgengilegir á arionbanki.is
Breki Karlsson,
forstöðumaður
Stofnunar
um fjármálalæsi
Ferð til fjár
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is/uglan
Boðið er upp á
táknmálstúlkun
Boðið er upp á
táknmálstúlkun
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Akur-
eyrar hefur hækkað grunn-
upphæð framfærslustyrkja úr
125.540 krónum í 131.617 á mán-
uði. Hækkunin er 4,8 prósent. Á
fundi bæjarráðs var líka tekið
fyrir bréf Guðbjarts Hannessonar
með tilmælum til sveitarstjórna
um að þær tryggi að einstakling-
ar hafi að lágmarki sambærilega
fjárhæð og atvinnuleysisbætur til
framfærslu á mánuði. Atvinnu-
leysisbætur eru nú 149.523 krónur
á mánuði. Ráðið samþykkti að
bíða með frekari breytingar. - gar
Framfærslugrunnur hækkar:
Fá 132 þúsund
að lágmarki
MENNTUN Nemendum í framhalds-
skólum landsins fækkaði um
tæp átta prósent milli haustsins
2009 og 2010. Á sama tíma fjölg-
aði háskólanemum um 4,3 pró-
sent. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofunnar.
Nemendur á þessum tveimur
skólastigum voru 47.240 í heildina.
Þeim fækkaði milli ára og er það í
fyrsta skipti frá því að Hagstofan
hóf skráningu sem það gerist.
Fækkunin skýrist aðallega af
samdrætti í fjarnámi og öldunga-
deildum framhaldsskólanna.
Konur eru í meirihluta skráðra
nemenda, eða 55,7 prósent. Karl-
ar eru 44,3 prósent en þeim hefur
fjölgað hlutfallslega milli ára. - þeb
Skráðir nemendur í skólum:
Nemendum
fækkar milli ára
HEILBRIGÐISMÁL Guðbjartur
Hannes son velferðarráðherra
mælti fyrir frumvarpi í gær þar
sem lagt er til að fatlaðir fái að
halda leiðsögu- eða blindrahund
í fjölbýlishúsi. Í dag þurfa fatlað-
ir að fá leyfi allra íbúa í fjölbýlis-
húsinu til þess að hafa hjálpar-
hund í íbúð sinni.
Kveðið er á um í frumvarpinu
að komi til deilumála vegna
ofnæmis annarra íbúa, sé slíkum
málum vísað til kærunefndar
húsamála. Áfram gildir sú
almenna regla að hunda- og
kattahald í fjöleignarhúsi sé háð
samþykki allra eigenda. - sv
Ráðherra vill leyfa dýrahald:
Fötluðum leyft
hundahald í
fjölbýlishúsum
BLINDRAHUNDUR Velferðarráðherra vill
heimila fötluðum að halda hjálpar-
hunda í fjölbýlishúsum.