Fréttablaðið - 22.01.2011, Síða 20
20 22. janúar 2011 LAUGARDAGUR
H
eyrðu, ég var að fá lagið úr
myndinni, viltu fá að heyra
það?“ spyr Þorsteinn Guð-
mundsson að loknum venju-
bundnum kynningum þegar
blaðamaður sest niður með
honum á Prikinu í morgunrökkrinu. Um er að
ræða titillagið úr kvikmyndinni Okkar eigin
Osló sem frumsýnd verður í næsta mánuði,
en Þorsteinn er bæði handritshöfundur og
annar aðalleikara myndarinnar.
Það sem hljómar úr iPod Nano Þorsteins,
og væntanlega um öldur ljósvakans á næst-
unni, er ljómandi fínt popplag með áberandi
Motown- og sálartónlistarkeim, blásturshljóð-
færum og öllu tilheyrandi.
Helgi Svavar Helgason, trommari Hjálma
og vinur og samstarfsmaður Þorsteins, semur
lagið ásamt Baggalútnum Braga Valdimar
Skúlasyni sem einnig samdi textann, en lagið
er sungið af Valdimari Guðmundssyni. Spurð-
ur hvort ekki hefði verið eðlilegt að handrits-
höfundurinn sjálfur semdi texta titillagsins
segir Þorsteinn svo alls ekki vera.
„Ef Bragi Valdimar er til í að semja text-
ann þá segir maður bara já takk. Ég hef aldrei
samið dægurlagatexta, utan þess þegar ég
samdi útskriftarsýninguna Sólsting fyrir
Versló fyrir nokkrum árum. Sýningin fjallaði
um krakka sem fara til Spánar í útskriftar ferð
og eru í miklu stuði, og Verslingarnir báðu
mig um að þýða lög með Robbie Williams og
fleirum yfir á íslensku. Mér þótti það gaman
en hef ekki lagt þetta fyrir mig.“
Gamaldags að vissu leyti
Þorsteinn hefur verið afar afkastamikill síð-
ustu ár, eða allt frá því að hann vakti fyrst
verulega athygli sem hluti Fóstbræðra, sem
slógu í gegn með samnefndum sjónvarpsþátt-
um undir lok tíunda áratugar liðinnar aldar.
Fleiri sjónvarpsþættir, svo sem Atvinnu-
maðurinn, spjallþátturinn Svalbarði, áramóta-
skaupið og fleiri fylgdu í kjölfarið auk leiks
í nokkrum kvikmyndum, en Þorsteinn hefur
einnig lengi verið einn ötulasti uppistandari
landsins, flutt grínfyrirlestra víða um land,
haldið úti vinsælli heimasíðu, skrifað skáld-
sögur og ljóðabók og svo mætti lengi telja.
„Nú síðast gaf ég út litla ljóðabók í samstarfi
við Nýhil sem ég prentaði sjálfur og dreifði,
en sala hennar fer þó mestmegnis fram með
vöruskiptum,“ segir Þorsteinn. „Ef fólk hring-
ir í mig og óskar eftir að fá bók þá býð ég þeim
að borga með eggjabakka. Svo kemur fyrir að
viðskiptavinirnir eiga ekki eggjabakka og þá
koma þeir með eitthvað annað í staðinn. Um
daginn fékk ég rosalega góða sultu og hand-
gerða stílabók, voða flotta.“
Okkar eigin Osló er hans fyrsta kvik-
myndahandrit, en áður hefur Þorsteinn
skrifað töluvert af útvarpsleikritum og hefur,
að eigin sögn, átt í góðu samstarfi við Útvarps-
leikhús RÚV.
„Ég hef fundið mig mjög vel í útvarpsleik-
ritunum. Svo hef ég aðeins verið að reyna
fyrir mér í handritaskrifum fyrir leiksvið, til
dæmis fyrir unglinga og einnig fyrir Halaleik-
hópinn sem meðal annars er skipaður fötluð-
um, en ekki alveg fundið mig í því. Mér þykir
það dálítið erfitt. Sjónvarp og kvikmyndir eru
mínir miðlar,“ útskýrir Þorsteinn.
Aðspurður segir hann ástæðuna mögulega
liggja í persónuleika sínum. „Ég er að vissu
leyti gamaldags og mikið fyrir raunsæi, sem
virkar líklega ekki mjög spennandi á sviði.
Ef ég skrifaði leikrit fyrir sviðið núna myndu
eflaust margir spyrja: „Af hverju er hann að
reyna að vera Anton Tsjekhov? Hann dó fyrir
hundrað árum!“
Ekki borið sig eftir leiksviðinu
Þegar Þorsteinn vakti fyrst athygli með
Fóstbræðrum á sínum tíma var það alls ekki
á allra vitorði að hann væri lærður leikari
úr Leiklistarskólanum, en þar lauk hann
námi árið 1991.
Eftir útskriftina starfaði Þorsteinn tölu-
vert í leikhúsum borgarinnar og sinnti jafn-
framt öðrum störfum þar til Fóstbræður
hófu göngu sína. „En leikhúsin eru í raun
þannig að fólk getur starfað þar áratug-
um saman án þess þó að verða landsþekkt.
Þegar ég svo birtist í Fóstbræðrum held
ég að almenningur hafi sjálfkrafa gert ráð
fyrir því að ég væri fyrst og fremst grínisti,
og mér hefur hreinlega líkað það mjög vel og
ekkert reynt að halda öðru fram,“ segir Þor-
steinn, og bætir við að hann hafi alls ekki
borið sig mikið eftir leiksviðinu síðan.
„Þetta eru líka svo gjörólík störf. Í leik-
húsinu er maður kannski innilokaður í tvo
eða þrjá mánuði að æfa fyrir sýningu, gerir
ekkert annað á meðan og er svo bundinn við
fastar sýningar á kvöldin. Núna er ég í svo
fjölbreytilegu starfi að ég myndi varla tíma
FRAMHALD Á SÍÐU 22
Sáttur við að vera grínisti
VENJULEGT FÓLK „Ég man ekki til þess að gerðar hafi verið margar bíómyndir um verkfræðinga og bankastarfsmenn og það þykir kannski ekkert rosalega spenn-
andi, en þetta er nokkuð sem mér finnst skemmtilegt að segja frá,“ segir Þorsteinn um kvikmyndina Okkar eigin Osló. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leikhúsin
eru í raun
þannig að
fólk getur
starfað þar
áratugum
saman án
þess þó að
verða lands-
þekkt.
Þorsteinn Guðmundsson
er handritshöfundur og aðal-
leikari nýrrar íslenskar kvik-
myndar, Okkar eigin Osló,
sem frumsýnd verður í byrjun
mars. Kjartan Guðmundsson
ræddi við hann um bransann,
uppistandið, Osló og auglýs-
ingarnar.
Chevrolet á enn betra verði !
Vegna nýrra laga um vörugjöld sem tóku gildi um áramótin eru umhverfisvænir
bílar á betra verði. Allir bílar frá Chevrolet hafa lækkað í verði.
Chevrolet Cruze, 4 dyra
Cruze LS 1800 cc. - beinskiptur Kr. 2.990 þús.
Cruze LS 1800 cc. - sjálfskiptur Kr. 3.390 þús.
Cruze LT 2000 cc. Dísel - beinskiptur Kr. 3.590 þús.
Sérfræðingar í bílum
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - sími 420 3300
Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - sími 461 3636
www.benni.is
B
íll
á
m
yn
d:
C
ru
ze
L
T
m
eð
1
8“
á
lf
el
gu
m
.
Gæði í 100 ár
Ár slaufunnar