Fréttablaðið - 22.01.2011, Síða 56
6 matur
Fyrir fjóra
2 bollar glútenlaust
mjöl, til dæmis bók-
hveiti, rísmjöl, quinua-
mjöl eða amar-
ant (einnig gott að
blanda saman teg-
undum)
½ bolli hirsiflögur
1½ tsk. vínsteinslyfti-
duft
smá himalajasalt
3 msk. mulin fræ, svo sem
sesamfræ, graskersfræ, hör-
fræ eða sólblómafræ (gott
að blanda einhverju saman)
2 egg
4-5 msk. ólívuolía
2 bollar vatn, rísmjólk eða
sojamjólk
smá agavesíróp
Blandið saman þurr-
efnum og hrærið út með
hluta af vökvanum. Blandið
eggjunum saman við og hrær-
ið vel. Blandið olíunni saman
og þynnið að lokum með því
sem eftir er af vökvanum. Bakið
í vöfflujárni en einnig má gera
lummur á pönnukökupönnu.
Borið fram með sultu, osti,
hlynsírópi eða hunangi.
Tína Guðbrandsdóttir Jezorski gullsmiður og eiginmaður hennar, Sigurjón Hansson,
tóku upp glútenlaust mataræði
fyrir um það bil ári þegar Sigur-
jón greindist með glútenóþol. Tína
segir margt hafa breyst síðan þá,
þegar glúten lausar matvörur feng-
ust í litlu úrvali í búðum en í dag
fæst glútenlaust hráefni í mun
meira úrvali að hennar sögn.
„Þetta var mikill hausverkur
þegar við tókum glúten út úr mat-
aræði okkar fyrir ári. Það er mikil
breyting sem hefur orðið á þessu
eina ári í úrvali á glútenlausri
fæðu og sem dæmi má nefna var
aðeins ein pastategund án glútens
í boði í verslunum. Í dag eru heilu
rekkarnir í verslunum sem okkur
er óhætt að versla úr.“ Sem dæmi
má nefna er glúten í hveiti, spelti,
kexi, súpum, pasta og flestum til-
búnum mat.
Tína og Sigurjón eiga þrjú börn,
Emil Bjart, átta ára, Katarínu
Eik, 10 ára, og Jöklu Júlíu sem er
á öðru ári. Tína segir að þar sem
fyrirhöfnin sé mikil að elda tvöfalt
sé ekkert keypt inn til heimilisins
sem inniheldur glúten. „Krakkarnir
fá þó alveg kleinuhringi og slíkt úti
í bakaríi við og við en innkaupin
eru miðuð við glútenlaust. Annars
erum við búin að einskorða val
okkar við lífræna fæðu í mörg
ár en engu að síður var Sigurjón
alltaf hálf slappur og veikur og á
ofnæmislyfjum þar til við tókum
glútenið út. Síðan þá hefur hann
ekki kennt sér meins.“
Tína segir síðasta árið hafa farið
í að þróa uppskriftir en henni hafi
reynst vel að nota bara venjulegar
uppskriftabækur og skipta þar út
til að mynda hveiti fyrir bókhveiti,
nota vínsteinslyftiduft í stað venju-
legs lyftidufts og hirsiflögur í stað
haframjöls.
„Morgunverðurinn sem við eldum
svo oftast eru þessar vöfflur eða
lummur. Það má leika sér svolítið
með deigið, til að mynda bæta döðl-
um við til að gera þær svolítið sætari.
Þá er líka hægt að taka prímus og
pönnu með sér í útilegur og hafa heit-
ar lummur í morgunmat.“ - jma
Morgunvöfflur
GLÚTENLAUSAR VÖFFLUR
SALSAÍDÝFA MEÐ KOTA-
SÆLU Salsaídýfa er frábær með
kotasælu. Í stað þess að nota rjóma-
ost í botninn á eldföstu móti er
notuð kotasæla. Hún er sett neðst,
þá salsasósan og að lokum rifinn
ostur. Þetta er hitað í ofni og borð-
að með nachos-flögum.
HOLLARI HRÁEFNI Gott getur verið að
skipta út nokkrum hráefnum fyrir önnur holl-
ari. Til dæmis er hægt að nota sýrðan rjóma
í stað venjulegs rjóma í sósur, baunir og
linsubaunir í stað kjöts og heilhveiti í stað
hvíts hveitis.
SÍTRÓNUSAFI Í
SOJAMJÓLK Þeir sem
hafa mjólkuróþol þurfa að
finna aðrar leiðir í ýmsum uppskriftum. Ef
súrmjólk er í uppskriftum er hægt að setja 1
tsk. af sítrónusafa út í sojamjólkina og láta standa á
borði í 10 mínútur. Við það myndast kekkir í mjólk-
inni sem gefa aukna lyftingu í bakstri.
Hjónin Tína Guðbrandsdóttir Jezorski og Sigurjón Hansson
sneiða hjá glúteni í mataræði sínu eftir að Sigurjón greindist með
óþol. Einn vinsælasti rétturinn á þeirra borði eru vöfflur eða lumm-
ur sem þau hjón gæða sér á í morgunmat nokkrum sinnum í viku.
ÁN GLÚTENS
Glútenlausar morgunverð-
arvöfflur eða -lummur eru
oft á borðum hjá Tínu
Guðbrandsdóttur Jezorski
gullsmið. Hér er hún ásamt
dóttur sinni Jöklu Júlíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
E
margt smátt
ALLA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te