Fréttablaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 73
LAUGARDAGUR 22. janúar 2011
Grínistinn Ricky Gervais ætlar að
leika skrifstofustjórann óþolandi,
David Brent, í fyrsta sinn síðan
2003 í bandarísku útgáfunni af
The Office.
Gervais, sem hefur verið í
sviðsljósinu vegna umdeildra
brandara á Golden Globe-hátíð-
inni, leikur Brent í lokaþætti sjö-
undu þáttaraðarinnar. Þar spjall-
ar hann stuttlega við Steve Carell,
sem leikur Michael Scott, banda-
rísku útgáfuna af Brent. Þetta
verður í síðasta sinn sem Carell
leikur í The Office. Búist er við
því að áhorfið á þennan lokaþátt
verði það mesta til þessa.
Snýr aftur
í The Office
DAVID BRENT Ricky Gervais í hlutverki
Davids Brent í The Office.
Í samtali við tíma-
ritið People segist
leikkonan Cameron
Diaz vera nokkuð
viss um að hún hafi
keypt kannabis af tónlistar-
manninum Snoop Dogg á
menntaskólaárum sínum.
„Við vorum í sama mennta-
skóla. Hann er ári eldri en ég og
ég man greinilega eftir honum.
Hann var mjög hávaxinn og
grannur, var með fullt af fléttum
í hárinu. Og ég er nokkuð viss
um að ég hafi keypt kannabis af
honum,“ sagði leikkonan.
SAMAN Í MENNTA-
SKÓLA Leikkonan
Cameron Diaz og
tónlistarmaðurinn
Snoop Dogg gengu í
sama menntaskóla.
Diaz man glöggt eftir
Snoop Dogg.
NORDICPHOTOS/GETTY
Man vel eftir
Snoop Dogg
Glasafjölskyldan
kr. 1.250,- glasið
Kerti
kr. 1.870,- stk.
Servíettur
kr. 790,- pk.
Brennivínssokkur
kr. 2.490,-
S K Ó L A V Ö R ‹ U S T Í G 1 2 • S Í M I 5 7 8 6 0 9 0
Við erum ekki með brennivín og hákarl, en eigum margt annað til að lífga upp á veisluborð þorrans!
NÝ OG SPRIKLANDI ÞÁTTARÖÐ
LAUGARDAGA KL. 9:40
Nú lenda persónur Latabæjar í nýjum og skemmti-
legum ævintýrum með eldhressum íslenskum
krökkum. Íþróttaálfurinn heldur öllum við efnið og
hvetur krakkana til að hreyfa sig og borða meira af
hollum mat. Misstu ekki af fjörinu í Latabæ!
NÝIR ÞÆTTIR
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000