19. júní


19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 17

19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 17
m er lengi að gleyma, og þeir einu illu reimleik- ar sem fylgja staðnum, voru þær fornu staðar- fylgjur, sem Magnús amtmaður, skólinn, Grímur °g Skúli ættu þegar að vera búnir að kveða niður. ■— Það er hverju orði sannara, mér hefur alltaf fundist það heimskulegt að ala með sér gamlar væringar, sem enginn núlifandi maður á nokkra sök á. — Við göngum út í sólskinið, það er blæjalogn °g kyrrð og ró yfir öllu. Krían er að vísu komin 1 Nesið, en það heyrist lítið til hennar ennþá. Æðarfuglinn er ekki enn setztur upp, og lóa og sPói hafa hægt um sig þessa stundina. Túnið, sem nu er orðið æðistórt og teygir sig langt út í Nes, er orðið fallega grænt. Ég hef orð á því að það muni vera kvöldfagurt a Bessastöðum. •— Það er satt — anzar frúin — ekki er síður fagurt á morgnana. — Og nú kemst ég á snoðir um að þau hjónin hafa þann sið, þegar Forsetinn ekki fer í Sund- ^augarnar, að róa út um sjó þegar kyrrt er og solin gyllir sund og voga. Nú kemur Forsetinn til okkar, hann er að korna úr bænum, og af því að við höfum verið að tala um sjóferðir, slæ ég upp á því, að hann fari líklega bráðum að draga björg úr sjó. '— Ætli það ekki — segir hann brosandi — það verður víst ekki langt þangað til hætt verð- Ur að kaupa fiskinn í matinn. Ég kveð svo okkar vinsælu forsetahjón, og tek ^ð mér hlýja endurminningu um fagran vor- iuorgun á þessum sögufræga stað. ^yrrv. forsetafrú Georgia Björnsson. ^egar ég hringdi til fyrrverandi forsetafrúar Oeorgiu Björnsson og spurði hvort ég mætti eiga viðtal við hana fyrir „19. júní“, sagði hún það vel- kornið og bætti við: „Islenzkar konur hafa alltaf verið svo góðar við mig“. "— Þegar ég svo hitti frú Björnsson að máli sPUrði ég hana fyrst af öllu, hvernig það hefði atvikast að hún, sem er fædd og uppalin í Dan- ^aörku, hefði lagt leið sína til Islands. Fyrstu kynni mín af íslandi voru þau, að þ^óðir minn fór hingað í skemmtiferðalag og var sv° hrifinn af landinu, að faðir okkar vildi endi- eSa að systir mín, sem var gift Lund lyfsala, flytti JÚNI til Reykjavíkur. Það varð svo úr, að Lund gerð- ist lyfsali í Reykjavík, þau voru hér í 12 ár og kunnu ágætlega við sig. — Þér hafið þá komið í heimsókn til systur yðar? — Já, ég var þá 17 ára og hefur alltaf þótt vænt um Reykjavík síðan. — Kynntust þér manninum yðar í þessari ferð? — Nei, ekki var það, en ég kynntist Sigriði systur hans. Hitti hana á Þingvöllum og gekk hún þar með mér um allt og útskýrði sögu Þing- valla svo vel, að mér fannst ég sjá það allt ljós- lifandi fyrir mér. Hún var mjög mikilhæf kona og eftir þessi kynni tókst með okkur vinátta, sem hélzt til æviloka. — En ekki var samskiptum yðar og íslend- inga lokið með þessari ferð? Frúin hlær við og segir: — Nei, eitthvað um tveimur árum seinna mætti ég af tilviljun Sigríði á götu í Kaupmannahöfn og urðu það fagnaðarfundir. Hún var komin til Hafn- ar til að læra að mála en vantaði húsnæði. Ég bjó þá hjá gamalli ekkjufrú, sem var ákaflega siðavönd, en samþykkti þó að taka Sigríði líka ef ég vildi ábyrgjast hana og það var ég ekkert hrædd við. Sveinn, bróðir hennar, var þá á há- skólanum í Kaupmannahöfn og dáðist gamla kon- an að því, hvað hann væri góður bróðir og kæmi oft að heimsækja systur sína. — En hvað sagði fjölskyldan við því, að þér giftust Islendingi? 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.