19. júní


19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 31

19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 31
fyrir næsta mál á dagskrá, sem var: Lög, er skerða rétt konunnar og fjölskyldunnar (Kvinne og Familie fjendtlige Love). Framsögu í því hafði advokat Elin Lauritzen, sænsk. Um kvöldið, kl. 19, fór fram hátíðleg setning þingsins í Ráðhúshöllinni. Þar bauð Brynjolf Bull borgarstjóri alla velkomna fyrir hönd Osló- borgar. Þá talaði frú Dalby Kiær, form. samb. Svo voru fluttar kveðjur frá öllum löndum. Af hálfu íslendinga talaði frú Sigríður Magnús- son og mæltist skörulega. Þessu móti var útvarp- að. Þarna var Ragnhild prinsessa, sem heiðraði þingið með nærveru sinni. Kór norskra kven- stúdenta söng þarna og nokkur lög forkunnar vel. Allar voru þær í hvítum síðum kjólum með svörtu húfurnar sínar á handleggnum. Síðan var gengið að veizluborði. Margar ræður voru flutt- ar undir borðum. Að loknu borðhaldi og kaffi- drykkju var Ráðhúsið skoðað og útskýrðar myndir og málverk. Morguninn eftir þ. 20 maí, var þingið sett aftur kl. 10. Fyrsta mál á dagskrá var: Einstæð- ar mæður. Framsögu í því hafði: Jur. lic. Anna Mákmien-Alliinen (20 mín.). Af Islands hálfu talaði þar Steinunn Bjartmars og skýrði frá gerð- Um Mæðrastyrksnefndar hér á Islandi. Eftir Lunsj var þinginu haldið áfram eða kl. 13.30. Þá var tekið fyrir næsta og síðasta málið: Bjölskylduuppeldi. Framsögu í því hafði ég (Sig- nður Björnsdóttir) og talaði í því röskar 20 mm. Að því loknu urðu fjörugar umræður um málið allt til kl. 16, að fundi var slitið. Kl. 19 sama dag var opinn fundur í stóra salnum í Böyres Hus. Umræðuefni var: Fjölskylda í nýju Ijósi. Þar hélt hvert land stutta ræðu. Fyrir íslands hönd talaði frú Sigríður Magnússon. ^firleitt voru þetta mjög stuttar ræður. Þegar þessum opna fundi var slitið, fórum við allar til nen Enkel sammenkomst“, eins og þær orðuðu það frúrnar: Ingirid Gjösten Rasi, Marit Aarum °g Birgit Jensen. Þar áttum við yndislega kvöld- stund, sem við munum lengi muna eftir. Miðvikudaginn 21. maí var síðasti þingdagur- lan. Fyrir hádegi voru lagðar fram tillögur, r£eddar og bornar undir atkvæði. Eftir hádegisverð máttu konurnar kjósa sér smaferð út úr bænum. Við íslenzku konurnar tókum ekki þátt í því. Til þess lágu þær orsakir, aÓ við höfðum dvalið í Osló 5 daga og aldrei þ-aft tíma eða tækifæri að líta inn í búð, og óaginn eftir var uppstigningardagur, en á föstu- 19- JÚNÍ dagsmorgun ætluðum við að fara aftur til Hafn- ar. Þetta var því eina tækifærið fyrir okkur, að ná í einhvern minjagrip til að fara með heim. Um kvöldið var sameiginleg skilnaðarveizla í ,,Kongen“. ,,Kongen“ er skemmtistaður einhvers róðrarfélags og stendur eiginlega að nokkru leyti úti í firðinum. Andspænis því, hinum megin fjarðarins, er ,,Dronningen“, annar skemmtistað- ur. Inn á þessa veizlu borgaði hver fyrir sig og kostaði 20 kr. norskar á mann. Það var ákaf- lega fallegt þarna þetta kvöld, sjórinn spegilsléttur, reglulega ævintýralegt og held ég að allir hafi skemmt sér prýðilega. Þarna voru líka fínir skemmtikraftar. Þar með var þinginu lokið og því sem því tilheyrði — síðustu kveðju- og húrrahróp hljómuðu í næturkyrrðinni. En ferða- sögunni er ekki þar með lokið. Nú tóku norsku konurnar okkar aftur við stjórninni. Daginn eftir, síðasta daginn í Osló, átti nú ekki að sitja kyrrum höndum, nei, daginn átti að nota til hins ýtrasta. Klukkan 10 mættumst við utan við ,,Vár Frelsers Kirke“, það er ein stærsta og merkilegasta kirkja Oslóborgar, dómkirkja borg- arinnar. Kirkjan var fyrst vígð árið 1697, 7. nóv. Gagngerðar umbætur og breytingar hafa oft orðið á henni síðan, en þó allra mest nú á síðasta aldarfjórðungi. Kirkjan er svo fögur, að mér og okkur fleirum fannst ekkert hafa hrifið okkur meir en að fá að skoða hana og fá ágæta útskýringu á málverkum hennar. Öll hvelfingin er eitt stórfenglegt listaverk. Eftir að hafa skoðað kirkjuna, var okkur boðið öllum til norskrar konu, sem gift var íslenzkum manni, og hafði því dvalið hér á landi í 17 ár, að mig minnir, maðurinn hennar hét Steinholt. Þegar við fórum að skyggnast um eftir íbúð hennar, rákum við augað í íslenzka fánann við hliðina á þeim norska, sem hallaði sér út af svölunum í stóru fjölbýlishúsi, þá var auðratað fyrir okk- ur. Eins og alls staðar þar sem við komum, nutum við ástúðlegrar gestrisni, og þarna á þessu ynd- islega heimili minnti margt á ísland. Við dvöld- um þarna í nokkra klukkutíma í bezta yfirlæti, en við áttum eftir margt að gera þennan síð- asta dag í Osló. Næst áttum við að fara í lest upp til Frognesæter, til Holmenkollen, skoða betur Vigelandsgarðinn og söfnin, borða kvöld- verð hjá frk. Thomsen, sem var okkar góði leið- ari í Osló, og að síðustu en ekki sízt, þiggja heimboð hjá sendiherra íslands um kvöldið. En allt tókst þetta. Það var gott að koma til sendi- 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.