19. júní - 19.06.1953, Page 33
BROSTNIR HLEKKIR
Rannveig Krisljánsdóttir Hallberg
fæddist að Dagverðareyri við Eyjafjörð 17. maí
1917. Varð stúdent frá Menntaskóla Akureyrar
vorið 1938. Fór samsumars til Svíþjóðar og lagði
tar stund á húsmæðrakennaranám, fyrst í Upp-
sölum við Fackskolan för huslig ekonomi og að
Lknu námi þar í Stokkhólmi við Socialinstitutet.
loknu námi sneri hún heim til íslands árið
1942 og gerðist kennari við Húsmæðraskóla
ILykjavíkur sama árið. Varð ráðunautur og
Sendikennari Kvenfélagasambands Islands haust-
1944, en lét af þeim störfum í árslok 1945.
^ar skipuð námsstjóri Húsmæðraskólanna árið
^946 og gegndi því starfi til vorsins 1948. Hún
gútist Peter Hallberg, sænskum sendikennara við
Ráskóla Islands árið 1945. Er hann lét af störf-
um hér, fékk hann stöðu í Gautaborg og þar
voru þau búsett frá 1948. Rannveig dó eftir
alllanga vanheilsu 14. september síðastl.
Skömmu eftir komu sína til Islands 1942 gekk
hún í Kvenréttindafélag Islands. Var varaformað-
ur félagsins 1947 og vann á ferðum sínum um
landið að útbreiðslu félagsins með því að kynna
konum víðs vegar um land starf félagsins og
stefnu.
Katrín Pálsdóttir
fæddist að Fróðholtshóli í Landeyjum 9. jan.
1889, dóttir Páls bónda Hallssonar og konu hans,
Elínar Sæmundsdóttur. Naut eigi annarar skóla-
göngu í æsku en eins vetrar náms í kvenna-
skólanum í Reykjavík. Giftist vorið 1908 Þórði
Þórðarsyni frá Hvolstúni. Stunduðu þau búskap
til þess, er þau fluttu til Reykjavíkur árið 1923.
Arið 1925 missti Katrín mann sinn og stóð þá
Katrín
Pálsdóttir.
1 9. JÚNl
19