19. júní


19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 36

19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 36
GUÐRÚN GEIRSDÓTTIR: Kvenfélagið Hringurinn í Reykjavík Að undanförnu hefur það verið aðalviðfangs- efni kvenfélagsins Hringsins að koma á fót barna- spítala hér á landi. Hefur verið ákveðið, að félagið leggi sjóð þann, er það hefur safnað í því skyni, Barnaspltalasjóð Hringsins, sem nú er orðinn nál. 2!/£ millj. kr., til viðbótarbyggingar við Landsspít- alann gegn þvi, að þar verði m. a. fullkomin barna- spitali. Þar sem nú fjárfestingarleyfi er nýfengið fyrir þessari viðbótarbyggingu, svo að fyrirsjáan- legt er, að áhugamál Hringsins, barnaspítalinn, kemst bráðlega til framkvæmda, þá hefur blaðið „19. júní“ af því tilefni óskað þess, að ég skýrði nokkuð frá félaginu og starfsemi þess að undan- förnu. Kvenfélagið Hringurinn var stofnað árið 1904 og er það því orðið 49 ára gamalt. Fyrsta árið voru félagskonur 45 og munu aðeins 5 þeirra vera á lífi nú (Ásta Einarsson, Helga Thorsteins- son, Laufey Vilhjálmsdóttir, María Thoroddsen og Sigrún Bjarnason). 1 fyrstu mun félagið einkum hafa átt að vera skemmtifélag fyrir félagskonur, en brátt fór það að snúa sér að ýmis konar líkn- arstarfsemi, svo sem að hjálpa bágstöddum sæng- urkonum með mjólkurgjöfum og barnafatnaði. Einkum var það þó berklaveikin, sem þá var hér í algleymingi, er vakti áhuga félagskvenna. Áður en ríkið tók að sér framfærslu berklasjúklinga, áttu margir þeirra við mikla fjárhagslega örðug- leika að etja, og setti Hringurinn sér því það markmið, að reyna að bæta úr þessu eftir megni með beinum styrk til berklasjúklinga eða greiðslu legukostnaðar þeirra í sjúkrahúsi, og varð hið síðara brátt aðalreglan. Þegar á öðru félagsári (1906) var stofnaður sérstakur sjóður, Líknar- sjóður Hringsins, sem gegna átti þessu hlutverki, og varð hann þegar í stað miklu öflugri heldur en félagssjóðurinn, sem ekki hafði aðrar tekjur en árstillög félagskvenna, þar sem allar aðrar tekjur, sem félagið gat aflað sér, runnu í Líknarsjóðinn, en þær voru, auk töluverðra gjafa frá einstök- um mönnum, fengnar með ýmis konar skemmt- unum fyrir almenning, sem félagið gekkst fyrir, og hafði oft allmikinn ágóða af, enda lögðu fé- lagskonur fram mikla vinnu við þetta endurgjalds- laust. Oft voru haldnar hlutaveltur og stundum happdrætti og bazarar voru alltíðir. Nokkrum sinnum voru leiknir sjónleikir, þar sem Hring- konur léku öll hlutverkin, jafnt karla sem kvenna, og þótti það hin bezta skemmtun. Stundum voru líka aðrar kvöldskemmtnir. I nokkur ár voru skemmtanir, sem kallaðar voru Hringferð Hrings- ins. Voru þá skemmtanir á vegum Hringsins á ýmsum stöðum í bænum, en á öðrum kaffisala, er Hringkonur önnuðust, og gátu menn svo geng- ið um frá einum stað á annan. Síðar voru haldnar útiskemmtanir á sumrum í Hljómskálagarðinum, með ýmis konar skemmtiatriðum og veitingum, sem Hringkonur önnuðust. Þá var og sala á gerfiblómum, líkt og merkjasala nú. Árið 1914 var hafin sala á minningarspjöldum í stað kransa við útför manna. Hefur sá liður haldizt æ síðan og gefið Hringnum drjúgar tekjur. Þótt öllum tekjum Líknarsjóðs Hringsins væri árlega varið til hjálpar berklasjúklingum, þá náði sú hjálp skammt, og ekkert fé safnaðist til stærri framkvæmda. Fyrir því var frá 1916 tekið upp á þeirri nýbreytni að leggja árlega helminginn af tekjum Líknarsjóðs í svo kallaðan fastasjóð. Safn- aðist þannig nokkurt fé, sem síðar ltom í góðar þarfir, því að eftir að berklavarnalögin frá 1921 komu til framkvæmda, tók ríkið að sér að greiða allan legukostnað berklasjúklinga. Var þar með fallinn í burtu grundvöllurinn undir starfsemi Líknarsjóðs, eins og hún hafði verið undanfarin ár, enda var hann brátt lagður niður, en í þess stað var öll áherzla lögð á, að félagið kæmi upp hressingarhæli fyrir berklasjúklinga, sem náð hefðu þeim bata, að þeir þyrftu ekki að vera á venjulegu berklahæli, en svo vanheilir, að þeir gætu ekki gengið að venjulegum störfum- En fyrir slíkt hæli var þá mjög brýn þörf. Tókst félaginu að koma upp hressingarhæli í Kópavogi, 19. JÚNÍ 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.