19. júní


19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 51

19. júní - 19.06.1953, Blaðsíða 51
Sampykktir 16. þings Alþjóðakvenréttindafélagsins (International Alliance of Women). ALMENN ÁLYKTUN 16. |)ings Alþjóðakvenréttindafélagsins (International Alliance of Women), sem haldið var í Napoli 14,—18. sept. 1953. ALÞJÓÐAFÉLAGIÐ staðfestir, sem þá meginreglu, sem félagsskapurinn alltaf hefur barizt fyrir, að fullkomið jafnrétti skuli ríkja milli karla og kvenna. Bæði sem emstaklingar, félagslega, stjórnmálalega, innan hvers ein- staks rikis og í alþjóðamálum skuli þau hafa sömu rétt- mdi og sömu skyldur. HELDUR FRAM að þessi barátta fyrir frelsi og rétt- 'ndum kvenna sé ekki barátta gegn karlmönnunum, held- Ur viðleitni til að öðlast sams konar réttlæti fyrir allt mannkyn. SKORAR Á Sameinuðu þjóðirnar að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að framkvæmdar verði þær framfara hugsjónir, sem þær sjálfar hafa sett sér i Mann- réttindaskránni, og sem fyrsta skref í þessa átt að veita konum sama tækifæri og körlum til frama innan sinna eigin vébanda, og sömuleiðis að notfæra sér sinn mikla myndugleika til að fá meðlimi sína til að gera hið sama. LÝSIR ÞVÍ YFIR að frelsi og réttlæti geti einungis átt Ser stað í lýðræðisþjóðfélagi, þar sem lög og siðvenjur Vernda friðhelgi einstaklingsins án tillits til kynferðis, ^yns, litarháttar eða trúarbragða, í ríkjum þar sem ríkisstjórn, löggjöf og réttarfar eru í höndum þjóðar- 'nnar sjálfrar, þar sem óhlutdrægir dómstólar vernda emstaklinginn gegn gjörræðislegri málsókn, hvort held- Ur er af hendi opinberra stofnana eða einstaklinga, þar sem sömu réttindi eru veitt öllum þsgnum, þar sem Prentfrelsi er, málfrelsi, félagafrelsi, almenn og ókeypis uPpfræðsla, frjálst stöðuval, frelsi til að nota fristundir sinar að eigin vilja, nógir atvinnumöguleikar og félags- legt öryggi. VEKUR ATHYGLI Á, að reynsla siðustu ára hefur sýnt, Lversu hættulegt er að endurtaka fögur loforð og fyrir- ^it, þegar þeim er ekki fylgt eftir með ákveðnum at- Löfnum til þess að koma í framkvæmd þeim megin- reglum, sem boðaðar hafa verið og þess vegna HEITIR ALÞJÓÐAFÉLAGIÐ því, bæði með alþjóðleg- Um aðgerðum og stöðugu sambandi við sambandsfélög Sln í hinum ýmsu löndum, að fylgja því fast fram að Mannréttindayfirlýsing S. Þ., sem þessi ályktun byggist a, verði efnd í verki, en sé ekki að mestu leyti pappírs- gagn. 2. FRIÐUR OG SAMSKIPTI MANNA. iNýtt nafn á friðarnefndinni, sem samþ. var á þinginu). Álþjóðakvenréttindafélagið á þingi í Napoli 14.—18. sePt. 1952 JÚNl TRÚIR Á ÞAÐ, að mannkynið sé nú að komast á það stig menningar, að það geti jafnað deilumál sín með friðsamlegum viðræðum og án þess að þurfa að grípa til ofbsldis. VIÐURKENNIR að núverandi ástand í heimsmálunum seinkar þvi, að þetta verði að veruleika. MÓTMÆLIR sérstaklega hvers konar tækjum til fjölda- manndrápa, sem vofir yfir óbreyttum borgurum svo sem kjarnorku- og sýklahernaði. Það biður um, að þess konar hernaður verði bannaður og komið verði á ströngu alþjóðaeftirliti með því, að þessu banni sé framfylgt, svo að mannkynið megi losna við þann ótta og öryggisleysi, sem það á nú við að búa. Alþj.fél. skorar á sambandsfélög sín að tilnefna hæfar konur úr sínum hópi, til að standa i stöðugu sambandi við þingmenn af öllum stjórnmálaflokkum til þess að kynna þeim skoðanir og ályktanir Alþj.fél. og þannig hafa áhrif á umræður um vandamál friðar og velfarn- aðar manna. ALÞJ.FÉL. nýtur þeirra hlunninda að hafa ráðgefandi aðstöðu hjá Efnahags- og félagsmálastofnun S. Þ. Þess vegna vill fél. brýna fyrir meðlimum sínum að kynna sér betur Stofnskrá S. Þ. og framkvæmdir hinna ýmsu deilda þeirra eins og t. d. Alþjóðavinnumálastofnunar- innar og Alþjóðadómstólsins í Haag, því það hefur trú á því, að báðar þessar stofnanir séu mikilvægar til efl- ingar og varðveizlu fyrir sannan og varanlegan frið. Það viðurkennir einnig mikilvægi starfa þeirra annara félaga- Samtaka, sem hafa ráðgefandi aðstöðu hjá S. Þ., og lýsir ánægju sinni yfir þeirri viðleitni, sem þegar hefur verið gerð, bæði af ríkisstjórnum og félagasamtökum til að bæta lífskjör fólks, og til verndar fjölskyldum og verkalýð. ÞAÐ VONAR að slikar ráðstafanir megi ná um viða ver- öld, því að árangur þeirra er ekki aðeins til almennra hagsbóta á sviði mannréttinda, heldur einnig trygging gegn tilhneigingu til ófriðar. ALÞJ.FÉL. skorar á alla sem vinna að friði að tryggja að ríkisstjórnir þeirra og þjóðir virði þriðju grein Mannrétt- indayfirlýsingarinnar: allir menn eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi, og aðra málsgr. þrettándu greinar: Rétt skal mönnum vera að fara af landi burt, hvort sem er af sínu eigin landi eða öðru, og eiga afturkvæmt til heimalands sins. ALÞJ.FÉL. sem gerir sér ljóst, að valdbeiting notuð við barnauppeldi og meðferð fanga kveikir hjá þeim uppreisn- ar- og hefndaranda, sem veldur hatri og ófriði seinna í lífinu, SKORAR þess vegna á öll sambandsfélög sin að halda uppi stöðugri baráttu gegn líkamlegum refsingum í skól- um og fangelsum, og hafa samvinnu við þær stofnanir í hverju landi, sem beita sér fyrir umbótum á þessu sviði. ALÞJ.FÉL., sem byggir stefnu sína á Stofnskrá og Mann- réttindayfirlýsing S. Þ., hefur veitt því athygli að mismun- ur, byggður á þjóðerni, kynþáttum eða trúarbrögðum eyði- leggur gott samkomulag ríkja, skiptir íbúum eins lands í fjandsamlega flokka, og veldur stöðugri ófriðarhættu, ÞESS VEGNA HEITIR ÞAÐ Á meðlimi sína, að vinna að því að skapa meiri samúð og skilning meðal allra manna án tillits til kynþátta og trúarbragða, og skora á ríkis- stjórnir sínar að láta setja lög, sem banna allan greinar- mun, byggðan á kynþáttamun, litarhætti eða trúarbrögð- um, og sjá um að lögum þessum sé framfylgt. 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.