19. júní


19. júní - 19.06.1965, Page 12

19. júní - 19.06.1965, Page 12
ast við nauðsynlegan undirbúning að sérhæfðu starfi. Menntun tekur ekki hvað sízt til heilbrigðs mats á andlegum verðmætum og vegna sérstöðu konunnar sem uppalanda kynslóðanna er jafnvel enn meiri þörf á gagngerðri menntun kvenna en karla. Við VI.: — Konur hafa að jafnaði meiri áhuga á ýmsum mannúðar- og menningarmálum en karlar og því tel ég það ótvíræðan gróða fyrir þjóðfélagið, að konur hafi fullan atkvæðisrétt um þjóðmál og noti hann. Jóhanna Egilsdóttir I. a.: — Þær hafa þjóðfélagslegt jafnrétti í orði, en í framkvæmd vantar mikið á að svo sé. — b) Það mun vera mjög misjafnt og getur verið á báða bóga. Algengara mun þó vera að húsbóndinn sé aðal fjárráðamaðurinn, a. m. k. þegar um meiri háttar ráðstafanir er að ræða. — c) Það vantar mikið á að jafnrétti sé á vinnumarkaðinum og gildir það bæði um stöðuveitingar og kaupút- greiðslur. II. : — Ég tel að þær fáu konur, sem gengt hafa hærri opinberum stöðum, hafi yfirleitt gert það með mestu prýði og að það yrði þjóðfélaginu til góðs að þátttaka þeirra í opinberum störfum væri aukin. III. — Það er hvort tveggju um að kenna og mættu fleiri konur sína áhuga og framtak í því efni. IV. : — Hefi ekki orðið vör við hlutdægni í því efni. V. : — Tel rétt og nauðsynlegt að þjóðfélagið stuðli að menntun allra pilta og stúlkna eftir getu þeirra og áhuga. VI. : — Ég tel að kosningaréttur kvenna hafi orðið til þess að ýmsum félagslegum umbótamál- um hefur meira verið sinnt en ella væri og náð fram að ganga vegna beinna og óbeinna áhrifa þeirra, og hafi kosningaréttur þeirra því orðið þjóð- félaginu til góðs. I.a.: — Flestar ef ekki allar íslenzkar konur hafa alizt upp við þær venjur og skoðanir að þeirra staður sé á heimilinu. Piltar eru hins vegar ekki í vafa um að þeirra staður sé úti í atvinnu- lífinu. Svo rótgrónum þjóðfélagsháttum verður ekki breytt á skömmum tíma, enda eru margir hikandi og í vafa um, hve langt skuli ganga í því að raska þeim. Þessi verkaskipting var hentug á meðan karlmannsverk kröfðust meiri líkams- burða en heimilisstörf. Sú staðreynd að líffræði- legt hlutverk konunnar kostar hana mikinn tima og orku á bezta starfsaldri hlýtur að leiða til trufl- unar á æfistarfi hennar út á við, því að þann hluta æfinnar, sem konan gegnir móðurhlutverki, held ég að öllum finnist hún verði að slaka á við þátttöku í atvinnulífinu. Af þessu leiðir að konur almennt eiga ójafnan leik, ef um það er að ræða að keppa við karla um háar stöður, völd og hvað eina, sem krefst þess að menn leggi fram alla krafta sína og slaki hvergi á í harðri samkeppni. 10 1 9. JÚNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.