19. júní - 19.06.1965, Blaðsíða 26
BROSTNIR HLEKKIR
Lovísa Fjelflsted var fædd 8 júní 1885 í Heykja-
vík, dáin 7. nóvember 1964 í Reykjavík. Foreldrar
hennar voru Ágúst Þörsteinsson kaupmaður í
Reykjavík og kona hans, Katrín Þorsteinsdóttir.
Lovísa Fjeldsted hlaut góða menntun og annað-
ist á unga aldri skrifstofustörf í Thomsens Maga-
sini og hjá Garðari stórkaupmanni í Leith.
Flún giftist árið 1912 Lárusi Fjeldsted málaflutn-
ingsmanni, seinna hæstaréttarlögmanni, og hjuggu
þau hjón um árabil að Tjarnargötu 33.
Lovísa Fjeldsted var allmörg ár í stjórn K.R.F.I.
og starfaði bar af lipurð og alúð eins og hennar var
háttur. Einnig var hún kosin í nefnd þá, er lagði
drög að skipulagsskrá Menningar- og minningar-
sjóðs kvenna. Var hún kjörin heiðursfélagi K.R.F.I.
Þau hjón voru mjög sainrýmd og samhent, svo
til fyrirmyndar var. Gestrisni hennar var við-
brugðið og naut sin á hinu rausnarlega heimili
þeirra hjóna, er stóð ætíð onið öllum vinum þeirra
og þar leið öllum vel. Andlát þeirra hjóna bar upp
á sama daginn, hún andaðist um morguninn, en
hann um kvöldið. — Samferða urðu þau síðasta
spölinn.
Blessuö sé minningin.
Guðrún Þorgeirsdóttir var fædd 16. okt. 1895
að Löngumýri á Skeiðum, dáin 14. marz 1965 í
Hún þuldi með sjálfri sér þessa fornu bæn og
rýndi um leið fast á hinar yfirnáttúrlegu þústur,
sem reikuðu þarna niðri. — Loksins fóru þær að
færast nær og nær. Konan þuldi sem ákafast.
„Rrothœtt gler og bólan þunna
brotna snart og hjaðna hunna —
Nú nálguðust hin ójarðnesku skref — — allt
inn í birtuna frá ljósinu í kofanum. Þá sást hvað
þetta var. Óttinn hvarf út í veður og vind. Konan
varð hvumsa við og steinhætti bænalestrinum.
Æ, þetta voru þá rollurnar hans Jóakims á beit
í fjöruþaranum!
24
Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ólöf Ólafsdóttir
frá Langholti í Hrunamannahreppi og Þorgeir
Árnason á Löngumýri.
Guðrún Þorgeirsdóttir tók virkan þátt í félags-
störfum kvenna hér í bæ, bæði hjá K.R.F.I. og þó
sérstaklega hjá verkakvennafélaginu Framsókn. —
Átti hún sæti í stjórn þess félags um árabil. Hún
vann að ýmsum störfum en mest og lengst við
kirkjugarðinn við Suðurgötu, og var þar umsjónar-
kona á seinni árum. Vann hún öll þau störf, sem
hún tók að sér af samvizkusemi og trúmennsku.
Blessuð sé minning hennar.
Steinunn Jóhannesdóttir var fædd 18. júli 1894,
dáin 10. okt. 1964 í Reykjavík.
Steinunn Jóhannesdóttir fylgdist vel með þjóð-
félagsmálum og tók mikinn þátt í félagsmálum.
Hún var áhugasöm bindindiskona og gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum í Góðtemplarareglunni. Hún
átti lika sæti i áfengisvarnarnefnd um árabil. —
Steinunn var í verkakvennafélaginu Einingu á
Akureyri og var m. a. fulltrúi þess félags á þing-
um Alþýðusambands íslands. Vann hún að öllum
störfum með festu og einurð.
Blessuð sé minning hennar.
Eyborg Guömundsdóttir
Frh. af bls. 17.
olíumyndum, teikningum og klippmyndum. — I
marzmánuði var henni boðin þátttaka í samsýn-
ingu „Réalities Nouvelles“ í París, sem er stærsta
árssýningin þar. Og í apríl á alþjóðamálverkasýn-
ingu í listasafninu í París. I júnímánuði tekur hún
þátt í sýningu með „Mesure“-hópnum í Strass-
borg.
Flugmynd Eyborgar er að komast í samvinnu
við bvggingarlistamenn um ýmiskonar skreyting-
ar á byggingum utan og innan, því að hún álítur
að þessar tvær listgreinar eigi samleið og ættu að
geta myndað með sér samstarf. Á þann hátt geti
listin komið að meiri notum fyrir almenning, en
þegar hún er lokuð inni á söfnum eða heimilum.
Ösk Eyborgar er sú, að eiga þess kost að vinna
að listskönun sinni hér heima á Islandi. Megi
henni verða að þeirri ósk sinni og að íslenzk þjóð
íái notið listar hennar.
S. E.
1 9. JÚNÍ