19. júní


19. júní - 19.06.1965, Síða 22

19. júní - 19.06.1965, Síða 22
þegar sýningar hætta. Samt held ég að Snæfríður 1 íslandsklukkunni verði mér alltaf kærust. Það er, ef til vill, fyrst og fremst af því, að hún er fyrsta verulega stóra og vandasama hlutverkið mitt, og það fyrsta í Þjóðleikhúsinu. Hún er stór- brotin, kvenleg og „ólógisk“. Og svo þessi dásam- legi skáldskapur í öllu verkinu, sem gerir það að dýrðarheimi. Hlutverkin eru orðin 79 í allt, þar af 56 hjá Þjóðleikhúsinu. Flest öll eru þau góðir kunningjar, sem gaman er að hugsa til, en það kemur þó fyrir, að ég verð að leika hlutverk, sem ég mundi ekki óska eftir eða treysta mér í sjálf. Það er töluvert átak, en stundum hefur það orðið til góðs, eftir erfiða baráttu, og gefur oft mikla reynslu, þó þau verði sjaldan góðir kunningjar. Maggi í Táningaást er hlutverk, sem mér þótti mjög skemmtilegt. Það var að vísu erfitt, af því að í því er söngur og dans, en nýstárlegt og hún táknræn fyrir nútímakonuna. Inga Þórðardóttir. Ég kom fyrst fram á sviðið í Iðnó árið 1941 í Revýunni „Nú er það svart, maður“, sem sýnd var af „Fjalakettinum“. Þar var ég „ein ástands- pía“. Hvað mörg hlutverk ég hefi leikið, veit ég ekki, en ég hef fengið tækifæri til að glíma við margskonar manngerðir, — og tel ég það lán, þó mismunandi vel hafi mér tekist að íklæða þessar konur holdi og blóði, og því lifi, sem æskilegt hefði verið. Einstaka konur hafa heillað mig með sérkenni- leik sínum, og hefi ég þá leitast við að skapa „typ- ur“, sýna kýmni í látbrögðum og gerfi, þegar það hefur átt við. Stöku sinnum hefur mér fundizt á áhorfendum, að ég hafi hitt í mark, og er það ánægjulegasta tilfinning leikarans, að finna þessa nánu, ósýnilegu snertingu við fólkið. Aðrar þessara kvenna eru svo margbrotnar og slyngar, að maður „gatar“ gjörsamlega við fyrstu kynni, og getur fyllst leiða og jafnvel andúð á þeim, en við nánari kynningu kemst maður að raun um, að „hver hefur til síns ágætis nolckuð", og að lokum verður ef til vill hættan sú, að manni verður of hlýtt til þessarar konu, tekur of mikið málstað hennar. Þarna kemur, held ég, eigin eigin- girni greinilega í ljós: að breiða yfir eða milda verstu gallana, — galla okkar sjálfra. Jóhanna Einars í „Uppstigningu“ Sigurðar Nor- dals var fyrsta stóra hlutverkið mitt. Skýr, einlæg og umbúðalaust kemur hún til dyranna eins og hún er klædd. Yndisleg kona, sem ég hef alltaf dáð og borið virðingu fyrir. Árið 1950 var ég ráðin við Þjóðleikhúsið, og mitt fyrsta hlutverk þar var Halla í „Fjalla-Ey- vindi“. Nú var það stóra sviðið, sem olli nokkrum erfiðleikum í fyrstu, þó að þessum áfanga væri náð. Samt vandist þessi breyting furðanlega, og ég á Þjóðleikhúsinu mikið að þakka fyrir mörg og margvísleg verkefni. Þegar kvennablaðið „19. júní“ bað mig að segja l'rá eftirlætishlutverki mínu, og hvers vegna ég 1æki það fram yfir önnur, átti ég í miklum vanda, því í raun og veru hef ég ekki tekið eitt hlutverk fram yfir annað. Ef til vill vegna þess, að ég hef aldrei átt neitt óskahlutverk. Sú kona sem mér er einna hugstæðust í þessu tilefni er: „Hún — Agnes“ í leikritinu „Rekkjan“ oftir Jan De Hartog. Hjúskaparsaga, sem sífellt 20 1 9. JÚNÍ

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.