19. júní


19. júní - 19.06.1965, Side 33

19. júní - 19.06.1965, Side 33
Við höfðum alltaf unnið á skrifstofum, og þótti þetta því óþolandi þrældómur. Vinstúlka mín var berbergisþerna, en ég vann við matarlyftuna, sem flutti matinn upp úr eldhúsinu í veitingasalinn. Þar átti allt að ske á sama augnabliki, svo mat- urinn kólnaði ekki á leið á borðin. Auðvitað var ég öll skaðbrennd á höndum. Eftir sex mánuði hefði ég sjálfsagt farið heim, brennd upp að oln- bogum. Húsbændur okkar á þessum stað komu ekki vel fram við starfsfólk sitt. Eitt og annað fór öðruvísi en ætlað var. Réttmætum kvörtunum var ekkert sinnt. Við höfðum gert ráð fyrir að vera þarna í sex mánuði, en þegar þrir mánuðir voru liðnir, vildum við fara, úr því að ekki var staðið við neina samninga við okkur, hvorki um aðbúð, mat né fri. Við fengum samtal við hótelstýruna og sögðum henni frá óánægju okkar, og að við vildum fá okk- ur lausar og fara. Hún var ekkert nema ókurteisin og vonzkan og sagði að ekki kæmi til mála að sleppa okkur fyrr en um haustið, og ekki yrði hægt að bæta eða breyta neitt vinnutíma okkar, frekar en annarra. í bræði okkar ákváðum við að strjúka hreinlega. Það var ekkert auðvelt, því það höfðu margir reynt á undan okkur og margir verið kyrrsettir. — Með okkur unnu þarna tveir þýzkir bræður. Annar var þjónn, en hinn bakari. Þeir reyndust okkur hinir mestu vinir og án þeirra hefði okkur aldrei tekizt að strjúka. Ég átti fri um stund þennan dag og tók ég mig til og setti niður í hvelli allt okkar hafurtask. Þegar líða fór á daginn, komu þýzku bræðurnir heim, og tóku þeir töskurnar okkar inn í herbergi til sín, út um okkar glugga og inn um sinn, því að ekkert mátti vitnast. Þetta var algert leyndar- mál með okkur fjórum. Þeir höfðu bíl og ætluðu að koma töskunum á lestarstöðina um miðnætti, eða þegar dimmt var orðið. Sjálfar fórum við með lest kiukkan 6. Piltarnir urðu því miður þeir einu, sem við kvöddum. Var það leitt, því að margt af starfsfólkinu var bezta fólk. Jæja, ferðinni var heitið til Basel í annað sinn, í þeirri von að við fengjum aftur vinnu á sjúkra- húsinu. Ferðin tók þrjá tíma, og allan þann tíma sátum við eins og á nálum, sveittar og hræddar. Peningarnir voru orðnir litlir og vegabréfin urðu eftir, því að hótelstýran hafði neitað að afhenda okkur þau fyrr en sex mánuðir væru liðnir. — Áhyggjur af því, hvort töskurnar okkar kæmust á leiðarenda, iþyngdu líka. Við gátum búizt við öllu illu, því að ófögur voru orð hótelstýrunnar, þegar við sögðumst ætla að fara. Allir bílar á þjóðveginum, hver maður sem gekk um lestina, allt var grunsamlegt i okkar augum. Taugarnar voru farnar gjörsamlega. Við vorum ekkert nema heiðarleikinn og vissum að við höfð- um brotið samninga og þess vegna leið okkur mjög illa. Við komum seint um kvöldið til Basel og feng- um okkur herbergi á hóteli. Snemma næsta morg- un þrömmuðum við svo af stað á sjúkrahúsið, og sögðum alla okkar sögu. Ekki urðu viðtökurnar síður góðar en í fyrra skiptið. Við fengum inni á sama augnabliki og sama góða herbergið og áður, og eftir nokkra daga fengum við vinnu aftur á sömu stöðum. Vega- bréfin fengum við nokkru seinna fyrir milligöngu „konsúlsins“ í Bern. 1 þetta sinn þótti okkur vinnudagur sjúkrahúss- ins ekki langur, né heldur vinnan erfið. Næstu þrjá mánuði notuðum við vel, bæði kynntumst við Basel betunr, þar var gott að vera. Við lærð- um málið vel og auk þess margt fleira. Við lærð- um að meta vinnuna og líka frístundirnar. Mér fannst sjóndeildarhringurinn víkka mikið. Þótt stundum væri erfiðið mikið, þá verða end- urminningarnar aðeins betri og bjartari. Við vorum farnar að hlakka til heimferðar, enda atvinnuleyfið að renna út. Við kvöddum því Basel og okkar góðu vini þar með söknuði, og stefndum heim til Islands á ný. Mér fannst meira en eitt ár liðið frá því ég fór að heiman, svo margt hafði á dagana drifið. Ég ráðlegg stúlkum að leita sér vinnu á fjar- lægum stöðum. Það eru svo ólíkar kröfur gerðar til manns. Vinnan er oftast meiri og erfiðari. En það höfum við áreiðanlega mjög gott af að skilja og kynnast. Það er ekki vandalaust að ráða sig til vinnu, sem maður ekki þekkir og ekki kann. Ef heilsa okkar hefði ekki verið góð og starfsfólk sjúkrahússins ekki reynzt okkur sem hollir og góðir vinir, gat farið illa fyrir okkur, af eintómri fávizku okkar. 1 9. JÚNÍ 31

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.