19. júní


19. júní - 19.06.1965, Page 34

19. júní - 19.06.1965, Page 34
^s4mpríJut' JjónataniclóttLr: Rýsl. Sjórinn lyftir íhvolfum lófum að birtunni litlir kufungar síga og hefjast eins og fley Visa um máfa bærir strá á bakkanum kufungar á ferð um gljáandi klöpp Aðfall — eins og lyfti brjóst við hendingaskil klöppin gljáir auð einn leggui' upp að nýju gætilega öðrum týnir sjórinn í gaupnir sér. Svo þótti mér að brosandi sjórinn dyldi ákefð í lágværu hjali þótti eins og þyldi hann viðlag milli stuttra stefja — kona umlyki —■ þyngdi mig framandi þunga vatnsins svo ég gleymdi og þráði og mundi hann týna litlum kufungum. \Jilborcj JJ^acjíjat'tíclóttii': Við garðstíginn. Vor : Dvergliljan þurrkar af sér tárin lyftir bláum kolli sléttar úr pilsinu græna hneigir sig og brosir Morgunblærinn hefur boðið henni í dans. H a u s t: Vindarnir hafa leikið á pípur sínar fyrir trylltum dansi haustlaufanna Nakin tré spenna frostbitnar greipar um síðasta októberdaginn Reiðubúin að þola vetrarlangt píslarvætti.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.