19. júní


19. júní - 19.06.1965, Síða 36

19. júní - 19.06.1965, Síða 36
'LCjnöLir (^mará: Þegar íslenzkar konur vöknuðu Nú á þessu vori, þegar 50 ár eru liðin frá því íslenzkar konur öðluðust kosningarrétt og kjör- gengi til Alþingis með stjórnarskrárbreytingunni 19. júní 1915, er ekki úr vegi að minnast þess, hvernig konurnar sjálfar fögnuðu þessum stóra og mikilsverða áfanga i réttindabaráttu þeirra. Aðdragandi þess, að réttindamál kvenna yrðu borin fram til raunverulegs ávinnings var þá orð- inn langur og ýmislegt hafði á þeim tíma stuðlað að auknum réttindum og bættum kjörum kvenna, þótt hægt færi. Á Alþingi 1881 voru samþykkt lög um kosningarétt allra sjálfstæðra kvenna til sýslunefnda, bæjarstjórna, hreppsnefnda og safn- aðarnefnda með sömu skyldum og karlmanna og 1886 var þeim með lögum veitt leyfi til þess að stunda takmarkað nám í latínuskólanum og taka stúdentspróf. Þá hóf Páll Briem, amtmaður máls á því í fyrirlestri, sem hann hélt í Reykjavík 18. júlí 1885, að konum bæri að fá full pólitísk rétt- indi. Árið 1891 fluttu þeir Skúli Thoroddsen og séra Ólafur Ólafsson lagafrumvarp á Alþingi um kjörgengi sjálfstæðra kvenna í þeim málum, er þær höfðu kosningarrétt til, og um myndugleika giftra kvenna og séra Ólafur flutti frumvarp um rétt kvenna til sama námsstyrks og aðgangs að menntastofnunum landsins eins og karlmenn. En öll þessi viðleitni var þá felld. En það var Skúli Thoroddsen, sem alltaf hélt því fram að konur ættu að hafa fullt jafnrétti við karlmenn, og skrifaði um það í Þjóðviljann eftir að hann var stofnaður 1887. Margir fleiri mætir menn bættust í hópinn, er töldu að konum bæri sami réttur og karlmönnum í þjóðfélagsmálum. Á Alþingi 1911 hélt Jón Sigurðsson á Haukagili, þingmaður Mýrasýslu, fram fullu jafnrétti kvenna og flutti snjalla ræðu með frumvarpinu um rétt- indamál kvenna og komst þannig að orði í lok ræðu sinnar: „Aðalatriðið í frumvarpinu er að afnema mis- réttið milli kvenna og karla og veita konum að- gang að embættum og skólum. Þetta er svo sjálf- sagt, að mig furðar á að nokkur hinna hæstvirtu þingmanna skuli geta fengið af sér að andmæla þessu. Það er mál til komið að afnema þetta mis- rétti, þessar gömlu leyfar.“ Flutningsmaður frumvarpsins var Hannes Haf- stein og var það samþykkt sem lög með 16 at- kvæðum gegn 5 á alþingi 1911. Var það stærsti áfanginn sem náðst hafði þar til 19. júní 1915, þegar þau gleðitíðindi bárust með símanum frá Kaupmannahöfn, að stjórnarskráin hefði verið sam- þykkt af konungi og konur öðlast full stjórnmála- leg réttindi. 1 Kvennablaðinu 21. árgangi, 6. tölublaði, 16. júlí 1915, er sagt frá þessum unna sigri og við- brögðum kvennanna, sem þá þegar hófust handa um undirbúning til fagnaðar þessum miklu rétt- indabótum. Þar stendur: „Kvenréttindafélag Islands og Hið islenzka kven- félag gengust þá fyrir að halda skyldi minningar- hátíð í þessu tilefni, og fengu með sér formenn flestra kvenfélaga bæjarins. Kom öllum saman um að bezt ætti við að þessi minningarhátíð yrði hald- in samtimis og Alþingi væri sett, 7. júlí síðdegis. Mikill viðbúnaður var hafður til að gera þessa hátið sem skemmtilegasta og störfuðu að því marg- ar nefndir. Austurvöllur var allur fánum skreytt- um þeim megin, sem vissi að þinghúsinu. Báðum megin við aðalhlið vallarins voru nýju islenzku flöggin, og ýmis önnur flögg þar út frá, ræðu- stóllinn var líka skreyttur íslenzka flagginu. Um kvöldið átti svo að vera samkoma í stóra salnum í Iðnó, sem var allur skreyttur fánum og flögg- um, einkum nýju íslenzku flöggunum (þ. e. þrí- Jiti fáninn). Þóttust menn ekki hafa séð hann jafn vel skreyttan áður. Klukkan 5,30 siðdegis raðaði svo öll fylkingin sér i Barnaskólagarðinum og hélt af stað. Fremst gengu 200 litlar ljósklæddar námsmeyjar, allar með lítil ný íslenzk flögg í höndum sér. Á eftir kom svo aðalfylkingin, og gengu þrjár konur sam- hliða. Á undan fór hornaflokkur og lék ýms ís-

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.