19. júní


19. júní - 19.06.1965, Side 41

19. júní - 19.06.1965, Side 41
leiðin fyrir borgarana að koma fram áhugamálum sínum, en nauðsynlegt vegna þjóðfélagsins að karl og kona ynnu þar saman. Næsta clag flutti formaðurinn, Eztynn Deraniyagala skýrslu sína. Fyrir utan stjórnarfundi i London og Stockhólmi hafði hún heimsótt 15 sambandsfélög í 9 löndum, aðallega i Asiu og Afríku. Þar eru vandamálin, sem konurnar eru að stríða við langtum etfiðari en hjá okkur í Evrópu, fjöldinn allur af fólkinu er livorki læs né skritandi, en eins og ein Afriku- konan sagði: „Ef þú kennir pilti að lesa. Ja, þá lærir hann það. En ef stúlka lærir að lesa, |iá kennir hún allri fjöl- skyldunni". Eins og kunnugt er, fer starf Alþjóðafélagsins á milli funda fram í 5 nefndum, sem síðan gera grein fyrir störf- um sinum. Þar sem ég var eini fulltrúinn frá Islandi, gat ég ekki setið alla nefndarfundi, því að alltaf voru að minnsta kosti tvær nefndir að störfum í einu. Þegar rætt var um rétt óskilgetinna barna og mæðra þeirra, vakti það talsverða at- hygli (að ég ekki segi undrun hjá sumum), er ég skýrði frá, hvernig þessum málum væri háttað hjá okkur. Einn daginn var tekin upp sá gamli siður, að lofa fulltrúunum að segja frá starfi félaga sinna. En okkur voru skammtaðar 3 mínútur, og miskunnarlaust hringdar niður, þegar þær voru liðnar. Þetta var því hvorki fugl eða fiskur. Enda sagði ganila Mrs. Corbett Ashby við mig á eftir, að hún sæi að þetta væri hringlandi vitlaust fyrirkomulag. Það hefði átt að gefa okkur 5 minútur og sleppa heldur þýðingunni, því að allt fór fram á tveimur málum, ensku og frönsku, sem er ákaflega þreytandi. Sérstaklega kvörtuðu þær, sem skildu bæði málin. Formaðurinn, Eztynn Deraniyagala frá Ceylon, lét af störf- um, en við tók Begum Anwar G. Alimed frá Pakistan. Hún er gift ambassador Pakistan í Washington D. C. og flytzt því skrifstofa félagsins þangað. Triest er mjög fögur, gömul borg, sem hefur um alda- raðir verið bitbein nágrannarikja. Nú tilheyrir hún ftalíu. Þar er útileikhús ftá Rómverjatímabilinu og mörg gömul virki, sem breytt hefur verið í veitinga- og skemmtistaði. Gestrisni nutum við í ríkum mæli. Svo til á hverju kvöldi voru veizlur, og ferðalög um hið dásamlega umhverfi borg- arinnar. Einn dag var farið til Jugoslaviu í boði skipseig- anda, sem heldur uppi skemmtiferðum þangað. I.andslag og fólk, er við sáum í þeirri ferð, var mjög líkt eins og í ná- grenni Triest, nema hvað alls staðar voru á veggjum myndir af Tito. Ég sagði einu sinni við formanninn, önnu Volli, að það væri engu líkara en að hún hefði ferðaskrifstofurnar, borgar- og fylkisstjórana í vasa sinum. „Blessuð vertu"1, anzaði hún. „Ég vinn fyrir flokkinn, og því ætlast ég til að flokkurinn vinni fyrir mig, þegar ég þarf á að halda“. S. J. M. Frá félagsstarfi K.R.F.Í. Starf K.R.F.I. hefur verið svipað og undanfarin ár. Sér- fróðir menn hafa flutt erindi á félagsfundum um mál, er snerta hag kvenna, og umræður hafa verið um málin. Má nefna: Um fóstruskólann, um barnaheimili, samvinna karla og kvenna, um heimili fyrir einstæðar mæður, mál- efni K.R.F.f. kynnt ungum konum, frásögn af erlendum fundum, um krabbamein i legi, konan í atvinnulifinu og endurþjálfun. Tillögur og ályktanir voru gerðar um mörg málin og send viðkomandi yfirvöldum. Ýmsar þingsályktunartillögur og frumvörp frá Alþingi hafa verið ræddar, og sendar um- sagnir til Aljiingis jiar að iútandi, svo sem um hámarks- vinnutima barna, að fóstruskólinn sé tekinn inn í fræðslu- kerfið, mælt með fæðingarorlofi, um vernd barna og ung- linga. Send var áskorun til borgarstjórnar Reykjavikur, að staðið verði við áætlun um byggingu barna- og dagheimila á árunum 1964—68. Farið var á fund borgarstjóra Reykjavíkur með tillögu um heimili fyrir einstæðar mæður. Aðalfundur K.R.F.f. var haldinn 23. febr. síðastliðinn. Fór fram kosning varaformanns og stjórnar. Þessar konur hlutu kosningu: Varaformaður Guðný Helgadóttir og í stjóm Lóa Kristjánsdóttir, Þóra Einarsdóttir og Sigurveig Guð- mundsdttir. Merkjasala Menningar- og minningarsjóðs kvenna var lialdin og gerði Svafa Þorleifsdóttir grein fyrir reikning- um sjóðsins. Othlutað hafði verið samanlagt 53 jiús. kr., en 14 konur hlutu styrk. Félagið sá um útvarpsdagskrá tvisvar á árinu; önnur var fyrir 19. júni og hin vegna Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Fundir voru haldnir með kvenréttindanefndum í Reykja- vik og Hafnarfirði. Anna Sigurðardóttir flutti erindi á vegum K.R.F.Í. hjá Félagi sjálfstæðiskvenna í Árnessýslu. Var fundurinn hald- inn i Hveragerði (A. S. hafði flutt jietta erindi á félags- fundi K.F.R.l. i janúar 1964). Erindið heitir: Jafnrétti— misrétti. 19. júni hófið fór vel fram og var fjölsótt. Voru þar vel- flestir fulltrúar 11. landsfundar K.R.F.Í. auk annarra kvenna. Vms öskemmtiatriði voru, söngur, upplestur og fleira. 1 hófinu var fyrrverandi formaður félagsins, Sigriður J. Magn- ússon, kjörin heiðursfélagi K.R.F.Í., og var henni afhent skjal þar að lútandi, þar sem þökkuð voru frábær störf hennar í 17 ár sem formaður K.F.R.l. Núverandi stjórn K.R.F.L: Lára Sigurbjörnsdóttir, Guðný Helgadóttir, Lóa Kristjánsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Sigurveig Guðmundsdóttir, Guðbjörg Brynjlfsdóttir, Guðrún Heiðberg, Kristín Sigurðardóttir, Valgerður Gisladóttir. 1 9. JÚNÍ 39

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.