19. júní - 19.06.1971, Page 5
AuSur AuSuns, dómsmálaráSherra,
fyrsta kona, sem gegnir ráSherraembætti á Islandi.
Kona
ráðherra á
tslandi
Loks hefur sá langþráði draumur íslenzkra
kvenna rœtzt, að kona yrði rátðherra.
Auður Auðuns tók sœti í ríkisstjórn Jóhanns
Hafsteins síðast liðið haust og fer með dóms-
og kirkjumál. Frú Auður er fœdd á Isafirði 18.
febrúar 1911.
Auður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum
i Reylcjavik vorið 1929 með fyrstu einkunn og
embœttisprófi við Háskóla Islands 11. júní 1935,
einnig með fyrstu einkunn, og er hún fyrsta kona,
sem lokið hefur embœttisprófi í lögfrœði hér-
lendis. Hún tók sœti í bœjarstjórn Reykjavíkur
árið 191f6 og sœti í bœjarráði árið 1952, og varð
forseti bœjarstjórnar 195lf til 1970. Hún var
borgarstjóri Reykjavikur i eitt ár 1959—1960.
Auður var kosin alþingismaður fyrir Reykvik-
inga árið 1959 og hefur átt sœti á Alþingi síðan.
Auk þess hefur 1vún gegnt fjölmörgum nefnda-
og trúnaðarstörfum.
Ráðherra hefur, þrátt fyrir eðlilega mikiar
annir, sýnt blaðinu þá velvild að leyfa þvi að
birta viðtal við sig.
19. JÚNÍ
3