19. júní - 19.06.1971, Qupperneq 27
StarfsliO KrabbameinsleitarstöSvar B í uppliafi, lœknar, hjúkrunarkonur og rannsóknarstúlkur: Helga Þórarinsdóttir,
Alma Þórarinsson, Ölafur Jensson, Valgeröur Bergsdóttir, Hertlia Jónsdóttir og Guörún Broddadóttir.
Frumusýni er tekið með tréspaða bæði af leg-
hálsinum og einnig efst úr leggöngum. Sýnið er
samstundis strokið á gler, hert, síðan litað og
skoðað í smásjá. Að lokum fer fram almenn rann-
sókn á kynfærum kvenna, þreifing og skoðun.
Þessi rannsókn er algjörlega sársaukalaus.
Hvað viltu segja um niðurstöður frumugrein-
ingar?
Rannsóknaraðferð þessi er talsvert nákvæm,
og með henni má finna um 90% tilfella af
krabbameini í leghálsi. Aðferðin er hins vegar
ekki eins nákvæm, þegar um krabbamein í leg-
bol er að ræða. Þegar þessari rannsóknaraðferð
er beitt, finnst meinið oftast, áður en það fer að
valda einkennum, og er það að sjálfsögðu æski-
legast. Samt sem áður er einnig mikilvægt að
greina krabbamein, eftir að sjúkdómseinkenni
eru komin fram. Yfirumsjón með frumugrein-
ingu hefur Ölafur Jensson, læknir.
Sláptir ekki miklu máli_, að brugðizt sé fljótt
við, ef vart verður krábbameins?
Með því að greina staðbundið krabbamein og
sjá um með viðeigandi meðferð og eftirliti, að
það sé læknað, er reynt að koma í veg fyrir, að
staðbundið krabbamein verði ífarandi. Því fyrr
sem meðferð er hafin, þeim mun meiri líkui' ei’u
á fullkominni lækningu.
Hafa konur brugðizt vel við þeim bréfum, sem
þeim hafa verið send?
Aðsókn hefur verið ágæt, sérstaklega úti á
landi, þar sem mæting hefur verið allt að
90%. Rannsakaðar hafa verið í fyrsta skipti á
6 ái’um 29.710 konur í aldursflokknum 25—64
ára eða 77% af heildai’fjölda þessara árganga,
35% hafa verið rannsakaðar í annað skipti og
10% i þriðja skipti. Einnig hafa nokkur hundi’-
uð konur utan þessara aldursflokka komið í rann-
sókn til stöðvarinar. Alls höfum við skoðað
53.000 frumusýni.
Hefur fundizt krábbamein hjá mörgum konum,
sem rannsákaðar hafa verið?
Legkrabbamein er tiltölulega sjaldgæfara hér
á landi en víðast annai’s staðar. Hins vegar hafa
nýlegar athuganir leitt í Ijós, að sjúkdómstilfell-
um fer stöðugt fjölgandi. Þessi ár hafa fundizt
224 tilfelli af staðbundnu krabbameini í leghálsi
19. JÚNÍ
25