19. júní - 19.06.1971, Page 38
„Mamma, ég lofaði að
skila bókinni á morgun
og ég er ekki nærri bú-
in með hana. Af hverju
getur Ingi ekki klárað
þetta? Af hverju má
hann alltaf leika sér?“
Úr starfsfræði. Ríkisút-
gáfa námsbóka. „Sam-
kvæmt manntalsskýrsl-
unni ganga um 10%
stúlkna aldrei í hjóna-
band. Þær, sem ekki
giftast, verða auðvitað
að vinna fyrir sér á
annan hátt.“
Ekki
Inga: Hugsið ykkur bara, stelpur, heilar 90% sem vinna fyrir sér með
því að ganga í hjónaband ... en segiði mér, af hverju útvegar skólinn
manni þá ekki starfsfræðsluviku í þessu?
Hugsið ykkur bara, ef skólinn útvegaði manni eiginmann í heila viku
og maður þyrfti ekki að gera annað alla starfsfræðsluvikuna en spranga
um giftur.
Iggý: Ég panta hann Óla Sæ.
Ingileif: Og ég læt skólann útvega mér hann Kidda.
Inga: Og ég ... nei, þetta er ekki hægt.
Hinar: Af hverju ekki?
Inga: Af því strákarnir eru allir að gera eitthvað annað starfsfræðslu-
vikuna. Það stendur hvergi, að þetta sé starf fyrir þá.
36
19. Jtjní