19. júní


19. júní - 19.06.1971, Síða 42

19. júní - 19.06.1971, Síða 42
Eð!i§læg atvinnugreiii? Það vakti nokkra furðu í vetur, þegar komið var í Lindarbæ til að sjá leikrit Svövu Jakobs- dóttur, Hvað er í blýhólknum?, að þar voru fyr- ir menn, sem réttu leikhúsgestum blað með spurn- ingum og óskuðu svara. Hér voru á ferðinni ungir menn úr þjóðfélags- fræðideild Háskóla íslands að vinna að því í sambandi við námsgrein sína að kanna, hver sá hópur væri, sem kæmi til að sjá leikritið, svo og að kanna hug leikhúsgesta til ýmissa mála. 19. júní fannst þarna um forvitnilega könnun að ræða og fór þess á leit, að fá að kynnast svörum við níundu spurningu, sem hljóðaði svor Teljið þér, að konum sé fremur en körlum eðlis- lægt að stunda heimilisstörf? Þeir ungu menn, Eiríkur Brynjólfsson, Jón Kristjánsson og Pétur Þorsteinsson, hafa góðfús- lega leyft 19. júní að skyggnast i það, sem könn- un á þessari spurningu leiddi í Ijós. Menn brugðust vel við könnuninni í heild, og yfir 90% áhorfenda skiluðu svörum. Þessi sér- staka spurning kom og vel til skila og 95% af þátttakendum létu í té svör við henni. Konur voru venju fremur margar í hlutfalli við karia á þessum sýningum eða tveir af hverj- um þrem. Annars hefur Þorbjörn Broddason, lektor, kannað skiptingu leikhúsgesta í Reykja- vík, og eru konur þar frekar í meiri hluta, ólíkt því, sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Það, að konur sóttu þetta leikrit óvenjumikið, stafar trú- lega af því, að efni þess fjallar um stöðu kon- unnar í þjóðfélaginu. Margt athyglisvert kemur fram, þegar rýnt er í úrslit könnunarinar gagnvart þessari sérstöku spurningu. Þó er það, sem ánægjulegasta undrun vekur, að ríflega helmingur allra þátttakenda tel- ur konum ekki eðlislægara að vera við heimilis- störf en körlum. Tel ég, að þarna sé um hugar- farsbreytingu að ræða og fullyrði, að slíka út- komu hefði vart verið hægt að fá fyrir svo sem tug ára. Við, sem teljum okkur vinna að aukn- um skilningi á því, að hæfileikar kvenna njóti sín sums staðar betur en á þröngu sviði heim- ilisins, megum vel við una, því hér stefnir hugur fólks í rétta átt. Sé litið á svör kvenna, eru þær í heild fleiri, sem telja konum ekki eðlislægara en körlum að vinna hússtörf, og hallast enn fleiri ógiftar en giftar á þá sveif. Er talið líklegt, að í ógifta hópn- um séu flestar þær ungu og er þá vel, því að þeirra er framtíðin. Það er ef til vill ekki nema eðliiegt, að karl- menn stríði enn „gegn straumi aldar“. Þeir eru aðeins fleiri, sem telja eldhússtörfin konum eðlis- lægari en körlum. Eftir stöðuhópum eru úrslit þau, að í hæsta tekjuflokki eru fleiri, sem svara jái en neii og sama er að segja um húsmæður. Ætli það væri fjarri lagi að álykta, að í tekjuháu flokkunum séu fleiri karlmenn en konur og að húsmæður séu bundnar uppeldi og vana. Af stöðuhópum er það athyglisverðast, að nemendur, sem taldir eru fullur fjórðungur svar- enda, eru tveir af hverjum þremur, sem telja konum hússtörfin ekki eðlislægari. Ennfremur eru nokkuð skörp skil milli aldursflokka. Fólk innan við þrítugt neitar þvi, að tveim þriðju, að konunnar hlutverk sé heima, um þrítugt hallar á hina sveifina, og eftir fimmtugt eru menn fast- ari í sinni barnatrú um hlutverk kvenna. Ég vil þakka þessum ungu mönnum fyrir skemmtilega og nýstárlega könnun og tel hana gefa betri raun en búast mætti við. En við, sem neitum því, að hneigð og hæfileikar til starfa séu bundin við kyn, megum segja með skáldinu: ,,Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðar vegi“. V. B. 40 19. Jtjní

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.