19. júní - 19.06.1973, Page 10
Menn þarfnast þess að hafa ein-
hvem stað, þar sem þeir finna til
öryggiskenndar og þeim líður vel
hæði til líkama og sálar.
Þegar hjón eignast börn, þá sjá
þau eðlilega um viðhald og endur-
nýjun kynstofnsins, sem er að vísu
nauðsynlegt, en þau verða að gera
sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem
fylgir því að ala upp böm. Þau
gera sig ábyrg fvrir þessum ósjálf-
bjarga einstaklingum, sem þau
hafa eignazt saman, og þeim ber
skylda til að annast uppeldi þeirra.
I A'firlýsingu. sem samþykkt var
á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í nóvember 1959 um réttindi
barnsins segir, að sérhverju bami
beri „að eiga hamingjuríka
bernsku“ og til að ná „fullum og
•samstilltum þroska persónuleikans
þarfnast bamið ástar og skilnings.
Þegar þess er kostur, eiga foreldrar
að hafa á hendi umsjá og ábyrgð
á því í uppvextinum, og hverju
sem fram vindur. á það að vaxa
upp i umhverfi, þar sem em fyrir
hendi blíða og siðferðilegt og efna-
hagslegt öryggi“. (Réttindi bams-
ins, Samvinnan, 63. árg. 4., 1969).
Margir álíta, að þolanlegt hús-
urt’ði, viðunandi staður og sæmi-
legur efnahagur sé nægur gmnd-
völlur fyrir fjölskyldu. Vissulega
þurfa þessar ytri aðstæður að vera
fyrir hendi. En aðalatriðið, eða
g rundvallarhlutverk fj ölskyldunn -
ar er uppeldi bamanna. Það er
engin algild uppeldisregla, og upp-
eldisstefnur em mismunandi, en
bó eiga þær allar að fela i sér á-
kveðnar grundvallarreglur, svo
sem að stuðla að fremsta megni að
andlegu og likamlegu heilbrigði og
jæoska barna og hafa mótandi á-
hrif á hegðun og skaphöfn bama,
hreinlega móta börn sem félags-
verur. Þetta hefur vissulega farið
fjölskyldum mjög mismunandi úr
liendi. Og þess vegna em einstak-
lingar mjög misjafnlega undir það
búnir að gegna skyldum sinum
sem þjóðfélagsþegnar.
Heimilið er heimur barna, þang-
að til þau fara í skóla, hvort sem
fyrsti skóli þeirra verður leikskóli
eða barnaskóli. A heimilinu eiga
þau að fá alla þá tilsögn, sem þau
þarfnast, og vera virt sem ein-
staklingar með sínar eigin tilfinn-
ingar. Heimilið á að veita þeim
það öryggi og þá vernd, sem þau
þarfnast, en fyrst og fremst ástúð
og umliyggju. Börn, sem alin em
upp án allrar ástar og umhyggju,
bíða sálarlegt og líkamlegt tjón og
eru miklu seinni til að þroska en
önnur börn.
Foreldmm ber skylda til að upp-
fræða börn sín í kristinni trú,
ef þeir á annað borð hafa látið
skíra þau. Margir foreldrar veigra
sér við þessari skyldu nú á dögum,
svo að bömin fara, því miður,
mörg á mis við uppfræðslu í krist-
inni trú. Og ef til vill gætu kirkjur
landsins komið foreldrum til hjálp-
ar með því að halda námskeið fyrir
foreldra um trúarlegt uppeldi
barna. Og allir vita, hve spuml
böm geta verið En einmitt trúin
á Jesúm Krist er það eina, sem
gefur lífinu raunvemlegt gildi,
og að íá að byggja líf sitt á honum
er gmndvöllur, sem aldrei bregzt.
Hlutverk fjölskyldunnar er ekki
eingöngu uppeldi barna. Það verð-
ur að draga björg í bú. En hver
á að vera fyrirvinna fjölskyldunn-
ar? Faðirinn eingöngu, eða móðir-
in? Er hlutverk móður eingöngu
innan veggja heimilisins? Á hún
að sjá um börnin, kaupa inn í
búið, skúra og þvo þvott? Ber
henni að fórna margra ára mennt-
un og vera eingöngu á heimilinu,
þar sem hæfileikar hennar og á-
hugi njóta sín ef til vill alls ekki?
Ber föðurnum engin skylda til að
koma nálaígt heimilisverkum eða
barnagæzlu? Þessar spumingar og
margar aðrar í svipuðum dúr hafa
mikið verið ræddar undanfarið.
Hvert er hlutverk konunnar innan
fjölskyidunnar?
Konan þarf alls ekki að bregðast
hlutverki sínu gagnvart bömum
sínum, þótt hún vinni úti hluta úr
degi. Þegar barri er orðið eins til
tveggja ára, á það ekki að bíða
neitt tjón, þó svo, að það þurfi að
fara í leikskóla. Börnin hafa bara
gott af því og þmskast sem félags-
vemr.
Konuin ber skvlda til að standa
sig sem mæður. Sé því þannig
farið að vinna þeirra utan heimilis
aflri þeim frá að sinna móður-
hlutverki sínu, þá álít ég, að kon-
um beri að láta vinnuna utan
heimilis vikja, ef kringumstæður
leyfa.
Börnin em upprennandi kyn-
slóð þjóðfélagsins, svo að ég álit,
að þau verði að fá rétta undirstöðu
í lífinu, en rétt undirstaða verður
aðeins veitt af ástrikum og fóm-
fúsum fjölskvldum.
Astríðkr Kristinsdóttir
nemandi í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
8
19. JÚNÍ