19. júní - 19.06.1973, Page 27
skilning á því sviði. Á þroskaprófinu vorið 1970 var
Isaksskólahópurinn hærri en samanburðarhópurinn
svo marktækt var, á öðrum hópum var ekki mark-
tækur munur. Um niðurstöður könnunar á félags-
þroska hef ég ekkert sagt ennþá, vegna þess, að verið
getur, að sami spumingalisti verði lagður fyrir oftar,
og þá gætu fyrri niðurstöður óbeint haft áhrif á síðari
svör. Ýmislegt fleira kom fram, en ekki er unnt að
rekja það hér.
— Hafði ekki eitthváS af þeim börnum, sem voru
heima sex ára, hafiS lestrarruím heima hjá sér?
— Jii, og þar kom óvænt viðbót við athugunina.
Ég gat þar fengið tvo hópa til samanburðar, sam-
stæða eins og áður var greint frá; annan, sem hóf
hóf lestrarnám heima 6 ára og hinn, sem einnig var
heima, en ekki hóf lestrarnám. Eins og eðlilegt er,
var sá hópurinn, sem hóf lestramámið heima, hinum
fremri í fyrsta bekk, bæði í lestri og reikningi. Eftir
er svo að vita, hvort sá munur helzt og eins hitt, hvort
aukaverkanir, æskilegar eða óæskilegar, eiga eftir
að koma fram. Þá athugaði ég samband greindar og
þess, á hvaða aldri lestramám hefst, en það er bezt
að bíða með að birta þær niðurstöður til betri tíma.
— Hvernig er nú méS framhald könnunarinnar?
—I vor þarf ég að ná til allra barnanna eða a. m. k.
fá að vita um námsgengi þeirra í skólanum, en þar
stendur hnífurinn í kúnni. Vegna annríkis hef ég
litinn tíma sjálf i maí og þarf að ráða mér aðstoðar-
mann. Ég fékk styrk úr Vísindasjóði, 1971, og hef
sótt um aftur núna. Framundan er kostnaðarsöm
tölvuvinna o. fl.
— Nú er mikið talað um skólaþroska barna, hváð
er álit þitt á því máli?
— Skólaþroska bama má taka frá tveim hliðum,
þ. e., er barnið nógu þroskað og reiðubúið fyrir
skólann eða er skólinn nógu sveigjanlegur til að taka
við barninu á því þroskastigi, sem það er á, þegar
það verður skólaskylt? I þessu sambandi er líka til
umhugsunar, hvort kennarinn er fyrst og fremst
að kenna fagið eða kenna barninu. Þar á er regin-
munur og mikilsverðara því yngra sem bamið er.
— Hver er skoðun þín á skólagöngu 7—8 ára barna
i dreifbýli landsins?
— Kennsla 7—8 ára bama í sveitum landsins er
mikið til óleyst mál. Heimavist vill verða of mikið
álag á flest börn á þessum aldri. Sömuleiðis er það
líka mikið álag fyrir þennan aldursflokk, að aka
til og frá skóla, segjum sveitina á enda, í strjálbýlli
sveit; aksturinn verður of mikill. Hugsanlegt væri að
kennarinn kæmi til bamanna, t. d. væm 7—8 ára
böm á 4—5 bæjum í sveitinni og þá tæki kennarinn
börnin með í bifreið sinni til þess barns, sem býr
lengst í burtu og kenndi hópnum þar. Þetta gæti
e. t. v. verið annan hvorn dag. Vitað er, að margir
hreppar standa að einum skóla og eru því vegalengdir
miklar.
Það væri girnilegt til fróðleiks að halda spjalli
þessu áfram við dr. Þuríði, en látum því lokið að
sinni. Það verður fróðlegt að heyra niðurstöðumar
að rannsókninni lokinni. Það er afar mikilvægt, að
bamið fái notið sín og njóti kennslunnar sem bezt,
framtíð þess byggist að miklu leyti á því, hve vel
því vegnar í skólanum.
Að lokum óskar blaðið dr. Þuríði J. Kristjánsdóttur
allra heilla og að rannsókn hennar og starf haldi
áfram, íslenzkum bömum til velfamaðar. L. S.
Sesselja Pálsdóttir Allen, fæddist i Reykjavík, dóttir hjón-
anna Guðiúnar Stephensens, kennara, og Páls S. Pálssonar,
hæstaréttarlögmanns. Sesselja útskrifaðist úr Verzlunarskóla
íslands 1964. Á árunum 1964 til 1966 stundaði hún nám við
Sam Houston State University í Huntsville, Texas og Louisiana
State University í Baton Rouge í Louisiana. Síðan kom Sesselja
heim og starfaði á skrifstofu föður síns í tvö ár, eða þar til
hún giftist George W. Allen og fluttist þá til Bandaríkjanna.
Eiga þau hjón einn son, Spencer, tveggja ára.
Þegar ritnefnd „19. júní“ barst til eyrna, að Sesselja, sem
vinnur hjá fjárhagsstofnun, sem hefur nú tuttugu og fjórar
konur og einn karlmann í þjónustu sinni, og hefur sívaxandi
umsetningu, væri stödd hér á landi, vildi ritnefndin alls ekki
láta það tækifæri sér úr greipum ganga að kynna lesendum
sínum starfsemi þessarar stofnunar, vegna þess hve konum
er vantreyst í meðferð fjármála. Þess vegna var ákveðið að
fara þess á leit við Sesselju, að hún skrifaði grein i „19. júní“
um fjárhagsstofnun þá, sem hún vinnur hjá, og varð hún
góðfúslega við þeirri beiðni.
Konur eru
afkastameiri
en karlmenn
19. JÚNÍ
25