19. júní


19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 84

19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 84
FYRIRTIÐARSPENNA: ER LAUSNIN FUNDIN? Þjóðlíf mars '88 „Læknarnir álitu mig móðursjúka66 Guðbjörg Jóhannesdóttir segir frá píslargöngu sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig hún vann bug á veikind- um sínum. Vegna greinar í janúartölublaði Pjóölífs um liðan reykviskra kvenna fyrir tiðir, kom á daginn að fjölmörgum konum virðist reynast mjög vel að taka reglulega inn blómafrjókorn. Þær sem hafa látið til sín heyra I þessu sambandi segja að fyrirtíðaspenna, verkir og truflun á hormónastarf- semi hafi nánast horfið eftir reglulega inntöku blómafrjókorna i nokkrar vikur. Á ráöstefnu sem hérlendir dreifiaðilar HIGH DESERT blómafrjókornanna héldu á dögunum, kom stór hópur fólks og tjáöi sig um hver áhrif neyslan heföi á líkamlegt heilsu- far, andlegt þrek og úthald. Niöurstööurnar voru einkar jákvæðar og sem fyrr segir, ekki síst hjá þeim konum sem höföu átt i erfiðleikum vegna tíða. Gefum fertugri konu, Guöbjörgu Jóhannesdóttur oröiö: „Ég átti við veikindi að striða I sambandi við blæöingar. Ég var alltaf með verki fyrir blæöingar sem ég var búin aö hafa frá unglingsárum og var sagt aö þeir myndu hverfa meö barnsfæðingum og eftir því sem árin liðu. Síðan geröist þaö fyrir u.þ.b. níu árum aö ég fór aö hafa heiftarlega verki tveimur dögum áöur en blæöingum lauk og þeir jukust alltaf og stóöu yfir næstu tíu daga. Ég leitaði mér lækninga, fór til kvensjúdómalæknis, og var meira og minna inni á sjúkrahúsi eöa á stofunni hjá honum. Ég var skoðuð og síðan sett í speglun og mér var svo sagt aö þaö væru blöðrur á leginu, sem mynduöu þessa verki, og að þaö væri ósköp lítið hægt aö gera. Ég var alls ekki sátt við þessa niðurstöðu og hélt því áfram að fara til mlns kvensjúdómalæknis sem að endingu sendi mig til beinasérfræðings. Þetta var fyrir fimm árum. Þar var ég skoðuð I nokkuð langan tlma og út úr því kom að ég yrði einfaldlega að sætta mig viö þetta þangaö til ég kæmist á breytingarskeiðið. Mér var látið I té verkjalyfiö Lobac sem var afskaplega deyfandi og ég varð gjörsam- lega óvinnufær af, en ég varð að taka það inn, því annars lá ég bara öskrandi i rúminu. Ég var ennþá ósátt og missti R! trúna á lækna, því I hvert skipti sem ég kom til þeirra I vandræöum mínum fannst mér þeir álíta mig móðursjúka. Næst fór ég til svæðanuddara og byrjaði að taka inn náttúruvítamín og þannig fékk ég fljótlega bata, en aðeins tímabundið. Ég varð að vera stöðugt í svæðanuddi tvisvar I viku, ef vel átti að vera. Á þessu ímabili eignaðist ég barn, en verkirnir löguðust ekki þrátt fyrir fullyrðingar I þá átt frá læknum. Þá byrjaði ég að taka inn hormónalyf sem gerði að verkum að ég hljóp öll upp I kýlum á andliti og líkama og endaði hjá fegrunar- lækni, — ætlaði að láta skera þetta burt. Aftur fór ég til kvensjúkdómalæknisins sem benti mér á að þetta stafaði af hormónalyfjunum, svo ég hætti að taka þau. Svona gekk þetta fyrir sig, þar til svæðanuddarinn benti méráHIGH DESERT sem ég hef nú tekið inn I þrjú ár og hef haldið verkjunum niðri á þann hátt. Ég er hætt í svæðanuddi og hef aðeins fundið lítillega fyrir verkjunum ef ég er mjög þreytt og spennt, en aldrei svo ég þurfi nein verkjalyf. Nú hef ég ekki farið til kvensjúk- dómalæknis í tvö ár enda ekki haft ástæðu til.“ Fleiri konur tóku í sama streng og sögðust þess fullviss- ar, að eftir að hafa reynt án árangurs að fá bót við vanlíðan sinni vegna blæðinga, væru blómafrjókorn þaö sem dygði. Steinunn Ásmundsdóttir 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.