19. júní


19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 26

19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 26
DAGURI DAGMÖMMUSKÓLA Bíp-bfp-bíp!! Vekjaraklukkan mín tilkynnir með háværu pípi að það sé kominn dagur þó enn sé niðamyrkur úti fyrir. Reyndar hefur 8 mánaða dóttir mín verið að reyna að segja mér það sama í um hálfa klukkustund. Það er febrúar og 10 stiga frost og ég þakka mínum sæla fyrir að atvinna mín krefst þess ekki að ég þurfi að rjúka út í kuldann og myrkrið og skilja barnið eftir hjá dagmömmu. Ég er nefnilega dagmamma sjálf og þó starfið sé fremur illa launað þá hefur það ótví- ræða kosti, eins og þennan. Stundvíslega klukkan 8.30 hringir dyrabjallan og úti er 3 ára gutti í fylgd mömmu sinnar. Hún drífur hann úr útifötunum, vinkar bless og er horfin til vinnu sinnar. Guttinn heitir Erik og átti einu sinni heima í útlöndum. „Þar eru eiturslöngur" tilkynnir hann mér í hvert sinn sem hann teiknar myndir. Og á myndunum eru að sjálf- sögðu langar og hlykkjóttar slöngur, ásamt með öðru fleiru. „Núna er ég í dagmömmuskólanum," segir Erik þegar hann sest við eldhúsborðið og fylgist með mér Ijúka morgunverkun- um. Ég flýti mér að samsinna, því Stóra systir er nefnilega í alvöru ieik- skóla og ekki getur Erik verið minni maður en hún. Aftur glymur dyrabjallan, Svanur 4 ára er kominn, pabbi er kominn út á horn og vinkar þaðan. „Það er svooo kalt og það er ennþá nóttin úti“ segir stráksi og bætir svo við hálfbiðjandi: „Við skulum ekkert neitt fara á róló?“ „Nei, ekki í dag“ svara ég og flysja hann úr snjóbuxum, úlpu, trefli og húfu. „Bara þegar sólin kemur“ segir hann feginn og svo tekur hann 26 ásamt Erik á sprett inn í dótaherberg- ið, en þar mega þeir rusla til af hjart- ans lyst. Það er að segja, svo framarlega sem þeir aðstoða mig við að moka af gólf- inu upp í kassana áður en mömmurn- ar koma um hálftvöleytið. Það getur að vísu kostað nokkrar fortölur en oftast dugir að veifa litlum súkkulaði- kökum og lofa verðlaunum fyrir dug- lega stráka. Kassar og kartöflur Góða stund dunda þeir sér með leikföngin og ég heyri að Svanur skipar Erik að loka á sig „húsinu", stórum pappakassa, og svo kíkir Erik á glugg- ann sem er teiknaður á hliðina. Svo byggja þeir stóra strompa úr kubbun- um og keyra þá svo niður með bílun- um sínum með svo miklum gaura- gangi að hávaðinn gæti vakið upp dauða. Um tíuleytið koma þeir fram og fylgjast með því þegar ég dúða Katrínu, dóttur mína, ofan í vagninn fyrir morgunlúrinn. „Hann vill vera týndur" segir Svanur alvarlegur þegar ekki sést lengur í barnið bak við sæng- ur og teppi. Svo ýta þeir vagninum í sameiningu út á pall og skella aftur hurðinni á eftir. „Hún“ leiðrétti ég Svan, sem end- urtekur með áherslu um leið: „HÚN“. ,,Ég er soldið leiður“ til- kynnir Erik án þess að meina það. Og ég svara, ekki í fyrsta sinn: „Þú þarft ekki að segja að þú sért leiður. Segðu bara: — mig langar í sögu“ botnar hann. „Alveg rétt og finnum nú bók“ segi ég. „VEI!“ góla þeir báðir eins og ég lesi ekki sögu fyrir þá hvern einasta dag. Smástund er deilt um hvort lesa eigi Herrasögu eða Smjattarasögu í dag en fljótlega sætt- ast þeir á eina af þeim síðarnefndu, söguna um Jónu jarðarber sem teikn- aði mynd af Kalla kartöflu. Reyndar kunna þeir söguna orðið utanbókar og það eina sem ég fæ að gera er að fletta og samsinna þegar þeir útskýra óðamála hvað er að ger- ast á myndunum. Þegar sagan er búin fá þeir liti og blöð og teikna sjálfir kartöflur í tonnatali. Svo eru lista- verkin fest upp á vegg, sem er vel skreyttur fyrir með myndum af for- eldrum, systkinum og að sjálfsögðu eiturslöngum. „Ég gleymdi alveg Óla prik, gvu- minnalmáttugurekkieinastaorð“ seg- ir Svanur í einni bunu og bætir Óla í snarhasti á blaðið. „Aldeilishissa" segir Erik og teiknar líka einn Óla fyrir ofan kartöflusekkina sína. Bara boröikartöflur Því næst „trölla" þeir svolitla stund með marglitu trölladeigi og ég fer að undirbúa hádegis- matinn. Erik kemur fram í eldhús og fylgist með mér setja kart- öflur í pott. „Þetta eru sko ekki Kallar kartöflur, þetta eru bara borðikar- töflur" segir hann ákveðinn. „Syngj- um núna köngulóna" segir hann svo þegar ýsan er komin í pott og farin að sjóða. Við syngjum um Palla litla könguló nokkrum sinnum þar til hann er búinn að fá nóg og tilkynnir: „Ekki meira.“ Hann situr þarna hugsandi og fylg- ist með mér stússast yfir pottunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.