19. júní


19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 38

19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 38
MARGVERÐLAUVAÐIIR Danmörk 1982 Gullverðlaun Island 1982 Gullverðlaun Uíinniörk 1985 Gullverðlaun > íslarid 1985 Gullverðlaun Bandaríkin 1986 * 98 stig af 100 best. Þessi bábylja á ekki við nein rök að styðjast og er ekki annað en sjálfs- réttlæting samfélags sem bjó, og býr enn, illa að börnum sínum. í dag búa börn við aðstæður sem fullorðið fólk myndi aldrei láta bjóða sér. Mörg börn á dagvistaraldri eru í tveimur dagvistum á degi hverjum og börn á skólaaldri þurfa daglega að mæta oft- ar en einu sinni í skólann. Myndum við sætta okkur við það, jafnvel svo árum skipti, að þeytast á milli tveggja vinnustaða eða að vera send heim af vinnustað á miðjum degi til þess eins að koma þangað aftur síðar um dag- inn? Svarið við þessum spurningum liggur í augum uppi. Það er almennt viðurkennt að allir eigi rétt á menntun án tillits til efna- hags og aðstæðna. I sinni upprunaleg- ustu merkingu þýðir orðið menntun „að gera að manni“. Sá ferill hefst strax við fæðingu og því er uppeldi í raun ekki annað en menntun ungra barna. Gæði þeirrar menntunar verða ekki mikil ef henni er einvörð- ungu sinnt af foreldrum sem jafn- framt þurfa að standa vinnumarkaðn- um skil á orku sinni. Mikilvægasta hlutverk heimilanna er að sjá börnum fyrir þeim nánu tilfinningatengslum, þeirri ást og því öryggi sem þau þurfa á að halda. En útþrá sinni, félagsþörf og fróðleiksfýsn fá þau ekki svalað innan fjögurra veggja í fámennri kjarnafjölskyldu. Að einskorða upp- eldi/menntun ungra barna við heimil- in er því að sníða þeim þrengri stakk en þeim hæfir. Það eru leifar liðins tíma. Rétturinn til menntunar á sér engin aldurstakmörk og því þarf sam- félagið, þ.e. við sem byggjum þetta land, að tryggja það nú þegar að hann sé virtur þó einstaklingarnir sem hlut eiga að máli séu undir 6 ára aldri. í svari mínu við þeim spurningum sem beint var til mín hef ég kosið að horfa fremur á skyldur samfélagsins en foreldra, gagnvart uppeldi og um- önnun barna. Astæðan er sú, að ég tel að um það ríki nokkuð almenn sam- staða að skyldur foreldra séu ríkar en hins vegar séu víða miklar efasemdir um ábyrgð samfélagsins. Virðast margir líta svo á að með kröfum um ábyrgð samfélagsins á aðstæðum og uppeldi barna sé vegið að frelsi og forræði foreldra. Að mínu mati er þetta fjarri öllu lagi enda lít ég svo á að samfélagið gegni skyldum sínum við börn mun verr en við fullorðna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.