19. júní


19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 71

19. júní - 19.06.1988, Blaðsíða 71
Álfrún Gunnlaugsdóttir. List er orðin neysla, ekki sjóður. munu þó einkum vera hugvísindin sem verða fyrir barðinu á þessum við- horfum, enda gefa þau ekki af sér beinharðan gróða. Þetta sést meðal annars á því að konur eru í yfirgnæf- andi meirihluta í heimspekideild. — Eru þær þá meiri hugsjóna- menn í starfsvali en karlmennirnir? Ég held að þær séu meiri hugsjóna-. menn hvað þetta atriði varðar, en þetta gamla á svo við um piltana, þeir geta ekki leyft sér að fara í óarðbært nám. í rauninni segir fjöldi kvenna í heimspekideild ekki svo mikið, því þær væru kannski jafn margar í deild- inni þó að þessi stefna væri ekki uppi. Hitt segir meira að piltarnir eru guf- aðir upp. Ogekki ósennilegt að kven- fólkið muni gufa upp líka. Starf hugans er ekki eins hátt skrif- að og önnur störf, og það kemur með- al annars fram í fjárveitingum til hug- vísinda og sköpunar, — og reyndar má víðar sjá þess merki en í háskólan- um. Maður þarf ekki nema koma í Þjóðleikhúsið til að sjá lýsandi dæmi um þetta. Niðurníðslan á öllu þar er augljós, það virðist sem mönnum eigi ekki einu sinni að líða vel á stað þar sent listræn tjáning fer fram. Margir virðast vera farnir að líta á menningu sem stundarfyrirbrigði, eins og ekki sé verið að skapa verðmæti til lengri tíma, heldur sé þetta aðeins augna- bliksgaman. Þetta er náttúrlega allt annað viðhorf til menningar og lista en var. List erorðin neysla, ekki sjóð- ur sem menn sækja til, til að auðga sjálfa sig og aðra. List er orðin neyslu- vara og ætlast er til að menn taki við henni sem þolendur, þekkingarleitin sem tengist henni virðist eftir öllum sólarmerkjum að dæma vera dottin upp fyrir. — Hvernig gengur þér að sameina þína sköpun og þekkingarleit? Er ekki erfitt að sameina bókmennta- fræðinginn og rithöfundinn? Nei, þetta fer ágætlega saman, að því leyti að ég er alltaf að hugsa um bækur og bókmenntir. Auðvitað er þetta tvennt ólíkt, en samt tengt, því að í báðum tilvikum er um að ræða bækur. Ég held að það væri erfiðara að samræma hvort tveggja ef þetta væri gjörólík vinna. Ég hef kannski ekki mikinn tíma til að skrifa á vet- urna en ég get velt hlutunum fyrir mér, og reyni líka að skrifa eitthvað til að missa ekki „tengslin", jafnvel þótt ég noti það svo ekki. Mér finnst mikilvægt að halda ímyndunaraflinu gangandi, enda heki ég að flestir lifi meira á því en þeir kannski gera sér grein fyrir. — Þú átt ekki á hættu að fara að greina eigin verk á meðan þú ert með þau í smíðum? Það dettur mér ekki í hug að gera, maður skapar innan frá, en ekki utan frá. Hinsvegar hef ég ekki hugrekki til að lesa textann aftur þegar ég er búin að setja endapunktinn og ganga frá próförkum, líklega vegna þess að ég er hrædd um að þá fari ég að greina verkið. Og kannaðist jafnvel ekki við það! Menningin er ekki forngripur Rithöfundurinn og bók- menntafræðingurinn geta kannski virkað hvetjandi hvor á annan? Já, ég held það. Þegar ég fjalla um bókmenntir er ég auðvitað að reyna að ná tökum á því sem aðrir hafa skapað, og sé um leið hvernig þeir hafa leyst ýmsa hluti. Höfundar læra mest af öðrum höfundum, og ég held að þeir hafi flestir lagst í verk ann- arra. Þá á ég ekki við að þeir líki eftir því sem aðrir hafa gert, heldur að þeir læri af því að skoða hvernig aðrir höf- undar hafa unnið, og geti svo beitt þeirri þekkingu til að skapa sjálfstætt og með því lagt sitt af mörkum til bókmenntanna og hefðarinnar. Sem betur fer á mannkynið langa bók- menntahefð, og þetta er ein aðferðin við að varðveita hana, og auka við hana um leið. Það er oft talað urn að það þurfi að varðveita menninguna. En hún verður ekki varðveitt með öðrum hætti en þeim að láta hana lifa, sækja alltaf til hennar. Það má sem sagt ekki varðveita hana sem ein- hvern forngrip, við verðum að taka sömu bækurnar upp aftur og aftur, lesa þær og hugleiða, öðruvísi lifa þær ekki. Þannig er fræðistarf líka sköpun, en ekki andstæða hennar. Það er sköpun með öðrum hætti, en gengur ekki þvert á bókmenntirnar heldur á sinn þátt í að halda lífi í þeim. Og til að verk haldi áfram að lifa, getur milliganga fræðimanna verið nauð- synleg. Það er til lítils að varðveita handrit í Stofnun Arna Magnússonar ef enginn er til að fjalla um þau eða gefa þau út. Ég er til dæmis efins um að við getum skilið miðaldabók- menntir á sama hátt og fólk á þessu tímabili gerði, hins vegar geta þær orðið lifandi á annan hátt og við notið þeirra, en þurfum til þess, oftar en ekki, aðstoð manna sent eru ötulir við að finna nýjar leiðir og aðferðir til að nálgast þessi verk. Þannig verða þau „síung“. í þessum efnum er ekki til neinn einn sannleikur. Mér hefur skilist að vísindum sé ætlað að finna „sannleika". Það á að minnsta kosti ekki við um bókmenntir. Líf þeirra er undir því komið að við endurnýjum þær og jafnvel endursköpum. Án les- enda, — og þar með eru fræðimenn taldir, — eru þær naumast til. Höf- undurinn hefur ekki seinasta orðið, heldur verkið sjálft í margbreytileik sínum. Og verkið eitt skiptir máli, hvort sem það heyrir fornöldinni til eða nútímanum. 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.