19. júní - 19.06.1991, Side 8
Broshýr sendihcrra tilbúinn aö fara á fund
konungs mcð trúnaðarbrcf sitt.
Að mörgu cr að hyggja áður cn trúnaðarbrcf cr afhcnt.
spurningaþætti framhald-
skóla í sjónvarpi í vor voru
keppendur beðnir að nefna
nöfn nokkurra karla og kvenna í
myndspurningu. Ein myndanna
sýndi brosandi andlit Sigríðar Snæv-
arr sem skömmu áður hafði birst í
sjónvarpsáhorfendum í fréttum. Rík-
issjónvarpið sýndi fréttapistil, sem
sænska sjónvarpið gerði, um athöfn-
ina þegar Sigríður afhcnti Svíakon-
ungi trúnaðarbréf sitt í konungshöll-
inni í Stokkhólmi.
Sigríður hefur verið í utanríkis-
þjónustunni síðan í október árið 1978
þegar hún var ráðin sem fulltrúi við
Utanríkisráðuneytið í Reykjavík.
Nokkrum mánuðum síðar, eða nánar
tiltekið í júní 1979, fór hún til
Moskvu þar sem hún starfaði sem
sendiráðsritari með fullri skipan í það
starf frá 1. janúar, 1980. Síðan hefur
leið hennar legið víða og um skeið
starfaði hún hjá Evrópuráðinu. Árið
1984 var Sigríður skipuð í embætti
sendiráðunauts og árið 1988 var hún
skipuð sendifulltrúi. Hún er stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík og
lærði síðan tungumál, hagfræði og
alþjóðasamskipti. Sigríður er mikil
tungumálakona og talar norsku,
dönsku, sænsku, ensku, þýsku og ít-
ölsku.
Aldagömul hefð
firleitt er mikil viðhöfn þegar
nýir sendiherrar afhenda
trúnaðarbréf sín á erlendri
grund en formsatriðin eru nokkuð
mismunandi og oft viðameiri þegar
um er að ræða konungsríki eins og
Svíþjóð. Dagurinn 22. febrúar, þrem-
ur vikum eftir skipunina í embætti
sendiherra íslands í Svíþjóð, hófst
snemma í lífi Sigríðar Snævarr því
að þann dag afhenti hún trúnaðar-
bréf sitt Karli Gústavi Svíakonungi.
Athöfnin við afhendingu trúnaðar-
bréfa sendiherra í Svíþjóð er sögð
vera ein elsta hefðin í konungshöll-
inni og má nefna sem dæmi að nýr
sendiherra er ávallt sóttur og ekið til
hallarinnar í gömlum glæsilegum
hestvagni.
Ástæðan fyrir því að sænska sjón-
varpið fór þess á leit við Sigríði að
fá að fylgja henni frá upphafi þessa
dags í lífi hennar er sú að sænska
hirðin ákvað að gerð yrði mynd um
formsatriðin við afhendingu trúnað-
arbréfa til þess að kynna þessa al-
dagömlu hefð. Sigríður talar sænsku
r
8