19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 49
Margar konur forðast
mjólkurdrykki
Hvort sem konur eru ungar eða
aldnar, heimavinnandi eða
útivinnandi, eru helstu vankantar á
mataræði þeirra gjarnan af nokkuð
svipuðum toga. Sérstaklega er áber-
andi að margar konur virðast forðast
mjólkurdrykki eins og heitan eldinn
með þeim afleiðingum að minna er
af kalki í fæðu þeirra en æskilegt get-
ur talist. Hvorki meira né minna en
fjórðungur íslenskra kvenna fær innan
við ráðlagðan skammt af kalki dag-
lega og það jafnvel þótt ostur og
ýmis mjólkurmatur sé alla jafna vin-
sæl fæða hér landi. Ríflegt kalk er
mikilvægt fyrir konur á öllum aldri,
því beinþynning gerir miklu fremur
vart við sig meðal kvenna en karla
og aukast líkur á beinþynningu enn
frekar sé kalkið af skornum skammti.
Eitt glas af léttmjólk eða undanrennu
á hverjum degi er auðveldasta og um
leið heilsusamlegasta leiðin til að bæta
kalki við fæðuna, auk þess sem mjólk-
in veitir auðvitað önnur mikilvæg
næringarefni en kalk.
Eitt er það sem konur eru mun slak-
ari við en karlar, en það er lýsið.
Rétt eins og með mjólkina þá er lýsið
ekki aðeins hollt fyrir börn heldur
einnig þá fullorðnu, ekki síst konur,
þar sem D-vítamínið í lýsinu er nauð-
synlegt fyrir heilbrigði beina. Þær
konur, sem ekki geta hugsað sér að
taka lýsi, geta í þess stað tekið fjölvít-
amín eða lýsisbelgi, að öðrum kosti
fá þær hreinlega ekki það D-vítamín,
sem æskilegt getur talist í þessu norð-
•æga landi okkar, því að flest venjuleg
fæða veitir mjög lítið af D-vítamíni.
f'að er jafn mikið fitumat>n í einu vinarbrauði og
atta hóflcgum smurðum brauðsnciðum.
Of lítil brauðneysla
að kemur cf til vill mörgum á
óvart að íslendingar, ekki síst
konur, borða óvenju lítið af brauði
úorið saman við flestar þjóðir Evr-
°PU. Danir borða til dæmis tvisvar
sinnum meira brauð en íslendingar
og svipaða sögu er að segja um aðra
Norðurlandabúa. íslenskar konur
borða að jafnaði ekki nema þrjár
brauðsneiðar á dag sem er álíka magn
og ráðlagt er í algengu megrunar-
fæði. Þessi litla brauðneysla er að
mörgu leyti bagaleg því að gott brauð,
rétt eins og annar kornmatur, er ein-
hver mikilvægasti járngjafi í fæðunni,
auk þess sem það veitir meira af trefja-
efnum en nokkur önnur fæða. Járn
er konum sérstaklega mikilvægt því
vegna tíðablæðinga er járnþörf þeirra
mun meiri en karla og því gerir járn-
skortur helst vart við sig meðal
kvenna á barneignaraldri með tilheyr-
andi blóðleysi, þreytu og sleni. Flestir
vita að kjöt og slátur eru góðir járn-
gjafar en hitt vita færri að heilhveiti-
brauð, rúgbrauð og flest morgunverð-
arkorn eru enn ríkari afjárni en kjöt.
Meira brauð og meiri mjólk! Er
boðskapurinn ef til vill sá að setja ís-
lenskar konur í allsherjar fitun? Svo
mikið er víst að niðurstaðan yrði eitt-
hvað á þann veg ef ekki kæmi annað
til. Ekkert slíkt vakir þó fyrir hollustu-
postulanum heldur miklu fremur hitt
að hvetja fólk til að borða oftar brauð
í staðinn fyrir kökur og kex og það,
sem ekki er minna um vert, að smyrja
brauðið sitt sparlegar. íslendingar
hafa blátt áfram lítið rúm fyrir brauð
í sínu daglega fæði vegna þess að þeir
setja svo mikið af fitu, smjöri, smjör-
líki, majonessalati, osti og kæfu á
brauðið að hver sneið margfaldast að
orkugildi. Brauðmáltíðir okkar, jafn-
vel morgunverðurinn, verða þar af
leiðandi fituríkasta máltíð dagsins og
þar vegur smurningin langþyngst. Ef
við smyrjum brauðið minna fækkar
hitaeiningunum í hverri sneið það
mikið að brauðsneiðarnar geta orðið
fleiri og máltíðin þar með auðugri af
bætiefnum og trefjaefnum.
Eitt af því, sem könnunin leiddi í
Ijós var að ungt fólk, sem stundar ein-
hverja líkamsrækt að staðaldri, borð-
ar fituminna og hollara fæði en aðrir,
en reykingamenn á miðjum aldri
borða aftur á móti feitasta matinn.
Hollt mataræði er greinilega hluti af
heilbrigðum lífsstíl, lífsmáta sem við
ættum öll að geta tileinkað okkur að
einhverju leyti. Margir virðast halda
að hollusta sé fólgin í einhvers konar
sjálfspyntingum og mcinlætalifnaði.
Sem betur fer er það á miklum mis-
skilningi byggt. Ef til vill er hollusta
ekki síst fólgin í því að njóta og kunna
að meta hið góða í lífinu án þess að
misbjóða líkamanum.
L
Í einu fimintíu !>raninia súkkulaðistykki cru jafn
niarf>ar hitacininf>ar of> í skál af poppkorni, cinu
cpli og cinni hóflcga smurðri brauðsncið. Valið cr
augljóst!
49