19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 17

19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 17
Afleiðingar vændis geta verið lífshættulegar! Eftir: Hrafnhildi Huld Smáradóttur SÖLUVARA? Er yfirskrift auglýsingaherferðar Stígamóta sem lagt var upp í með það fyrir aug- um að vekja okkur til umhugsunar um þá stað- reynd að á íslandi þrífst vændi ekkert síður en annars staðar í heiminum. Viðbrögðin við her- ferðinni voru misjöfn. Sumir hneyksluðust, aðrir litu á auglýsinguna sem sjálfsagða leið til að opna augu okkar fyrir því hve alvarlegt vanda- mál vændi er í flestum tilvikum. Tilgangi herferð- arinnar hlýtur þó að teljast náð því hún vakti vissulega umræðu í okkar litla samfélagi. Beittasta vopnið í baráttunni við vændi hlýtur að vera að svipta af því hulunni og að losa okkur sjálf við fordómana gagnvart þeim sem selja lík- ama sinn. Til þess að það megi verða er um- ræða nauðsynleg. „Ég tel upplýsta umræðu í þjóðfélaginu mjög mik- ilvæga í því að bregðast við þeim vanda sem vændi á íslandi er,“ segir Bryndís Björk Ásgeirs- dóttir, framkvæmdastjóri Rannsókna og greininga ehf. en hún er aðalhöfundur vændisskýrslunnar sem dómsmálaráðuneytið lét vinna síðastliðið ár. „Forsenda þess eru áframhaldandi rannsóknir á viðfangsefninu. í viðtölum okkar við sérfræðinga í þeim félagslegu þáttum sem taldir eru tengjast vændi og einstaklingum í vændi kom berlega í Ijós að sérfræðiþekking um efnið er af mjög skornum skammti á íslandi. Slík þekking er mjög mikilvæg til handleiðslu fólks sem þarf hjálp til að koma lífi sínu á réttan kjöl og vill komast út úr vændi,“ segir hún. Rúna Jónsdóttir, fræðslufulltrúi Stígamóta, tek- ur undir og bætir við að til að útrýma fordómum þurfi „...að hætta að tala um vændiskonurnar og fara að beina sjónum okkar að þeim sem bera á- byrgð á vændinu, þeim sem bera kynlífsiðnaðinn uppi. Klám og vændi er annars vegar þeir sem gera út manneskjur til að græða á þeim og hins vegar þeir sem láta sér sæma að kaupa þær. Þessu fólki sem á að refsa, ekki þeim sem hafa leiðst út í vændi vegna miserfiðra aðstæðna eins og íslensk lög gera ráð fyrir.“ Umræða um vændi á íslandi hefur breyst mikið á tiltölulega skömmum tíma. Niðurstöður vændis- skýrslunnar sýndu svo ekki veróur um villst að vændi á íslandi er til og að birtingarmyndir þess eru margskonar. Hér þekkist bæði skipulagt vændi, það er þegar milligönguaðili er á milli þeirra einstaklinga sem selja sig og þeirra sem kaupa, og óskipulagt vændi. Þá er vændi hér- lendis ekki einungis til á nektarstöðum heldur þríf- st það vel meðal fíkníefnaneytenda, ungmenna sem hafa strokið að heiman og eiga sér brotið bakland og þeirra sem stunda vændi sökum fá- tæktar. Aðrar birtingarmyndir ekki síður óhugnanlegar fyrirfinnast hér einnig sem og það skelfilegasta af öllu - barnavændi! Geta ekki tjáð sig af skömm En hvernig er líðan fólks sem hefur leiðst út í vændi? Greinarhöfundur lagði af stað með þá von að komast í samband við einstakling sem sjálfur hefði stundað vændi og gæti miðlað af reynslu sinni. En að fá fólk til að ræða í viðtali opinskátt um reynslu sína og líðan reyndist þrautinni þyngri. Eftir tveggja mánaða leit að viðmælanda gafst greinarhöfundur upp. Vandinn virtist benda til þess að fórnarlömb vændis þjást jafnvel löngu eftir að hafa komist út úr því. í Ijósi þess var jafn- vel enn brýnna að fá svör við fyrrgreindri spurn- ingu. Að sögn Rúnu voru Stígamótakonur lengi að átta sig á því hvers vegna sumar konur sem til þeirra leita virðist enn líða illa eftir að hafa rætt um þá misnotkun og kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Hún segir vændi yfirleitt það allra síðasta sem þær tjái sig um. „Konurnar sem hingað leita eru margar hverjar búnar að koma í mörg viðtöl til að tjá sig um reynslu sína en virð- ast samt enn líða illa. Þær virðast ennþá bera með sér einhverja byrði sem þeim hefur ekki tek- ist að kasta af sér. Við áttuðum okkur svo smám saman á því að vændi gæti verið fylgifiskur hjá mörgum þeirra kvenna sem áður höfðu leitað til Stígamóta. Um leið urðum við meðvitaðri um að þær gætu ekki sagt frá þessu nema mótttöku- skilyrði væru fyrir því. Skömmin sem fylgir 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.