19. júní - 19.06.2002, Page 52
Samkvæmt ritningunni er móðurhlutverkið talið það mikilvægt í uppeldi barna og heilagt, að það
stríðir algjörlega gegn boðskap Kóransins að aðskilja móður og börn
„Með þessu á ég við að það er nauðsynlegt að
hitta fjölskyldu mannsins fyrst og sjá hvernig
fjölskyldumynstrið er. Menntun og stéttar-
staða, eins snobbað og þaó hljómar, skipta öllu
máli þegar kemur að viðhofi mannsins til
kvenna og þá sérstaklega vestrænna kvenna.
Því betur menntaður sem maðurinn er, því meiri
líkur eru á að hann sé víðsýnn."
Salmann Tamimi segir fólk frá ólíkum menn-
ingarheimum, líkt og aðra, oft svo blindað af
ást að það komi ekki auga á þá hagsmunaá-
rekstra sem kunni að verða síðar í sambandinu.
Hann telur nauðsynlegt að fólk sem ætli að
hefja samband viti sem mest um trú, siði og
venjur hvors annars. í því skyni bendir hann al-
menningi að heimsækja Menningarmiðstöð
músíma sem verður opnuð innan skamms í Ár-
múla 38 í Reykjavík. Þar verði ýmsar upplýs-
ingar að finna sem koma ástföngnum pörum í
blönduðum samböndum vonandi til góðra
nota.
Fordómar - samfélagslegur sjúkdómur
Guðrún Pétursdóttir hjá Alþjóðahúsinu hefur á
orði að áður en farið er að tala um fordóma þá sé
nauðsynlegt að geta skilgreint hvað orðið í raun
52