Fréttablaðið - 01.04.2011, Page 2
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR2
BORGARMÁL Allir flokkar í borgar-
stjórn Reykjavíkur samþykktu
mótatkvæðalaust í gærkvöld að
gerð yrði óháð úttekt á stöðu og
rekstri Orkuveitu Reykjavíkur.
Í bókun borgarstjórnar segir að
draga eigi fram með skýrum hætti
orsakir þeirrar fjárhagslegu stöðu
sem fyrirtækið hefur ratað í og
úttektin verði unnin í samstarfi
þeirra sveitarfélaga sem eiga hlut
í Orkuveitunni.
Á borgarstjórnarfundinum
var jafnframt samþykkt með
atkvæðum meirihlutans eingöngu
aðgerðar áætlun vegna fjárhags-
vanda Orkuveitunnar. Fulltrú-
ar minnihlutans sátu hjá í þeirri
atkvæðagreiðslu.
„Samanlagt er þessum ráðstöf-
unum ætlað að brúa um 50 millj-
arða króna óleysta fjárþörf OR
til ársloka 2016,“ sagði Jón Gnarr
borgarstjóri í ræðu sinni í gær, þar
sem hann kynnti tillögurnar.
Meðal annars verður kannaður
fýsileiki þess að eigendur Orku-
veitunnar kaupi hús hennar að
Bæjarhálsi og endurleigi fyrir-
tækinu til langs tíma.
Í ræðu sinni sagðist Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vilja
ganga lengra og leggja út í nokk-
urs konar írska leið, eins og hún
orðar það, þar sem lánardrottnar
verði líka látnir taka þátt í lausn
vandans, frekar en „að samþykkja
að borgarbúar taki óbeint yfir 230
milljarða skuldir sem hvíla á OR
með því að færa þær yfir á borg-
arsjóð annars vegar og viðskipta-
vini OR hins vegar – sem eru aftur
að megninu til borgarbúar. Það er
kjarninn í aðgerðunum sem hafa
verið kynntar.“ - gb
Samanlagt er þessum
ráðstöfunum ætlað
að brúa um 50 milljarða
króna óleysta fjárþörf OR til
ársloka 2016
JÓN GNARR
BORGARSTJÓRI
UMHVERFISMÁL „Þetta er hálfgert
Ginnungagap,“ segir Einar Á.
E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi
í þjóðgarðinum á Þingvöllum,
um mikla sprungu sem í ljós
hefur komið á miðjum stígnum í
Almannagjá.
Einar segir að gat hafi komið
á stíginn og síðan myndast djúp
hola sem reynst hafi verið op að
tíu til fjórtán metra djúpri gjá
beint undir stígnum. „Þetta er lík-
lega framhaldið af litlu gjánni sem
menn klofa yfir þegar þeir ganga
út á Hakið og á útsýnispallinn,“
segir Einar, sem kveður barma
holunnar hafa verið ótrygga. Því
hafi hún verið víkkuð með því að
fjarlægja laust efni.
Lokað var fyrir umferð um stíg-
inn á meðan smíðaður var fleki
yfir holuna og henni þannig lokað
til bráðabirgða. Almannagjá er nú
opin fyrir umferð á ný.
Gjáin undir holunni er mikið
gímald að sögn Einars. Vísast
þurfi mörg vörubílahlöss til að
fylla gjána, sem liggi eins og
hellir suður undir Kárastaða-
stíg og meira en fjórir metrar á
breidd þegar ofan í sé komið. „Ef
sú ákvörðun yrði tekin færi alveg
gríðarlegt magn af efni í það.“
Einar kveðst reikna með að
sérfræðingar verði fengnir til að
skera úr um orsakir þess að nú
hefur opnast ofan í þessa miklu
sprungnu. Sjálfir telji hann sam-
spil jarðskjálfta árin 2000 og 2008
við miklar leysingar hafa vald-
ið því að jarðefni hafi skolast úr
sprungunni með árunum.
„Þetta höfum við séð í þjóðgarð-
inum áður. Sérstaklega hafa menn
púkkað í með stóru grjóti og möl
þar sem malbikaðir vegir eru lagðir
yfir gjár. Eftir jarðskjálftana 2000
og 2008 kom greinilega los á jarð-
veginn. Í vorleysingum árin eftir
komu göt hér á vegi, bæði austan
við þjónustumiðstöðina og niðri
við vatn,“ segir Einar, sem kveðst
eiga von á því að jarðvísindamenn
verði fengnir til að meta stöðuna.
„Við munum grannskoða stígana
hérna í gjánni en ég tel að þetta sé
staðbundið.“ gar@frettabladid.is
Almannagjá dýpkar
Talið að skjálftar og leysingar hafi leitt til þess að djúp gjá opnaðist á miðjum
stígnum í Almannagjá. Vegir liggja víða yfir sprungur í Þingvallaþjóðgarði.
ALMANNAGJÁ OG HAKIÐ Mikil hola opnaðist á stígnum um Almannagjá. Undir er eins konar hellir, sem reyndist ná undir stíginn
þar sem grafan stendur. Einar Sæmundsen, fræðslufulltrúi í þjóðgarðinum á Þingvöllum, stendur við opið. MYND/EINAR SÆMUNDSEN
Sigurður, eiga menn heldur að
sleppa því að veiða heldur en
að veiða og sleppa?
„Miklu heldur, það liggur í augum
uppi.“
Sigurður Pálsson, málari og fluguhnýtari,
segir það dellu að veiða fisk á stöng og
sleppa honum síðan. Engin fiskivernd
sé í því og oft sé það einfaldlega til
vandræða.
VÍSINDI Þyngdaraflið er sterkast á tveim-
ur svæðum jarðar: Annars vegar á nokk-
uð stóru svæði í Atlantshafinu, sem nær
rétt norður fyrir Ísland og alla leið suður
að Azoreyjum, hins vegar á svæði norð-
ur af Ástralíu allt frá Filippseyjum og
austur að Fídjíeyjum í Suður-Kyrrahafi.
Minnsti styrkur þyngdaraflsins er
hins vegar á sunnanverðu Indlandi og
stóru svæði þar suður af á Indlandshafi.
Þetta er niðurstaðan úr mælingum
vísindamanna við Evrópsku geimferða-
stofnunina, sem hafa nú sent frá sér end-
urbætta kortlagningu þyngdaraflsins á
jörðinni.
Kortlagningin er byggð á gögnum
úr gervihnettinum GOCE, sem þeytist
í kringum jörðina í 255 kílómetra hæð
og mælir styrkleikamun þyngdaraflsins
milli staða.
Munurinn er reyndar svo lítill að hann
telst ekki skynjanlegur nema í mæli-
tækjum. Í kortlagningunni er hann hins
vegar ýktur mjög, svo greinilega megi
sjá dreifinguna.
Tilgangur mælinganna er ekki síst sá
að reikna út hæðina á yfirborði sjávar á
hverjum stað, svo hægt sé að bera saman
„raunverulega“ hæð staða á jörðinni
frekar en bara hæð yfir sjávarmáli, eins
og til þessa hefur eingöngu reynst unnt.
- gb
Vísindamenn hafa unnið að kortlagningu þyngdaraflsins á jörðinni:
Þyngdaraflið sterkast á Íslandi
EINS OG KARTAFLA Mynd af
dreifingu þyngdarafls á jörðinni.
Sterkast er það á gulu svæð-
unum en gætir minnst á þeim
bláu. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Aprílmánuður á að
verða grænasti mánuður ársins í
átaki sem samtökin Grænn apríl
standa fyrir.
Átaksverkefninu er ætlað að
beina athygli fólks að vöru,
þjónustu og þekkingu sem er
græn og umhverfisvæn og hægt
er að nálgast hér á landi.
Fjölmörg sveitarfélög og
ráðuneyti, stór og smá fyrir-
tæki þátt í átakinu, sem hefur
að markmiði að auka þekkingu
og umræðu um umhverfisvæn-
an valkosti í innkaupum og
stuðla þannig að vistvænna og
sjálfbærara Íslandi.
Grænn apríl hefst í dag:
Ísland verði
vistvænna
DÓMSMÁL Karlmaður, búsettur
í Vestmannaeyjum, hefur verið
sýknaður í Hæstarétti af ákæru
um kynferðisbrot gegn fimm ára
stúlku. Þar með staðfestir Hæsti-
réttur dóm héraðsdóms.
Við ákvörðun dómsniðurstöðu
var litið til þess að dómskýrsla
stúlkunnar hefði borið þess merki
að í einhverjum tilvikum hefði
framburður hennar litast af því
sem móðir hennar hafði tjáð
henni. Stúlkan var ekki yfirheyrð
í Barnahúsi fyrr en mánuði eftir
meint brot. - jss
Héraðsdómur staðfestur:
Sýknaður af
kynferðisbroti
JAPAN, AP „Við erum að finna
lík út um allt – í bifreiðum,
í ám, undir rústum og úti á
götum,“ segir lögreglumaður í
Fukushima, sem varð afar illa úti
í hamförunum 11. mars.
Tugir þúsunda íbúa í Fuku-
shima hafa þurft að yfirgefa
heimili sín vegna hættu á geisla-
mengun frá kjarnorkuverinu þar.
Ekki þykir einu sinni óhætt leng-
ur að fólk leiti í rústum heimila
sinna vegna geislamengunar.
Til þessa hefur verið staðfest
að 11 þúsund manns eru látnir.
- gb
Japanar glíma við afleiðingar:
Líkin finnast
enn út um allt
GEISLAVIRKNI KÖNNUÐ Starfsmenn
Fukushima-sýslu taka sýni í grennd við
kjarnorkuverið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍKNARMÁL Alls söfnuðust tæplega
30 milljónir króna í Mottumar-
skeppninni, sem er árvekniátak
Krabbameinsfélags Íslands.
Söfnun í nafni Magnúsar Guð-
mundssonar, sem lést úr hvít-
blæði fyrr í mánuðinum, fékk
flest áheit í einstaklingskeppn-
inni. Bjarndís Sjöfn Blandon varð
í öðru sæti og Bergsveinn Alfons
Rúnarsson í þriðja sæti. Arion
banki bar sigur úr býtum í liða-
keppninni, Byko varð í öðru sæti
og Landsvirkjun í þriðja sæti.
„Við erum þakklát fyrir þann
mikla stuðning sem átakið hefur
hlotið meðal almennings og það
hefur verið gaman að sjá allan
þann fjölda karla sem hefur
skartað mottum í mánuðinum,“
segir Ragnheiður Haraldsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags
Íslands.
Mottumars gekk vel:
30 milljónir
króna söfnuðust
SIGURVEGARAR Bergsveinn Alfons
Rúnarsson, Ingibjörg Ragnarsdóttir,
ekkja Magnúsar Guðmundssonar, og
Einar Þór Einarsson hjá Arion banka.
Lætur kanna hvað gera eigi
Bashar Assad, forseti Sýrlands, hefur
tilkynnt að nefndir verði stofnaðar
til að kanna hvort aflétta eigi nærri
sex áratuga gömlum neyðarlögum
í landinu. Jafnframt verði nefndir
látnar rannsaka dauðsföll almennra
borgara í átökunum undanfarinn
hálfan mánuð. Með þessu virðist
hann vonast til að draga broddinn úr
mótmælum, sem boðuð hafa verið
í dag. Fyrr í vikunni varð ekkert úr
loforðum hans um að boða raunveru-
legar umbætur.
SÝRLAND
Meirihluti borgarstjórnar samþykkti aðgerðaráætlun vegna fjárhagsvanda OR:
Samstaða um óháða úttekt
JÓN GNARR ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS