Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 60
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR44
Breska söngkonan Lily Allen
hefur nú tjáð sig um veik-
indi sín, en hún missti fóstur í
nóvember í fyrra sökum blóð-
eitrunar. Í heimildarmynd sem
gerð var um söngkonuna segist
hún hafa legið á milli heims og
helju vegna veikindanna. „Það
var tvísýnt í nokkra daga um líf
mitt en sem betur fer á ég góða
að og lít lífið allt öðrum augum
núna.“
Söngkonan hefur átt erfitt
með barneignir og missti einnig
fóstur árið 2007. Allen hefur
látið hafa það eftir sér að stærsti
draumur hennar sé að verða
mamma og að hún ætli sér að
reyna aftur á þessu ári.
Var nær
dauða en lífi
ERFIÐIR TÍMAR Síðustu mánuðir hafa
verið erfiðir hjá bresku söngkonunni
Lily Allen en það rifjar hún upp í heim-
ildarmynd um sjálfa sig sem sýnd var í
Bretlandi á dögunum. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Bill Murray ætlar að
túlka 32. forseta Bandaríkjanna,
Franklin Delano Roosevelt, í
nýrri kvikmynd sem er í bígerð.
Myndin er byggð á breska
útvarpsleikritinu Hyde Park
on the Hudson. Hún gerist árið
1939 og fjallar um umdeilt sam-
band Roosevelts við frænku
sína Margaret Stuckley meðan
á fyrstu heimsókn bresku kon-
ungshjónanna til
Bandaríkjanna
stóð.
Leikstjóri
myndarinnar
verður Robert
Michell,
sem hefur
áður sent
frá sér
gaman-
myndina
Notting
Hill.
Murray sem
Roosevelt
Fréttamenn sænska ríkis-
sjónvarpsins bítast nú inn-
byrðis um lítið aukahlut-
verk í amerísku útgáfunni
af Karlar sem hata konur
eftir Stieg Larsson. Um
100 blaðamenn SVT sóttu
um að komast á hvíta tjald-
ið og láta ljós sitt skína en
aðstandendur myndarinn-
ar bjuggust ekki við svo
góðum viðtökum.
Tökum lýkur senn í
Stokkhólmi en mikil leynd
er yfir þeim og hefur leik-
araliðið, Daniel Craig,
Robin Wright og Stellan
Skarsgård, farið huldu
höfði. Hin lítt þekkta
leikkona Rooney Mara
sem fer með hlutverk
tölvuhakkarans Lisbeth
Salander sást þó spóka
sig nýverið í sænsku vor-
sólinni svarthærð, föl og
flúruð. Frumsýning er
áætluð í desember á þessu
ári.
Sænskir blaðamenn
bítast um hlutverkHailee Steinfeld, sem sló eftirminni-lega í gegn í Coen-vestranum True
Grit, hefur verið ráðin til að leika
Þyrnirós í nýrri Hollywood-kvik-
mynd. Ekki er búið að ráða leikstjóra
myndarinnar en búast má við því að
myndin verði fokdýr og stefnt verði að
því að setja aðsóknarmet. Samkvæmt
fyrstu fréttum segir myndin frá því
þegar Þyrnirós er flutt yfir í furðu-
legan heim drauma sem vonda stjúpan
stendur fyrir.
Þessi Þyrnirósar-útgáfa er ekki sú
eina sem er í smíðum í draumaverk-
smiðjunni því Tim Burton hyggst gera
sína eigin útgáfu af þessu fræga ævin-
týri. Eins og við mátti
búast þá er Þyrnirós-
ar-útgáfan hans ekki
alveg samkvæmt bók-
inni því hann hyggst
einbeita sér að sögu
stjúpunnar. Sam-
kvæmt netmiðlum
er búist fastlega við
því að Angelina Jolie leiki
hana en leikkonan hefur lýst
því yfir að hún hafi alltaf
verið mikill aðdáandi stjúp-
unnar. „Og að fá að leika
undir stjórn Burtons væri
náttúrulega bara frábært.“
Tvær myndir um Þyrnirós í bígerð
ROONEY MARA
LEIKUR ROOSEVELT Bill Murray ætlar
að túlka Franklin D. Roosevelt í nýrri
kvikmynd.
ÞYRNIRÓS OG STJÚPAN Hailee
Steinfeld leikur Þyrnirós í nýrri
Hollywood-kvikmynd. Tim Burton er
líka að gera kvikmynd um Þyrnirós
en hann langar að beina sjónum
sínum að sögu stjúpunnar. Og þá
myndi Angelina Jolie leika hana.
Sýndu lit í sumar
7.990 kr.
Kaupauki7.990 kr.
CINTAMANI AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ, S. 533 3805
7.990 kr. 9.990 kr.
*T
ilb
o
ð
ið
g
ild
ir b
a
ra
í A
u
stu
rh
ra
u
n
i