Fréttablaðið - 01.04.2011, Side 25

Fréttablaðið - 01.04.2011, Side 25
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2011 25 Frankenstína Að mati kærunefndar jafn-réttismála braut Jóhanna Sigurðardóttir jafnréttislög. Þótt sjálfsagt sé að rifja upp gömul ummæli hennar um sambærilegar uppákomur og velta málinu upp frá pólitískum flötum á það sér einnig aðrar hliðar og praktískari. Ef einni helstu stuðningskonu núgild- andi jafnréttislaga virðist ill- fært að framfylgja þeim, hve raunhæft er þá að leggja þær skyldur sem í lögunum felast á öll fyrirtæki landsins? Það hafa ekki endilega allir sömu burði til að standa að ítarlegu fjöl- þrepa-ráðningarferli. Og jafn- vel slíkt virðist ekki duga. Það er auðvitað varhugavert að setjast í dómarasæti í umræddu máli en sé úrskurð- ur kærunefndar lesinn er ekki hægt annað en fá það á til- finninguna að sú sem kærði hafi sitthvað til síns máls. Sé til dæmis litið til menntunar, starfsreynslu og tungumála- kunnáttu verður vart annað séð en að mat ráðuneytisins, eða ráðgjafa þess, á hæfni konunnar sé í töluverðu ósam- ræmi við þau skriflegu gögn sem lágu fyrir. Skýringar ráðu- neytisins byggðu á tilvísun í huglægt mat ráðgjafans og þær skýringar virkuðu veikar. Bara til að það sé ljóst þá ber ráðherra áfram ábyrgð þótt hann biðji um ráð. Auðvitað væri þægilegt að hann gæti vísað faglegri ábyrgð á ráðgjaf- ann, sem vísaði hinni formlegu ábyrgð á ráðherrann og lokaði þannig hringnum. En þannig virkar þetta ekki alveg. Jafnréttisþrjótar? En þá kemur auðvitað að þeirri spurningu hvort það sé líklegt að þær konur sem sáu um ráðn- inguna hafi ekki viljað ráða konu heldur einhvern gaur. Sjálfum detta mér nokkrir tugir annarra líklegri ástæðna í hug: að menn voru búnir að ákveða sig fyrir fram, að menn vildu ráða einhvern sem þeir þekktu, að menn vildu ekki ráða ein- hvern út af ástæðum sem þeir vildu ekki hafa skriflegar, eða að menn hafi einfaldlega leyft utanaðkomandi ráðgjöf að ráða för í góðri trú. Margt má sjá í þessu máli og sumt gruggugt, en að kynferði hafi ráðið ákvarðanatöku er langsótt. Það er auðvitað dálítið undar- legt að sú aðferð að kæra mál á grundvelli jafnréttislaga virðist vera besta leiðin til að bjóða ráðherra birginn vegna ómálefnalegrar ráðningar. Réttarstaða karls er meiri ef kona er ráðin og öfugt. Ef litið er framhjá menntun konu og reynslu verður hún helst að vona að karl verði ráðinn. Þann- ig er nú jafnréttið. Atvinnu(kyn)líf En eitt er síðan að ákveða hvernig hið opinbera hagar málum á sínum heimavelli, annað er kannski þegar sömu stefnumarkandi skyldur eru lagðar á atvinnulífið. Dekkja- verkstæði sem ekki semja jafn- réttisáætlun geta verið beitt dagsektum. Talsmaður fyrir- tækisins Össurar vísaði til laga um kynjakvóta í stjórnum fyr- irtækja sem einni af ástæðum fyrir afskráningu fyrirtækis- ins úr kauphöllinni. Án þess að menn þurfi að láta allt eftir atvinnulífinu er spurning hvort þetta er góð þróun. Eins og það er ástæða til að hafa fullan skilning á markmið- um jafnréttislaga liggur það fyrir að sá ójöfnuður sem enn þrífst á sér að mestu samfélags- legar og menningarlegar rætur en ekki lagalegar. Það mætti því tækla hann með samfélagslegum úrræðum en ekki endilega lagalegum. Jákvæðar aðgerðir geta skilað meiru en neikvæð lagasetning. Ráðningarstofa ríkisins En hverjar verða afleiðingar af þessu máli? Ætli ein líkleg, og vond, niðurstaða verði ekki sú að flestar opinberar ráðning- ar verði framvegis fyrir fram stimplaðar af jafnréttisyfir- völdum. Jafnréttisstofnanir gætu þá talið kynin í flestum starfs- stéttum og dregið af því álykt- anir. Í úrskurði kærunefndar- innar kom þannig fram að „af 54 skrifstofustjórum Stjórnar- ráðsins, að utanríkisráðuneyt- inu undanskildu, voru á þeim tíma sem hér um ræðir og eftir því sem næst verður komist, 38 karlar og 16 konur“. Það að sleppa utanríkisráðuneytinu án skýringa slær mann sem dæmigerð sköpunartölfræði. Kynjatalningar sem þessar eru jafneinfaldar og þær eru grunnar. Þær miða að því að skoða málin frekar út frá jafn- rétti kynjanna, sem hópa, frek- ar en jafnrétti einstaklinga, óháð kyni. Sá úrskurður sem kæru- nefndin felldi var að mörgu leyti góður. Það er hins vegar full ástæða til að hugleiða hvort sú leið lagasetningar sem mörkuð hefur verið í jafnrétt- ismálum sé endilega farsælust. Alla vega hvað atvinnulífið snertir. Margt má sjá í þessu máli og sumt gruggugt, en að kynferði hafi ráði ákvarðanatöku er langsótt. Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG AF NETINU Asni klyfjaður gulli Við búum í veröld sem er ekkert sérlega réttlát. Í fjölmiðlum hefur verið fjallað um mál tveggja kvenna, Jussanam Dejah frá Brasi- líu og Priyanka Thapa frá Nepal. Báðar hafa þær getið sér gott orð á Íslandi, eru góðir borgarar, en samt er mikil tregða í kerfinu við að veita þeim varanlegt land- vistarleyfi. Manni finnst það satt að segja ansi skítt. Maður hlýtur að álykta að reglur séu túlkaðar of þröngt eða að kerfið sé hrætt við að setja fordæmi – því varla er það af ein- hverri mannvonsku að þær fá ekki lausn sinna mála. Svo er fjallað um mál tíu auð- manna sem vilja fá íslenskan ríkisborgararétt. Það mál er allt hið skringilegasta. En þetta er samt ekki einsdæmi. Við erum ekki ein í heiminum. Því það er frægt að asni klyfjaður gulli kemst í gegnum marga múra. silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Beina brautin lokuð? Því miður bendir flest til þess að vonir þær sem við bundum flest við úrlausn fyrir lítil og meðal- stór fyrirtæki séu að verða að engu. Beina brautin er að verða að hlykkjóttu og skrykkjóttu torleiði, þar sem ótal farartálmar eru á leiðinni. Þetta mál verður að nálgast með öðrum hætti. [...] Gleymum því ekki að það eru einmitt þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki sem munu ráða úrslitum um hvort okkur tekst að skapa hér hagvöxt að nýju. ekg.blog.is Einar K. Guðfi nnsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.