Fréttablaðið - 01.04.2011, Síða 25
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2011 25
Frankenstína
Að mati kærunefndar jafn-réttismála braut Jóhanna
Sigurðardóttir jafnréttislög.
Þótt sjálfsagt sé að rifja upp
gömul ummæli hennar um
sambærilegar uppákomur og
velta málinu upp frá pólitískum
flötum á það sér einnig aðrar
hliðar og praktískari. Ef einni
helstu stuðningskonu núgild-
andi jafnréttislaga virðist ill-
fært að framfylgja þeim, hve
raunhæft er þá að leggja þær
skyldur sem í lögunum felast á
öll fyrirtæki landsins? Það hafa
ekki endilega allir sömu burði
til að standa að ítarlegu fjöl-
þrepa-ráðningarferli. Og jafn-
vel slíkt virðist ekki duga.
Það er auðvitað varhugavert
að setjast í dómarasæti í
umræddu máli en sé úrskurð-
ur kærunefndar lesinn er ekki
hægt annað en fá það á til-
finninguna að sú sem kærði
hafi sitthvað til síns máls. Sé
til dæmis litið til menntunar,
starfsreynslu og tungumála-
kunnáttu verður vart annað
séð en að mat ráðuneytisins,
eða ráðgjafa þess, á hæfni
konunnar sé í töluverðu ósam-
ræmi við þau skriflegu gögn
sem lágu fyrir. Skýringar ráðu-
neytisins byggðu á tilvísun í
huglægt mat ráðgjafans og þær
skýringar virkuðu veikar.
Bara til að það sé ljóst þá ber
ráðherra áfram ábyrgð þótt
hann biðji um ráð. Auðvitað
væri þægilegt að hann gæti
vísað faglegri ábyrgð á ráðgjaf-
ann, sem vísaði hinni formlegu
ábyrgð á ráðherrann og lokaði
þannig hringnum. En þannig
virkar þetta ekki alveg.
Jafnréttisþrjótar?
En þá kemur auðvitað að þeirri
spurningu hvort það sé líklegt
að þær konur sem sáu um ráðn-
inguna hafi ekki viljað ráða
konu heldur einhvern gaur.
Sjálfum detta mér nokkrir tugir
annarra líklegri ástæðna í hug:
að menn voru búnir að ákveða
sig fyrir fram, að menn vildu
ráða einhvern sem þeir þekktu,
að menn vildu ekki ráða ein-
hvern út af ástæðum sem þeir
vildu ekki hafa skriflegar, eða
að menn hafi einfaldlega leyft
utanaðkomandi ráðgjöf að ráða
för í góðri trú. Margt má sjá í
þessu máli og sumt gruggugt,
en að kynferði hafi ráðið
ákvarðanatöku er langsótt.
Það er auðvitað dálítið undar-
legt að sú aðferð að kæra mál
á grundvelli jafnréttislaga
virðist vera besta leiðin til að
bjóða ráðherra birginn vegna
ómálefnalegrar ráðningar.
Réttarstaða karls er meiri ef
kona er ráðin og öfugt. Ef litið
er framhjá menntun konu og
reynslu verður hún helst að
vona að karl verði ráðinn. Þann-
ig er nú jafnréttið.
Atvinnu(kyn)líf
En eitt er síðan að ákveða
hvernig hið opinbera hagar
málum á sínum heimavelli,
annað er kannski þegar sömu
stefnumarkandi skyldur eru
lagðar á atvinnulífið. Dekkja-
verkstæði sem ekki semja jafn-
réttisáætlun geta verið beitt
dagsektum. Talsmaður fyrir-
tækisins Össurar vísaði til laga
um kynjakvóta í stjórnum fyr-
irtækja sem einni af ástæðum
fyrir afskráningu fyrirtækis-
ins úr kauphöllinni. Án þess
að menn þurfi að láta allt eftir
atvinnulífinu er spurning hvort
þetta er góð þróun.
Eins og það er ástæða til að
hafa fullan skilning á markmið-
um jafnréttislaga liggur það
fyrir að sá ójöfnuður sem enn
þrífst á sér að mestu samfélags-
legar og menningarlegar rætur
en ekki lagalegar.
Það mætti því tækla hann
með samfélagslegum úrræðum
en ekki endilega lagalegum.
Jákvæðar aðgerðir geta skilað
meiru en neikvæð lagasetning.
Ráðningarstofa ríkisins
En hverjar verða afleiðingar af
þessu máli? Ætli ein líkleg, og
vond, niðurstaða verði ekki sú
að flestar opinberar ráðning-
ar verði framvegis fyrir fram
stimplaðar af jafnréttisyfir-
völdum.
Jafnréttisstofnanir gætu þá
talið kynin í flestum starfs-
stéttum og dregið af því álykt-
anir. Í úrskurði kærunefndar-
innar kom þannig fram að „af
54 skrifstofustjórum Stjórnar-
ráðsins, að utanríkisráðuneyt-
inu undanskildu, voru á þeim
tíma sem hér um ræðir og eftir
því sem næst verður komist,
38 karlar og 16 konur“. Það að
sleppa utanríkisráðuneytinu
án skýringa slær mann sem
dæmigerð sköpunartölfræði.
Kynjatalningar sem þessar
eru jafneinfaldar og þær eru
grunnar. Þær miða að því að
skoða málin frekar út frá jafn-
rétti kynjanna, sem hópa, frek-
ar en jafnrétti einstaklinga,
óháð kyni.
Sá úrskurður sem kæru-
nefndin felldi var að mörgu
leyti góður. Það er hins vegar
full ástæða til að hugleiða
hvort sú leið lagasetningar sem
mörkuð hefur verið í jafnrétt-
ismálum sé endilega farsælust.
Alla vega hvað atvinnulífið
snertir.
Margt má sjá í þessu máli og sumt
gruggugt, en að kynferði hafi ráði
ákvarðanatöku er langsótt.
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
AF NETINU
Asni klyfjaður gulli
Við búum í veröld sem er ekkert
sérlega réttlát. Í fjölmiðlum hefur
verið fjallað um mál tveggja
kvenna, Jussanam Dejah frá Brasi-
líu og Priyanka Thapa frá Nepal.
Báðar hafa þær getið sér gott orð
á Íslandi, eru góðir borgarar, en
samt er mikil tregða í kerfinu við
að veita þeim varanlegt land-
vistarleyfi. Manni finnst það satt að
segja ansi skítt.
Maður hlýtur að álykta að
reglur séu túlkaðar of þröngt eða
að kerfið sé hrætt við að setja
fordæmi – því varla er það af ein-
hverri mannvonsku að þær fá ekki
lausn sinna mála.
Svo er fjallað um mál tíu auð-
manna sem vilja fá íslenskan
ríkisborgararétt. Það mál er allt hið
skringilegasta. En þetta er samt
ekki einsdæmi. Við erum ekki ein
í heiminum. Því það er frægt að
asni klyfjaður gulli kemst í gegnum
marga múra.
silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
Beina brautin lokuð?
Því miður bendir flest til þess að
vonir þær sem við bundum flest
við úrlausn fyrir lítil og meðal-
stór fyrirtæki séu að verða að
engu. Beina brautin er að verða
að hlykkjóttu og skrykkjóttu
torleiði, þar sem ótal farartálmar
eru á leiðinni. Þetta mál verður
að nálgast með öðrum hætti. [...]
Gleymum því ekki að það eru
einmitt þessi litlu og meðalstóru
fyrirtæki sem munu ráða úrslitum
um hvort okkur tekst að skapa hér
hagvöxt að nýju.
ekg.blog.is
Einar K. Guðfi nnsson