Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2011 3
Kynning
Sólveig Jóna Jóhannesdóttir finnur á sér mikinn mun eftir að
hún fór að drekka aada.
„Ég heyrði viðtal við eiganda My Secret í útvarpinu þegar fyrsti
drykkurinn kom á markaðinn og ákvað að prófa. Ég drakk eitt
glas að morgni á fastandi maga og annað glas um sjö leytið að
kveldi og geri enn. Fyrstu áhrifin voru þau að ég fór að
sofa betur, náði að losa mig við allan bjúg og meltingin
lagaðist nánast um leið. Þá var ekki aftur snúið.“
Þetta segir Sólveig Jóna Jóhannesdóttir, sem hefur
síðan drukkið aada-drykkinn að staðaldri og líður
betur. „Í dag er ég 30 kílóum léttari. Þar sem lík-
aminn er kominn í meira jafnvægi hef ég náð að
losa mig við sykursýki sem ég var búin að borða á
mig og hef náð að hætta að reykja líka,“ segir Sól-
veig sem hefur flösku af aada ávallt við höndina.
„Ég fór til Flórída í febrúar og tók með mér
flösku af aada og lét þar af leiðandi allar kökur og
sætindi vera. Ég á allt annað líf í dag og get ekki
hugsað mér að sleppa því að drekka aada.“
Líður mikið betur
Sólveig upplifir mikinn mun eftir að hafa drukkið aada um nokkurt skeið.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, hjá
Gyðju Collection, drekkur aada á
hverjum degi.
„Ég byrjaði að drekka
yndislega aada-drykk-
inn á morgnana fyrir
rúmum fjórum mán-
uðum og nú gæti
ég aldrei hugsað
mér að vera án
hans. Drykk-
urinn er orð-
inn algjörlega
fastur liður í
minni daglegu
rútínu,“ segir
Sigrún Lilja
Guðjónsdóttir,
framkvæmda-
stjóri og hönn-
uður Gyðju
Collection,
sem drekkur
glas af sterk-
u m d r yk k
á hverju m
morgni. „Og
svo st u nd -
um líka eftir
hádegið ef
mér finnst mig
vanta auka-
orku,“ bætir
hún við.
Sigrún Lilja
hefur upplifað breytingar til
hins betra eftir að hún byrjaði að
drekka aada. „Ég fann strax
gríðarlegan mun á orkunni
og átti auðveldara með
að vakna á morgnana.
Fann að þetta hjálpar
manni líka að halda
einbeitingu. Þetta er
í raun náttúrulegur
orkudrykkur og þar
sem ég drekk ekki
kaffi þá er þetta
mitt orkuskot fyrir
daginn.“
Hún segir drykk-
inn sömuleiðis vera
mjög hreinsandi.
„Ég finn líka fyrir
því hve mikið hann
eykur brennsluna
hjá manni. Engifer hefur
líka verið þekkt fyrir að styrkja
ónæmiskerfið og hjálpar drykk-
urinn mér því við að halda heils-
unni góðri.“
Drykkinn segir hún því veita
sér mikla vellíðan enda fari
ekki á milli mála ef hún missir
dag úr. „Fyrir mér er þetta því
kraftaverkadrykkur sem hefur
reynst mér ofboðslega vel í því
sem ég tek mér fyrir hendur.
Ég mæli hiklaust með honum
fyrir alla sem vilja auka vel-
líðan, auka orku, brennslu
og öðlast betri heilsu.“
Missir helst ekki úr
einn einasta dag
Sigrún Lilja segir
aada veita sér
mikla vellíðan.
Hjúkrunarfræðinemarnir átta sem munu halda til Naíróbí í maí. Nemarnir koma til með að vinna á heilsugæslustöðvum nálægt miklum fátækrahverfum í Naíróbí.
„Við höfum gengið með þessa hug-
mynd í höfðinu síðan við byrjuð-
um í náminu fyrir bráðum þrem-
ur árum. Síðasta sumar tókum við
endanlega ákvörðun um að fara og
hófumst handa við að safna styrkj-
um fyrir ferðalaginu í haust. Eftir
áramót keyptum við síðan flugmið-
ana út til Naíróbí og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir Birna Rut Aðal-
steinsdóttir, ein átta hjúkrunar-
fræðinga við Háskóla Íslands sem
eru á leiðinni í hjálparstarf í Naí-
róbí í Keníu í Afríku. Mikið er lagt
upp úr verklegu námi í hjúkruna-
fræði þannig að dvölin í Naíróbí á
eftir að reynast ferðalöngunum vel
í námi og starfi.
Að sögn Birnu hafa ýmis fyr-
irtæki styrkt ferðalag hjúkr-
unarfræðinemana ýmist fjár-
hagslega eða með leikföngum og
hjúkrunarvörum. „My Secret var
eitt af þeim fyrirtækjum sem við
báðum um styrk hjá og við fengum
fund með Ólafi Sólimann, fram-
kvæmdastjóra My Secret, og tók
hann vel í aðkomu My Secret að
verkefninu með því að veita okkur
styrk úr styrktarsjóði My Secret,“
segir hún og getur þess að þetta
sé þriðja verkefni sem My Secret
styrkir frá stofnun sjóðsins í
október í fyrra.
„Á fundinum var okkur kynnt-
ur bæði engiferdrykkurinn aada
og einnig það góða starf sem fer
fram hjá My Secret, en fyrirtækið
leggur mikla áherslu á að styrkja
góð málefni. Það hefur síðan skil-
að sér í því að My Secret er núna
orðinn okkar stærsti styrktaraðili
og munum við fá hluta af tekjum
aprílmánaðar af sölu aada-drykkj-
anna frá My Secret á Íslandi í
okkar ferðasjóð.“
Birna getur þess að My Secret
framleiði engiferdrykkinn aada
og hópurinn hafi lesið reynslu-
sögur þeirra sem hafa reynt hann.
„Drykkurinn hefur hjálpað mörg-
um sem hafa verið að glíma við
vandamál með meltingu, bólgur,
gigt og fleira,“ segir hún, en allar
upplýsingar um hann er að finna
á heimasíðunni www.mysecret.is.
Í apríl segir Birna svo ætlunina
að kynna ferðina í samstarfi við
My Secret. „Við verðum með borð
í völdum verslunum á föstudög-
um og laugardögum út mánuðinn
þar sem fólki gefst tækifæri til
að koma og spjalla við okkur og
fræðast um ferðina, auk þess sem
við munum bjóða fólki upp á blóð-
þrýstingsmælingu og að smakka
engferdrykkinn aada.“
Innt út í starfið í Naíróbí,
segir Birna: „Þar sem við verð-
um, umlykja borgina svoköll-
uð „slum“. Í þeim ríkir gífurleg
fátækt og munum við koma til
með að vinna á heilsugæslustöðv-
um sem þjóna þessum fátækra-
hverfum. Heilsugæslustöðvunum
er haldið gangandi af samtökum
sem heita Provide International
og er aðbúnaðurinn sem fólkið
þarf að starfa við mjög slæmur,
en heilsugæslustöðvarnar þjóna
árlega hátt í 100.000 manns. Okkar
aðkoma felst fyrst og fremst í því
að veita aðhlynningu eftir minni-
háttar slys, eftirliti með þunguð-
um konum og því að veita HIV-for-
varnarfræðslu.“
Loks segist Birna þakklát My
Secret og öðrum fyrirtækjum og
aðilum sem lagt hafa sitt á vogar-
skálarnar til þess að gera starf-
ið að veruleika. „Þeim sem vilja
styrkja okkur er bent á styrktar-
reikning okkar en hann er með
reikningsnúmer: 0322-13-300277
á kennitölu: 090887-2899.“ Áhuga-
sömum er bent á að hægt verður
að fylgjast með undirbúningsferl-
inu og síðar starfseminni ytra á
sérstakri bloggsíðu www.hjukr-
unikenya.bloggar.is.
My Secret styrkir hjúkrunarfræðinema
til hjálparstarfs í Naíróbí í Keníu
Átta hjúkrunarfræðinemar á þriðja ári við Háskóla Íslands eru á leiðinni til Naíróbí í Keníu í hjálparstarf.
Mikið er lagt upp úr verklegu námi í hjúkrunarfræði.
Dvölin í Naíróbí á því eftir að reynast vel í námi og starfi.
Reynslusögur