Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 40
10 föstudagur 1. apríl ? Ég er í krísu! Kærasti minn vill prófa að fá aðra stelpu með okkur í rúmið og tönnlast endalaust á því. Ég veit ekki hvað ég á að gera því ég er hrædd um að þetta gæti haft skrítin áhrif á sambandið og ég er líka hrædd um að verða öfundsjúk. Vill maður eitthvað sjá kærasta sinn vera með ann- arri stelpu og hvað ef ég enda útundan? Endar svona einhvern tímann vel? Svar: Áhyggjur þínar eru réttmætar og fyrst þær eru til staðar þá er ég ekki viss um að viðbótarrekkjunautur sé eitthvað sem þið ættuð að prófa. Ég hvet þig til að forvitnast um hvaða hvati liggur að baki því hjá kærastanum þínum að fá aðra stelpu í rúmið. Hvernig hafði hann séð þetta fyrir sér; mætti viðbótarekkjunauturinn vera strákur? Hvað má hver aðili gera við hvern? Þetta eru mikilvægar spurning- ar sem þarf að fá skýr svör við og ef þið ákveðið að gera þetta þarf að setja reglur og passa að báðir aðilar séu sáttir. Ef þú ert spennt fyrir því að prófa að vera með ann- arri stelpu þá gætu reglurnar snúist um það að kærastinn þinn fengi eingöngu að vera áhorfandi. Þó að pör hafi prófað að bæta við aðila í kynlífið er það einstaklingsbundið hvort vel tekst til eða ekki. Ef ykkur langar að krydda kynlífið gætuð þið til dæmis talað um „ósýnilega“ þriðja aðilann og hvað þið mynduð gera með viðkomandi. Passaðu bara að láta ekki pressa þig út í eitthvað sem þú ert ekki tilbúin í né sátt við. ? Hæ Sigga Dögg, Ég hef lesið pistlana þína nokkuð reglulega og þú talar oft um að lykillinn að góðu kynlífi sé tjáskipti, það að geta sagt til um hvað þú vilt. Þetta er alveg örugglega rétt hjá þér, en ertu með einhver ráð fyrir stelpur sem eiga alls ekki svo auðvelt með að tjá sig á þennan hátt án þess að fara í keng? Svar: Fyrir mörgum er kynlíf feimnismál og tilhugsunin um að biðja um ákveðna hluti mjög framandi. Ég held að fyrsta skrefið sé að vita hvað maður vill. Þegar þú veist það þá er næsta skref að geta beðið um það. Þar skiptir máli að þér líði vel með kynlífsfélaga þínum og þú treystir viðkomandi. Þú gætir „æft“ þig á vinkonum þínum eða vinum og þá skiptir ekki höfuðmáli að segja nákvæmlega frá því sem þér finnst gott heldur almennt að æfa þig í að tala um kynlíf. Æfing- in skapar meistarann og það gæti verið gott að byrja smátt og vinna sig svo upp frá því. Stundum getur verið auðveldara að færa athyglina frá sér þegar maður kynnist nýjum kynlífsfélaga. Fyrsta skrefið gæti verið að spyrja kynlífsfélagann hvað honum þyki gott og svo í fram- haldinu að segja hvað þér þykir gott. Byrjaðu strax og nefndu upphátt öll þau mismunandi nöfn sem þér dettur í hug fyrir kynfæri karla og kvenna. Góða skemmtun! Ef þú ert spennt fyrir því að prófa að vera með annarri stelpu þá gætu reglurnar snú- ist um það að kærasti þinn fengi eingöngu að vera áhorf- andi.“ Fatahönnunarfyrirtækin Andersen & Lauth og Farmers Market stóðu að viðburði í porti Hafnarhússins síðastliðið föstudagskvöld í tengslum við HönnunarMars. At- burðurinn nefndist Hljómur úr hönnun og var unninn í samstarfi við tónlistar- og kvikmyndagerðarfólk. Sýningin var vel sótt og gekk vel að blanda hinu ævintýralega yfirbragði A&L saman við sveitarómantíkina sem einkennir Farmers Market og úr varð heilsteypt og ævintýralega falleg tískusýning. Hárhönnunin vakti einnig athygli Föstudags enda var hún einstaklega falleg og í samræmi við rómantískt yfirbragð sýningar- innar. - sm Vel heppnuð sýning Andersen & Lauth og Farmers Market: Rómantík og ævintýri Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Gamaldags rómantík Fyrirsætan Elmar Johnson var á meðal þeirra sem sýndu fatnað Andersen & Lauth og Farmers Market. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ævintýralegt svið Fötin, sviðið og tónlistin gerðu upplifunina einstaka. Skemmtilegar andstæður Þessi fallegi kjóll er úr haustlínu Andersen & Lauth og er skreyttur fíngerðum keðjum. Fallegar greiðslur Hár og förðun var sérstaklega vel heppnað og í samræmi við gamaldags og rómantískt yfirbragð sýningarinnar. Skemmtileg samvinna Fatnaður Andersen & Lauth og Farmers Market fór vel saman þótt ólíkur sé. Trekantur og tjáning FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI? Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.