Fréttablaðið - 01.04.2011, Page 40
10 föstudagur 1. apríl
? Ég er í krísu! Kærasti minn vill prófa að fá aðra stelpu með okkur í rúmið og tönnlast endalaust á því. Ég veit ekki hvað ég á að gera því ég er
hrædd um að þetta gæti haft skrítin áhrif á sambandið og ég er líka hrædd
um að verða öfundsjúk. Vill maður eitthvað sjá kærasta sinn vera með ann-
arri stelpu og hvað ef ég enda útundan? Endar svona einhvern tímann vel?
Svar: Áhyggjur þínar eru réttmætar og fyrst þær eru til staðar þá er
ég ekki viss um að viðbótarrekkjunautur sé eitthvað sem þið ættuð
að prófa. Ég hvet þig til að forvitnast um hvaða hvati liggur að baki
því hjá kærastanum þínum að fá aðra stelpu í rúmið. Hvernig hafði
hann séð þetta fyrir sér; mætti viðbótarekkjunauturinn vera strákur?
Hvað má hver aðili gera við hvern? Þetta eru mikilvægar spurning-
ar sem þarf að fá skýr svör við og ef þið ákveðið að gera þetta þarf að
setja reglur og passa að báðir aðilar séu sáttir. Ef
þú ert spennt fyrir því að prófa að vera með ann-
arri stelpu þá gætu reglurnar snúist um það að
kærastinn þinn fengi eingöngu að vera áhorfandi.
Þó að pör hafi prófað að bæta við aðila í kynlífið
er það einstaklingsbundið hvort vel tekst til eða
ekki. Ef ykkur langar að krydda kynlífið gætuð þið
til dæmis talað um „ósýnilega“ þriðja aðilann og
hvað þið mynduð gera með viðkomandi. Passaðu
bara að láta ekki pressa þig út í eitthvað sem þú
ert ekki tilbúin í né sátt við.
? Hæ Sigga Dögg, Ég hef lesið pistlana þína nokkuð reglulega og þú talar oft um að lykillinn að góðu
kynlífi sé tjáskipti, það að geta sagt til um hvað þú
vilt. Þetta er alveg örugglega rétt hjá þér, en ertu með
einhver ráð fyrir stelpur sem eiga alls ekki svo auðvelt
með að tjá sig á þennan hátt án þess að fara í keng?
Svar: Fyrir mörgum er kynlíf feimnismál og tilhugsunin um að biðja
um ákveðna hluti mjög framandi. Ég held að fyrsta skrefið sé að vita
hvað maður vill. Þegar þú veist það þá er næsta skref að geta beðið
um það. Þar skiptir máli að þér líði vel með kynlífsfélaga þínum og
þú treystir viðkomandi. Þú gætir „æft“ þig á vinkonum þínum eða
vinum og þá skiptir ekki höfuðmáli að segja nákvæmlega frá því sem
þér finnst gott heldur almennt að æfa þig í að tala um kynlíf. Æfing-
in skapar meistarann og það gæti verið gott að byrja smátt og vinna
sig svo upp frá því. Stundum getur verið auðveldara að færa athyglina
frá sér þegar maður kynnist nýjum kynlífsfélaga. Fyrsta skrefið gæti
verið að spyrja kynlífsfélagann hvað honum þyki gott og svo í fram-
haldinu að segja hvað þér þykir gott. Byrjaðu strax og nefndu upphátt
öll þau mismunandi nöfn sem þér dettur í hug fyrir kynfæri karla og
kvenna. Góða skemmtun!
Ef þú ert
spennt
fyrir því að
prófa að vera
með annarri
stelpu þá gætu
reglurnar snú-
ist um það að
kærasti þinn
fengi eingöngu
að vera áhorf-
andi.“
Fatahönnunarfyrirtækin Andersen & Lauth og Farmers Market stóðu að viðburði í
porti Hafnarhússins síðastliðið föstudagskvöld í tengslum við HönnunarMars. At-
burðurinn nefndist Hljómur úr hönnun og var unninn í samstarfi við tónlistar- og
kvikmyndagerðarfólk.
Sýningin var vel sótt og gekk vel að blanda hinu ævintýralega yfirbragði A&L
saman við sveitarómantíkina sem einkennir Farmers Market og úr varð heilsteypt
og ævintýralega falleg tískusýning. Hárhönnunin vakti einnig athygli Föstudags
enda var hún einstaklega falleg og í samræmi við rómantískt yfirbragð sýningar-
innar. - sm
Vel heppnuð sýning Andersen & Lauth og Farmers Market:
Rómantík og ævintýri
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Gamaldags rómantík Fyrirsætan
Elmar Johnson var á meðal þeirra
sem sýndu fatnað Andersen & Lauth
og Farmers Market. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ævintýralegt svið Fötin, sviðið og
tónlistin gerðu upplifunina einstaka.
Skemmtilegar andstæður Þessi
fallegi kjóll er úr haustlínu Andersen
& Lauth og er skreyttur fíngerðum
keðjum.
Fallegar greiðslur Hár og förðun var sérstaklega
vel heppnað og í samræmi við gamaldags og
rómantískt yfirbragð sýningarinnar.
Skemmtileg samvinna Fatnaður Andersen &
Lauth og Farmers Market fór vel saman þótt ólíkur
sé.
Trekantur og tjáning
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.