Fréttablaðið - 01.04.2011, Page 6

Fréttablaðið - 01.04.2011, Page 6
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR6 FÓLK „Ég brast í grát þegar ég heyrði fréttirnar. Ég er ofsalega hrædd og vil ekki fara heim,“ segir Priyanka Thapa, 23 ára Nepali sem hefur verið synjað um dvalarleyfi á grund- velli mannúðarsjónarmiða á Íslandi. Priyanka stendur frammi fyrir því að þurfa að fara aftur heim til Nepals og giftast fertugum manni, sem hún hefur aldrei hitt, til að bjarga fjölskyldu sinni frá sárri fátækt. Priyanka hefur starfað sem barn- fóstra hjá átta manna fjölskyldu hér á landi. Fjölskyldan hefur tekið henni opnum örmum og boðið henni að búa áfram hjá sér. Priyanka hefur auk þess lagt stund á nám í verk- og raunvísindadeild við háskólabrú Keilis með ótrúlega góðum árangri. Hún útskrifast í maí og hyggur á frekara nám í lyfja- eða efnafræði. Priyanka sagði sögu sína í Frétta- blaðinu síðasta aðfangadag. Þar kom fram að hún ólst upp hjá einstæðri móður sem getur ekki lengur fram- fleytt sér né fötluðum syni sínum af heilsufarsástæðum. Því greip hún til þess ráðs að gefa Priyönku. „Lífi mínu er hreinlega lokið ef ég fer aftur heim. Þar bíða mín gamlir karlar og ömurlegar aðstæð- ur – í raun bara þrældómur,“ sagði Priyanka, sem hafði vonast til að geta búið áfram á Íslandi, fengið sér vinnu meðfram námi og framfleytt fjölskyldu sinni þannig. Útlendingastofnun hefur úrskurð- að að Priyanka uppfylli ekki skil- yrði um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í ákvörðun- inni er vitnað í tölvupóst frá bróð- ur Priyönku, sem hvetur hana til að giftast manninum, annars fari illa fyrir allri fjölskyldunni. Hún verði auk þess fjölskyldunni til skammar þar sem manninum hafi verið lofað að giftast henni. Hún er beðin um að tilkynna ákvörðun sína eins fljótt og hún geti og vinsamlegast beðin um að koma heim. Útlendingastofnun telur að þar sem bróðir Priyönku biðji hana um að upplýsa um „ákvörðun“ sína og að hún sé „vinsamlegast“ beðin um að koma heim sé henni í raun í sjálfs- vald sett hvort hún giftist mannin- um. Þá telur stofnunin ekkert benda til þess að fari Priyanka heim til Nepal verði hún neydd í hjónaband eða að ómannúðleg eða vanvirð- andi meðferð bíði hennar. Og þótt Priyanka segist eiga bjartari fram- tíð og betri möguleika til náms á Íslandi telur Útlendingastofnun það eitt og sér ekki ástæðu til að veita henni dvalarleyfið. Í úrskurðinum kemur fram að stofnunin hafi farið yfir gögn sem varða réttindi kvenna í Nepal, þar á meðal hjónabönd, sem voru höfð til hliðsjónar við ákvörðunar í máli Priyönku. Þar er meðal annars vitn- að í norsku Útlendingastofnunina, sem staðfesti að hefðin í Nepal væri sú að foreldrar ákvæðu maka fyrir börn sín og hvenær þau gengju í hjónaband. Félagsleg staða fjöl- skyldunnar, menntun og fjárhagur hefði áhrif á val á maka. Rannsóknir sýndu hins vegar að viðhorf til þessa fyrirkomulags væru að breytast; hjónaböndum þar sem aðilar ákvæðu sjálfir makaval sitt færi fjölgandi og umburðarlyndi gagnvart slíkum hjónaböndum væri að aukast. Útlendingastofn- un telur að þessi viðhorfsbreyting renni einnig stoðum undir það að Priyanka verði ekki neydd í hjóna- band fari hún aftur til síns heima. Ekki náðist í Kristínu Völund- ardóttur, forstjóra Útlendinga- stofnunar, í gær. kristjan@frettabladid.is Brast í grát eftir synjunina Priyönku Thapa hefur verið neitað um dvalarleyfi á Íslandi. Hún hefur verið gefin í hjónaband í heima- landi sínu. Lögin kveða á um að taka beri sérstakt tillit til kvenna sem eru í sömu sporum og Priyanka. Lögum um útlendinga var breytt í fyrra. Í greinargerð sem fylgir lögunum kemur fram að veita verði stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvenær rétt sé að veita dvalarleyfi. Þar kemur fram að taka verði tillit til almennra aðstæðna í heimalandi hælisleitenda eða því landi sem hann verði sendur til. Þar segir jafnframt að útlendingar hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og má þar sem dæmi nefna aðstæður kvenna sem annað hvort hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimalandi, eða aðstæður kvenna sem ekki aðhyllast kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Horfa ber til aðstæðna kvenna „Ákvörðun Útlendingastofnunar er óneitanlega sérstök. Það er mín skoðun að ekki sé tekið tillit til þess að hennar bíður nauðungarbrúðkaup í Nepal fái hún ekki dvalarleyfi,“ segir Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður Priyönku. Sigurður Örn segir að Alþingi hafi áréttað sérstaklega með lögum árið 2010 að konur í sambærilegri stöðu og Priyanka ættu rétt á dvalarleyfi hér á landi. Þar væri sérstaklega dregið fram að taka ætti tillit til kvenna sem ættu á hættu að verða settar í einhvers konar kynhlutverk í heimalandi sínu sem þær sættu sig ekki við. „Þessi vilji löggjafans virðist ekki koma fram í ákvörðun Útlendingastofnunar,“ segir Sigurður Örn. Næsta skref sé að leita leiða til að hnekkja ákvörðuninni og þar séu tvær leiðir færar; að kæra hana til innanríkis- ráðuneytisins eða krefjast endurupptöku á málinu. „Við teljum að forsendur stofnunarinnar séu rangar og að hún hafi lagt rangt mat á sönnunargögnin.“ Óneitanlega sérstök ákvörðun VITA er lífið Alicante VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is Flugsæti Verð frá 66.500 kr. Innifalið: Flug fram og til baka og flugvallarskattar. Vikulegt flug frá 14. apríl til 6. okt. 2011. ÍS L E N S K A /S IA .I S V IT 5 44 08 0 3/ 11 Ég brast í grát þegar ég heyrði fréttirnar. Ég er ofsalega hrædd og vil ekki fara heim. PRIYANKA THAPA ALÞINGI Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun á næst- unni gefa út tilmæli um að hætt verði að nota gúmmíkurl unnið úr notuðum bíldekkjum á gervi- grasvelli hér á landi. Þetta kom fram í svari hennar við fyrir- spurn Sivjar Friðleifsdóttur á þingi fyrr í vikunni. Siv vísaði í sænska löggjöf þess efnis að við viðhald gervi- grasvalla væri notast við hættu- laust efni og sagði ráðherra að Umhverfisstofnun myndi gefa út tilmæli um slíkt. Ráðherra sagði að rannsóknir gæfu ekki til kynna að kurl úr dekkjum væri heilsuspillandi, en það geti valdið ofnæmisviðbrögð- um og myndun svifryks. - þj Skaðleg efni á gervigrasi: Ráðherra gegn gúmmíkurlinu GÚMMÍKURL Á GERVIGRASI Ráðherra hefur falið Umhverfisstofnun að mælast til um að hættulaus efni verði notuð á gervigras. DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði í gær mann af ákæru um hrottalegt ofbeldisverk. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í tveggja og hálfs árs fangelsi. Sá sem varð fyrir árásinni sagði í lögregluskýrslu að maður- inn hefði meðal annars barið hann með hnúajárni og sparkað ítrekað í höfuð hans. Tennur, nef og fingur mannsins brotnuðu við atlöguna. Hæstiréttur snýr dómnum aðal- lega vegna fjölmargra galla á málsmeðferðinni. Annars vegar var rannsókn lögreglu mjög áfátt. Lögregla yfirgaf vettvang árásarinnar og skildi eftir óvarinn þar til sá sem annast átti þar rannsókn mætti klukkustundum síðar. Ekki er vitað hvort einhver fór inn í húsið á þeim tíma. Þá fór ekki fram nein rannsókn á blóðugum skóförum á gólfinu. Sakborningurinn var handtek- inn og færður í fangageymslu en hafði síma meðferðis og hringdi í vitni sem hann taldi að gæti tryggt sér fjarvistarsönnun. Að lokum var ósamræmi í gögnum um rannsókn fingrafara á glösum. - sh Fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir hrottaskap í héraði en sýknaður í Hæstarétti: Fjölmargir gallar á lögreglurannsókn Þolandinn neitaði að mæta fyrir rétt til að vitna um það sem gerðist. Hæstiréttur slær því föstu að það hafi verið af ótta við að mæta þar meintum árásarmanni. Ekki var hins vegar leitað eftir því að hann mætti að sakborninginum fjarstöddum eða að hann yrði sektaður fyrir að brjóta vitnaskyldu. Hæstiréttur telur þetta ótækt, því að dómari hafi þurft að spyrja manninn mun nánar um málið. Þorði ekki að tala Íris Lind tekur sæti Íris Lind Sæmundsdóttir hefur samþykkt að sitja í stjórnlagaráði í stað Ingu Lindar Karlsdóttur sem afþakkaði sitt sæti. Fullskipað er þá í stjórnlagaráð, sem kemur saman til fyrsta fundar á miðvikudag í næstu viku. STJÓRNLAGARÁÐ DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Manninum er gefið að sök að hafa sem starfsmaður í verslun 10-11, Hraðkaupum, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, dregið sér samtals kr. 155.500. Aðferðin sem hann notaði var að bakfæra greiðslur undir því yfirskyni að verið væri að skila símakortum. Þess er krafist að maðurinn greiði skaðabætur að upphæð ríflega 107 þúsund krónur. - jss Ákærður fyrir fjárdrátt: Þóttist bakfæra símakort Ert þú farin(n) að skipuleggja sumarfríið? Já 49,9% Nei 50,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Heldurðu að það sé langt í kjarasamninga? Segðu skoðun þína á visir.is PRIYANKA THAPA Vinir Priyönku hafa stofnað fésbókarsíðu henni til stuðnings. Þau ætla að afhenda Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftalista. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.