Fréttablaðið - 01.04.2011, Síða 8
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR
Nokia E7 er einn öflugasti viðskiptasíminn
á markaðinum, með öflugan stuðning við
MS Office™, MS Communicator™, Outlook™
og Lotus NotesTraveler™.
Hann er með stóran snertiskjá og QWERTY-
lyklaborð svo einstaklega þægilegt er að
vafra um vefinn, skoða skjöl og eiga tölvu-
póstsamskipti.
129.995
Verð
Verslu
n
Ármúl
a 26
522 30
00
Opið:
virka d
aga
9.30–1
8
laugar
daga
12–17
www.hataekni . is /E7
V i l t u v i t a
m e i r a u m
þ e t t a t æ k i ?
AMOLED snertiskjár
stuðningur
kortum og raddleiðsögn
sjónvarp og/eða
skjávarpa
Það er enginn
að snuða
Breta og
Hollendinga
ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella
Icesave-lögin þann 9. apríl. Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með
frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is
www.advice.is
Með íslensku neyðarlög-
unum voru hagsmunir inni-
stæðueigenda í Bretlandi
og Hollandi tryggðir mun
betur en tilskipun ESB um
innistæðutryggingar fer fram
á: Í stað 674 milljarða munu
þeir fá 1175 milljarða.
En þeir vilja samt meira.
Að við tökum ábyrgð á
þrotabúinu og borgum
líka vexti. Okkur ber engin
skylda til að verða við því,
hvorki lagaleg né siðferðileg.
Greiðsla til Breta
og Hollendinga
ESB
tilskipun
674
1.175
Óvíst
Ef Nei Ef JÁ
DANMÖRK Fyrstu tveir af „rokkur-
unum“ sextán, meðlimum í Vítis-
englum eða AK81 sem ákærðir
eru fyrir morðtilraunir og marg-
víslega aðra glæpi, voru kallaðir
til vitnis í réttarsal í gær en neit-
uðu að tjá sig.
Mennirnir tveir eru sakaðir um
að hafa lagt á ráðin um að myrða
meðlim í innflytjendaklíku í
Kaupmannahöfn en ekkert varð
af ódæðinu þar sem fyrirhugað
skotmark fannst ekki þegar til
kastanna kom.
Þetta mál er það umsvifamesta
sem höfðað hefur verið gegn
dönskum rokkurum. Réttarhöld-
in eru talin verða langvinn og
standa jafnvel fram á haust. - þj
Danskir „rokkarar“ fyrir rétti:
Neituðu að tjá
sig um ákærur
VÍTISENGLAR Réttarhöld standa nú yfir
gegn hópi danskra „rokkara“. Þeir vilja
ekki tjá sig í vitnastúkunni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Góði hirðirinn borgi skatt
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur enn
á ný hafnað ósk Góða hirðisins um
styrkveitingu í formi eftirgjafar á
fasteignaskatti. Bæjarráð synjaði sams
konar ósk í fyrra en Góði hirðirinn
bað um endurupptöku málsins.
HAFNARFJÖRÐUR
ICESAVE Ef Icesave-samninganefnd-
in undir forystu Lee Buchheit
hefði ekki náð jafngóðum samn-
ingum við Breta og Hollendinga og
raun ber vitni hefði Alþingi – og
nú íslenska þjóðin – staðið frammi
fyrir mun auðveldari ákvörðun
við afgreiðslu málsins. Þetta sagði
Buchheit á fyrirlestri í Háskóla
Íslands í gær.
Buchheit sagði val þjóðarinnar
mjög erfitt og þakkaði guði fyrir
að standa ekki í hennar sporum.
Það snerist í raun um að leggja
mat á óvissuna sem lægi sín hvoru
megin kjalar, annars vegar óviss-
una um gengisþróun og heimtur
úr þrotabúi Landsbankans sem
fylgdu já-leiðinni og hins vegar
óvissuna sem óhjákvæmilega
hlytist af nei-leiðinni og dóms-
málinu sem líklega risi í
kjölfarið.
Buchheit áréttaði hins
vegar að fyrri óvissuþætt-
irnir hefðu verið hafðir
mjög í huga við samnings-
gerðina og niðurstaða við-
ræðnanna tæki sér-
stakt mið af
þeim. Þannig
væru varnir
gegn óhóflegri
greiðslubyrði
Íslendinga
t i l dæmis
innbyggðar
í samningana. Á hinn bóginn
hefði ekkert tillit verið tekið
til óvissunnar sem skapaðist ef
samningunum yrði hafnað.
Buchheit sagði að yrði samn-
ingunum hafnað tæki að líkindum
við langt ferli fyrir EFTA-dóm-
stólnum og ef við töpuðum
málinu þyrftum við senni-
lega að semja enn eina
ferðina, þá um það hvernig
staðið yrði að því að endur-
greiða mun hærri upphæð
með mun veikari samn-
ingsstöðu.
Buchheit sagði að
ástæðan fyrir
því að Bret-
ar og Hol-
lendingar
vildu semja
væri sú að
þeir óttuð-
ust dómstólaleiðina, og ekki síst
möguleg áhrif hennar á banka-
kerfi Evrópu í heild – jafnvel þótt
þeir væru sannfærðir um rétt
sinn. Samninganefnd Íslands hefði
spilað á þennan ótta og einn kollegi
hans í nefndinni hefði iðulega lokið
fundum með því að segja háðskt:
„Sjáumst í réttarsal.“
Buchheit var spurður um sið-
ferðilega hlið málsins og svaraði
því til að Íslendingar bæru tals-
verða ábyrgð í málinu. Hins vegar
hefðu það eftir á að hyggja, að hans
mati, verið mistök hjá breskum og
hollenskum stjórnvöldum að greiða
reikningshöfum út Icesave-inni-
stæðurnar upp í topp. Réttast hefði
líklega verið að endurreikna þær
miðað við eðlilega vexti sem stóðu
fólki til boði í bönkum á þessum
tíma og greiða út í samræmi við
það. stigur@frettabladid.is
Valið væri auðveldara
með lélegri samning
Lee Buchheit segir að ef þriðji Icesave-samningurinn væri ekki svona miklu
betri en sá sem á undan fór stæði þjóðin frammi mun auðveldara vali en ella.
Bæði já og nei feli í sér óvissu en í samningnum séu varnir gegn já-óvissunni.
Lee Buchheit var spurður að því á fundinum í gær hver greiddi fyrir komu
hans til landsins til að halda fyrirlesturinn.
Buchheit svaraði því að hann hefði til þessa fengið greitt frá ríkinu fyrir að
kynna fólki innihald samningsins, enda hefði hann litið svo á að það væri
meðal hlutverka hans sem formanns nefndarinnar.
Í gærmorgun hefði hann hins vegar haft samband við fjármálaráðuneytið
og látið vita af því að honum þætti hlutverk hans nú hafa breyst og að þessi
fyrirlestur væri ekki bein kynning á efni samningsins. Því myndi hann ekki
þiggja greiðslu fyrir ferðina.
Afsalar sér greiðslu frá ríkinu
LEE C.
BUCHHEIT