Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 16
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR16
FRÉTTASKÝRING: Hvað er líklegt að Icesave kosti skattgreiðendur? 3. hluti
Það eru einkum óvissa um gengi
krónunnar, heimtur úr þrotabúi
Landsbankans og hvenær greitt
verður út úr því sem veldur óvissu
um hversu háar fjárhæðir gætu lent
á íslenskum almenningi verði Ice-
save-samningurinn samþykktur, segir
Jón Helgi Egilsson, hagfræðingur og
meðlimur í Advice-hópnum.
„Í fyrsta lagi er spurning um
gengið sem menn eru að miða við.
Samkvæmt mati Seðlabanka Íslands
mun Icesave-skuldbinding þrefaldast ef gengi krónunnar
fellur um 25 prósent. Sé gengi krónunnar skoðað í
sögulegu samhengi er þess háttar veiking vel möguleg,“
segir Jón Helgi.
„Svo er spurning hvaða gengi við eigum að miða við.
Gengi dagsins er vegna gjaldeyrishafta. Ef við miðum við
aflandskrónur er gengið 35 prósentum lægra,“ segir Jón.
„Það er því firra að tala um að kostnaðurinn sé þekkt
stærð. Þetta er opinn tékki og kostnaðurinn getur legið á
bilinu frá litlu upp í hundruð milljarða króna,“ segir hann.
„Rannsóknir sýna að raungengi gjaldmiðils getur verið
víðsfjarri langtímameðaltali í fjölda ára. Það getur náð
jafnvægi á Íslandi með hlutfallslega hárri verðbólgu.
Auk þess þess getur raungengi náð jafnvægi í gegnum
hlutfallslega háa verðbólgu á Íslandi og það þýðir skert
lífskjör,“ segir Jón Helgi.
Samninganefndin gerir ráð fyrir að greitt verði
mjög hratt út úr þrotabúi Landsbankans, en tæplega
þriðjungur af búinu er skulda- og hlutabréf í nýja Lands-
bankanum, segir Jón Helgi. Gengið sé út frá því að
þessi bréf verði seld, og þá sé spurningin hverjir greiði
skuldabréfið á endanum. Jón Helgi segir það á endanum
falla á viðskiptavini bankans.
„Ég á eftir að sjá að það sé svona auðvelt að selja
þessi hluta- og skuldabréf í nýja Landsbankanum og fá
gjaldeyri fyrir og að slíkt hafi ekki áhrif á gengi,“ segir Jón
Helgi. „Svo getum við ekki látið sem eignaverð í heim-
inum sveiflist ekki; jafnvel skráðar eignir sveiflast töluvert
mikið. Eignirnar eru fjárhagsleg áhætta sem bætist við
gengisáhættu og áhættu vegna áætlunar um útgreiðslur.
Lítil töf þar skiptir milljörðum,“ segir Jón Helgi.
„Þetta er alls ekki fast í hendi enda vilja Bretar og
Hollendingar ekki snerta á þessu. Af hverju ættu íslenskir
skattgreiðendur að taka á sig alla áhættu þegar ávinn-
ingurinn rennur til innistæðueigenda og stjórnvalda í
Bretlandi og Hollandi vegna neyðarlaganna?“
Kostnaðurinn ekki þekkt stærð
Kostnaðarmat samninganefnda
Íslands í Icesave-deilunni byggir
fyrst og fremst á varfærnu mati
skilanefndar Landsbankans.
„Frá því í apríl 2009 hefur áætlað
mat eigna búsins hækkað um að
meðaltali 23 milljarða á hverjum árs-
fjórðungi. Það eru um 160 milljarðar
frá apríl 2009 til síðustu áramóta.
Það segir manni að þetta er að
þróast í rétta átt,“ segir Lárus.
Einnig þarf að horfa til sam-
setningar eignasafns þrotabús Landsbankans. Þar eru nú
um 400 milljarðar í peningum og fer vaxandi. Þá er verð-
tryggt skuldabréf Nýja Landsbankans milli 300 og 400
milljarðar. „Það er orðinn býsna stór hluti af kökunni sem
er í algerlega tryggum eignum sem allir geta lagt mat á,“
segir Lárus. „Ég met það þannig að það sé alls ekki mikil
áhætta í eignasafninu sjálfu.“
Ein af stærstu eignum þrotabúsins er verslanakeðjan
Iceland Foods. Lárus bendir á að skilanefndin sé mjög
varfærin í mati á verðmæti keðjunnar. Verði hún seld á
því verði sem nú sé fullyrt að verið sé að bjóða í hana
muni Icesave-skuldin hverfa algerlega.
„Núna er staðan önnur en hún var fyrir hrun. Þá sner-
ist allt um að blása sem mestu lofti í blöðruna en núna
snýst allt um hið gagnstæða. Það hentar skilanefndinni
betur að meta eignirnar á lægra verði og koma óvænt
með betri niðurstöðu en að meta eignirnar á hærra
verði og koma svo með verri niðurstöðu. Það er ákveðin
varkárni byggð inn í þetta kerfi,“ segir Lárus.
Þróunin á gengi íslensku krónunnar getur haft veruleg
áhrif á kostnað íslenska ríkisins vegna Icesave. „Gengið
er í raun eini stóri áhættuþátturinn að mínu mati,“
segir Lárus. Frá því kröfum var lýst í þrotabúið hefur
krónan styrkst, en hrapi hún getur það haft mikil áhrif á
kostnaðinn. Það þyrfti þó að vera mikið, og því fyrr sem
það myndi gerast þeim mun verra væri það, segir Lárus.
Gjaldeyrishöftin leiða þó að hans mati til þess að hættan
á miklu falli krónunnar sé afar lítil.
Allir þeir áhættuþættir sem eiga við um Icesave-
samninginn eiga ekki síður við um það sem gerist verði
samningnum hafnað og Ísland tapi dómsmáli í kjölfarið,
segir Lárus. „Það skiptir ekki máli hvort borgað er sam-
kvæmt samningi eða dómi, það eru sömu áhættuþættir.
Gengið og endurheimtur úr búinu hafa sömu áhrif. Við
losnum ekki við áhættuna þó að samningurinn verði
felldur, nema auðvitað ef dómsmál vinnst.“
Sama áhættan tapist dómsmál
Meðal þess sem gæti ráðið
úrslitum þegar gengið
verður til atkvæða um
Icesave-samninginn er
mat kjósenda á því hversu
mikill kostnaður fellur á
ríkið. Nokkrir óvissuþættir
flækja kostnaðarmatið.
Talsverð óvissa er um hversu mik-
ill kostnaður lendir á íslenskum
skattgreiðendum, samþykki lands-
menn Icesave-samninginn í þjóð-
aratkvæðagreiðslu laugardaginn
9. apríl. Samninganefnd Íslands
í deilunni segir það varfærið mat
að kostnaðurinn gæti orðið 32
milljarðar króna. Það er margfalt
lægra en mat á kostnaði við þann
samning sem þjóðin hafnaði í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í mars í fyrra.
Talið var að kostnaður íslenska rík-
isins við þann samning yrði um 162
milljarðar króna.
Í nýlegri greinargerð samninga-
nefndarinnar voru settar fram
tvær fráviksspár. Í annarri var
gert ráð fyrir betri heimtum úr
þrotabúi Landsbankans en nú er
gert ráð fyrir. Samkvæmt henni
verður enginn kostnaður við samn-
inginn, og raunar þriggja milljarða
króna eftirstöðvar.
Í hinni spánni var gert ráð fyrir
tuttugu prósenta afföllum af öðrum
eignum þrotabús Landsbankans en
þeim sem segja má að séu í hendi.
Samkvæmt henni verður kostnað-
urinn 98 milljarðar króna.
Það eru einkum tvö atriði sem
valda óvissu um nákvæmlega hver
kostnaðurinn verður. Í fyrsta lagi
skiptir máli hvernig gengi krón-
unnar þróast. Í öðru lagi skiptir
máli nákvæmlega hversu mikið
fæst fyrir eignir sem eru í þrota-
búi Landsbankans.
Mat nefndarinnar á kostnaði
byggir nær eingöngu á mati skila-
nefndarinnar á verðmæti eigna
þrotabúsins. Það mat er talið var-
færið og möguleiki að heimtur
verði betri en mat þeirra segir til
um. Skilanefndin er ekki ein um að
meta verðmætið; óháðir sérfræð-
ingar hafa verið fengnir til að gera
sjálfstætt mat á eignunum.
Gengið má veikjast nokkuð
Skuldir við Breta og Hollendinga
eru í breskum pundum og evrum,
en kröfur Tryggingasjóðs inn-
stæðueigenda og fjárfesta á þrota-
búi Landsbankans eru í íslenskum
krónum. Þar verður til ákveðin
gengisáhætta.
Veikist gengi krónunnar þarf
að borga fleiri krónur fyrir skuld-
ina. Á móti kemur að eignir þrota-
bús Landsbankans eru að mestu
í erlendum myntum. Veiking á
gengi krónunnar myndi því auka
fjölda íslenskra króna sem fást
út úr þrotabúinu. Þar sem Trygg-
ingasjóðurinn á forgangskröfu sem
nemur 51,26 prósentum af því sem
fæst úr þrotabúinu myndi veiking
krónunnar skila sjóðinum betri
endurheimtum.
Fram kemur í grein sem Friðrik
Már Baldursson, prófessor í hag-
fræði við Háskóla Íslands, skrif-
aði í Fréttablaðið nýverið að gengi
krónunnar megi veikjast um tólf
prósent frá síðustu áramótum án
þess að það hafi áhrif á kostnað
við Icesave-samninginn. Gengið
hefur raunar þegar veikst um fimm
prósent frá áramótum.
Veikist gengið meira aukast
heimtur úr þrotabúinu, en þar sem
íslenski tryggingarsjóðurinn fær
ekki meira en 677 milljarða úr
þrotabúinu, sem ætti að fást veik-
ist krónan um tólf prósent, hefur öll
veiking umfram það þau áhrif að
skuldirnar aukast án þess að meira
fáist úr þrotabúinu.
Friðrik Már bendir á að raun-
gengi krónunnar sé nú um tuttugu
til þrjátíu prósentum fyrir neðan
meðaltal síðustu áratuga, jafnvel
þó að þensluárunum skömmu fyrir
hrun sé sleppt. Ekki sé hægt að
útiloka sveiflur á gengi krónunnar,
en efnahagslegar forsendur virð-
ist vart fyrir hendi. Þá geti Seðla-
bankinn stjórnað að verulegu leyti
breytingum á gengi krónunnar svo
lengi sem gengishöftin verði í gildi.
Skilanefnd Landsbankans telur
nú að um 89 prósent af forgangs-
kröfum í þrotabúið fáist greiddar.
Íslenski tryggingasjóðurinn á 51,29
prósent af forgangskröfum í búið.
Samkvæmt síðasta mati skila-
nefndarinnar nema áætlaðar
heimtur úr þrotabúi Landsbankans
1.175 milljörðum króna. Verði það
lokaniðurstaðan fær tryggingasjóð-
urinn um 602 milljarða upp í kröfur
sínar. Kröfur sjóðsins nema sam-
tals 677 milljörðum með vöxtum.
677 milljarðar króna í hendi
Friðrik Már er sammála mati
samninganefndar Íslands um að
mat skilanefndar Landsbankans sé
varfærið. Hann bendir á að nefndin
hafi enga hagsmuni af því að gera
meira úr virði eigna þrotabúsins en
efni standi til.
Í uppfærðu mati samninganefnd-
ar Íslands á kostnaði við Icesave-
samninginn er vísað til þess að
samsetning eigna bús Landsbank-
ans hafi breyst frá fyrra mati.
Hærra hlutfall er nú í reiðufé og
verðtryggðu skuldabréfi, sam-
tals um 677 milljarðar króna. For-
sendur áætlana skilanefndarinn-
ar um endurheimtur úr búinu séu
því traustari en áður og óvissa hafi
minnkað.
Þetta þýðir að um 677 milljarðar
af þeim 1.175 milljörðum sem taldir
eru liggja í þrotabúinu eru í hendi,
ef svo má segja. Óvissan snýst því
um hversu nákvæmar áætlanir á
virði annarra eigna þrotabúsins
eru, en þær eru í dag metnar á 498
milljarða króna.
Fjallað verður nánar um hættuna
á gengisfalli krónunnar og endur-
heimtur úr þrotabúi Landsbankans
síðar í greinaflokki Fréttablaðsins.
Gengið og heimtur þrotabús valda óvissu
KOSTNAÐUR Íslenska samninganefndin telur kostnað við Icesave-samninginn verða um 32 milljarða miðað við þær forsendur
sem nú eru til staðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓN HELGI
EGILSSON
Óvissa er um tvö lagaleg atriði sem geta haft mikil áhrif á kostnað íslenskra
skattgreiðenda vegna Icesave. Tekist er á um þessi atriði fyrir dómstólum og
mun dómur falla um annað atriðið í dag.
Í mati samninganefndar Íslands í Icesave-málinu á kostnaði ríkisins vegna
Icesave er ekki reiknað með hagstæðri niðurstöðu í dómsölunum. Verði
niðurstaðan í öðru hvoru málinu hagstæð ætti íslenska ríkið að sleppa
alfarið við kostnað vegna Icesave.
Í dag verður kveðinn upp dómur í níu málum þar sem tekist er á um
hvort heildsöluinnlán séu í raun forgangskröfur í bú hinna gjaldþrota
íslensku banka. Skilanefnd Landsbankans hefur skilgreint heildsöluinnlánin
sem forgangskröfur, en aðrir kröfuhafar hafa höfðað mál til að fá því hnekkt.
Teljist heildsöluinnlánin, sem nema um 150 milljörðum króna, ekki for-
gangskröfur lækka forgangskröfur í bú Landsbankans úr 1.319 milljörðum
króna í 1.169 milljarða króna. Slitastjórnin metur eignasafn þrotabúsins
á 1.175 milljarða króna. Sé það mat rétt myndi kostnaður skattgreiðenda
vegna Icesave-málsins verða enginn, þar sem tryggingasjóðurinn fengi allar
sínar kröfur greiddar.
Hitt lagalega atriðið sem tekist er á um er hvort íslenski tryggingasjóður-
inn eigi forgang til greiðslna úr búinu umfram aðra innstæðutryggingasjóði.
Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður hefur haldið því fram að svo sé. Trygginga-
sjóðurinn hefur höfðað mál til að freista þess að fá þetta staðfest. Gerist
það fær sjóðurinn allar sínar kröfur greiddar upp í topp og kostnaður skatt-
greiðenda verður enginn.
Dómur um heildsölulán fellur í dag
LÁRUS
BLÖNDAL
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Gott úrval vinnukolla
Sterkir – þægilegir – styðja undir rétta setstöðu