Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 01.04.2011, Qupperneq 22
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR22 V altýr Sigurðsson stendur upp af stóli embættis ríkissak- sóknara í dag. Því starfi hefur hann gegnt um árabil og ekki alltaf siglt lygnan sjó. En hvers vegna ákvað hann að hætta á þessum tímapunkti? „Það er ár síðan ég komst á full eftirlaun. Embættið er fimm- tíu ára í júlí og ég tel að nýr sak- sóknari eigi möguleika á að byggja embættið upp og gera kröfur. Ég er baráttumaður en mér finnst þessi barátta ekki lengur skemmtileg. Ég hefði kosið miklu meiri hraða á ákvarðanatöku stjórnvalda hvað varðar til að mynda skipun héraðs- saksóknara, umgjörð um ákæru- vald lögreglu, fjármagn til emb- ættisins til að geta sinnt eftirliti, fræðslu og uppbyggingu ákær- enda. Við erum eftirbátar ann- arra Norður landaríkja hvað þetta varðar.“ Valtýr bendir á að mörg störf séu á ákærendur lögð, þeir séu einir á móti hópum verjenda í stórum málum, þeir þurfi að sjá um alla tæknivinnu og boða vitni. Verjend- ur séu búnir að sækja námskeið áður en að þeir taki að sér mál en ákærendur komi beint frá próf- borðinu. Óviðeigandi og tilefnislaus árás Valtýr ræddi á málþingi með ákær- endum á dögunum um afskipti framkvæmdarvaldsins af ákæru- valdinu og nefndi þar Jóhönnu Sig- urðardóttur sérstaklega til sögunn- ar. Hann segir þetta gamla sögu og nýja. „Það hefur verið stór þáttur í starfi mínu að hafa samskipti við stjórnvöld, á einn eða annan hátt. Á fjörutíu ára starfsferli hef ég starfað með fimmtán ráðherrum og má því nærri geta að á ýmsu getur gengið enda áherslurnar mismun- andi og mennirnir sömuleiðis. Um þetta gæti ég nefnt mörg dæmi. Ég hef aldrei legið á skoðunum mínum og menn verða bara að taka því. Á umræddu málþingi fjallaði ég um sjálfstæði ákæruvaldsins en til stóð með nýjum lögum að styrkja það. Ég spurði þeirrar spurningar hvort það hefði tekist og bar sjálf- stæði ákæruvaldsins saman við sjálfstæði dómstóla. Ég benti á ég hefði vikið sæti í öllum málum sem heyrðu undir embætti sér- staks saksóknara, en engu að síður tilkynnti forsætisráðherra í sjón- varpi nokkrum vikum síðar að mér bæri að víkja alfarið úr starfi. Ég tel að árás á ríkissaksóknara og embætti hans með þessum hætti hafi verið bæði óviðeigandi og til- efnislaus. Tilgangurinn var sá að nýta sér pólitískan meðbyr á óróa- tímabili. Ég hef úrskurðað marga menn í gæsluvarðhald. Ég hef sem forstjóri Fangelsismálastofnunar í tæp fimm ár fylgst með mönnum sem sitja í gæsluvarðhaldi. Gæslu- varðhaldsvist er grafalvarlegt mál og getur aldrei verið fagnaðarefni. Mér blöskraði því þegar forsætis- ráðherra sá hag sinn í því að lýsa ánægju sinni yfir slíku.“ Hausaveiðar og hreinsanir Valtýr segir að eftir hrun bankanna hafi verið vilji til að skapa nýtt sam- félag, þar sem allir gætu sagt skoð- anir sínar og ákvarðanir væru tekn- ar eftir upplýsta umræðu. „Eins og menn vita mistókst það hrapallega. Aldrei var hættulegra en þá að tjá skoðanir sínar sem eru ákveðnum öflum andsnúnar. Aldrei áður áttu sér stað aðrar eins hausaveiðar og hreinsanir. Slíkt samfélag hugnað- ist mér ekki og ekki þáttur stjórn- valda í því.“ Valtýr hefur einnig gagnrýnt Evu Joly og að hún hafi gengið út frá því að sakborningar væru sekir. Telur hann einhverja hættu á að grundvallarreglum réttarríkisins sé ekki fylgt í rannsókn á hruninu? „Eva Joly er fyrst og fremst stjórnmálamaður. Öll hennar fram- koma einkenndist af því. Hún var ráðgjafi ríkisstjórnarinnar en einnig ráðgjafi sérstaks saksókn- ara. Slíkt er ekki heppilegt. Í ræðu minni á fundi ákærendafélagsins vék ég að því hvort þáttur hennar hefði verið til þess fallinn að efla ákæruvaldið, styrkja sjálfstæði þess og auka réttaröryggi borg- aranna, til dæmis hvort ummæli hennar um kærða og grunaða ein- staklinga hefðu verið í anda laga um að ákærendur skuli gæta jafnt að þeim atriðum er horfa til sýknu og sektar. Þá vildi ég að menn hug- leiddu hvað hefði gerst ef stjórn- völd hefðu ráðið Evu Joly til dóm- stólanna til að kenna dómurum að dæma „þessa glæpamenn“. Af orðum hennar að dæma var ekki vanþörf á að taka til á þeim bæ.“ Sigurður sonur Valtýs var í for- stjórastóli Exista; þess vegna sagði ríkissaksóknari sig frá rann- sókn hrunmála. Litast gagnrýni hans á hvernig útrásarvíkingar eru dæmdir fyrir fram af þessum tengslum? „Ég tel svo ekki vera, enda hef ég ávallt verið talsmaður þess að farið sé að grunnreglum réttarríkisins. Þetta vita þeir sem mig þekkja. Sé sonur minn sekur um einhverja refsiverða háttsemi er ekki hægt að ætlast til annars en að hann fái réttláta málsmeðferð eins og aðrir. Ég vék sæti í málaflokknum í upp- hafi af öryggisástæðum, þar sem ríkissaksóknari getur gefið einstök rannsóknarfyrirmæli þótt hann sé ekki yfirmaður sérstaks saksókn- ara né annarra stofnana sem fara með ákæruvald.“ Fjársvelt árum saman Hvernig hefur verið búið að ákæru- valdinu? Hefur það nóga peninga og mannskap til að koma höndum yfir glæpamenn og berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi? „Áður en ég varð ríkissaksókn- ari hafði forveri minn í starfi ritað dómsmálaráðuneytinu og benti á erfiða fjárhagsstöðu embættisins og að tryggja þyrfti fjárhagslegt sjálfstæði þess. Það gefur auga leið að embætti ríkissaksóknara hefur verið fjársvelt árum saman. Þetta er þó embættið sem er toppurinn á píramídanum, ber ábyrgð á eftirliti og mótar stefnuna. Fjárveitingar til embættisins eru innan við 130 milljónir króna, sem er svipað og til umboðsmanns Alþingis. Ég vil hins vegar taka undir með fyrri ríkissaksóknara að hjá embættinu starfi hugsjónafólk. Ég hef verið ótrúlega heppinn með starfsfólk og þetta er samheldinn og skemmti- legur vinnustaður. Þá er ekki búið nægilega vel að ákæruvaldi lögreglustjóra af sömu ástæðum, og er því sums staðar ófremdarástand. Um þetta hef ég skrifað hvert bréfið á fætur öðru til stjórnvalda. Það er alvarlegt mál að ekki sé mótuð heildarstefna í baráttu gegn glæpum hér á landi. Sakamál í dag eru allt öðru vísi en áður, þau eru umfangsmeiri og flóknari á alla vegu. Þau krefjast oft tæknivinnu lögreglu og mikils mannafla. Lög- reglan hefur staðið sig afburða- vel við erfiðar aðstæður. Þetta eru málin sem varða okkur öll ekkert síður en bankamálin, það eru fíkni- efnamál, innbrot á heimili, líkams- árásir og nauðganir. Þá er vitað að skipulögð glæpastarfsemi þrífst hér á landi eins og annars staðar og nauðsynlegt er að vinna markvisst að því að uppræta slíkt. Af niður- skurði fjármagns til lögreglu hef ég þungar áhyggjur út frá öryggi borgaranna. Lögregluumdæmum þarf að fækka og styrkja eins og innanríkisráðherra stefnir að.“ Tillögur lögreglustjóra „Hins vegar er umhugsunarefni sá niðurskurður sem orðið hefur á löggæslu úti á landi. Ég veit að lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu lagði á sínum tíma tillögur fyrir ráðuneytið um sparnað á þessu sviði um hundruð milljóna króna. Tillögurnar gera ráð fyrir að lands- byggðinni sé hlíft en sparnaðurinn náist með breytingum á löggæsl- unni á höfuðborgarsvæðinu, svo sem að endurskoða starfsemi rík- islögreglustjórans, setja sérsveitina undir stjórn LRH, endurskoða fjar- skiptastöð, bílamál og fleira. Þetta megi gera án þess að skerða þjón- ustu lögreglu og telur lögreglustjór- inn jafnvel að hún verði bætt.“ Forvirkar rannsóknarheim- ildir lögreglu hafa verið mjög til umræðu að undanförnu. „Glæpastarfsemin er í dag án landamæra. Við getum ekki ætlast til þess að við séum tekin alvar- lega í alþjóðlegri samvinnu við lögreglu ef við höfum ekki sam- bærilegar heimildir til að berjast gegn glæpum og eru til dæmis í hinum Norðurlandaríkjunum. Mér finnst hins vegar skjóta skökku við þegar stjórnvöld lýsa yfir vilja til að vinna að forvirkum rannsókn- arheimildum en hafa þó ekki enn sett reglur um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu eins og gera skal samkvæmt sakamálalögum. Tillögur ríkissaksóknara um þetta, sem eru endurskoðun á fyrirmæl- um hans frá 1999, hafa legið á borði ráðuneytisins í rúmt ár og eru enn óafgreiddar.“ Hlægileg umræða Fangelsismál eru Valtý ofarlega í huga enda gegndi hann starfi for- stjóra Fangelsismálastofnunar um árabil. „Þörfin á að byggja fangelsi á höfuðborgarsvæðinu hefur verið brýn svo áratugum skiptir. Hreppa- pólitík hefur hins vegar alltaf stað- ið í vegi fyrir því að þetta yrði að raunveruleika. Biðlistar fangels- anna eru alvarlegt mál. Mannrétt- indasáttmálinn gerir ráð fyrir því að málsmeðferðartími skuli vera sem stystur og ég hef alltaf litið á lögreglu, dómstóla og fangelsisyfir- völd sem eina heild þegar málsmeð- ferðartími er metinn. Umræðan um byggingu nýs fangelsis fjarri höf- uðstöðvum lögreglu og dómstóla á höfuðborgarsvæðinu er hlægileg.“ Valtýr hyggst nú taka til starfa á lögfræðistofunni Lex, en þá ákvörðun hefur Ögmundur Jónas- son innanríkisráðherra gagnrýnt. „Mér hugnaðist ekki að setja á fót lögfræðistofu sjálfur þegar ég hætti sem opinber starfsmað- ur. Hins vegar leist mér vel á að starfa með Lex sem ráðgjafi án vinnuskyldu. Ég skildi í rauninni aldrei þessi ummæli ráðherra og tel að einhvers misskilnings hafi gætt. Á það má benda að af þeim þremur árum sem ég hef verið rík- issaksóknari hefur Björn L. Bergs- son hrl. verið settur ríkissaksókn- ari í málum sérstaks saksóknara í tvö ár en hann rekur jafnframt lögfræðistofu. Ráðherra fram- lengdi sjálfur setningu hans fyrir stuttu. Fordæmi eru fyrir því að fyrrverandi ríkissaksóknari hafi rekið lögmannsstofu. Ég hef alla tíð hugað vel að sjálfstæði mínu í viðkvæmum störfum. Ég hafnaði boði um stofnfjárbréf í sparisjóðn- um mínum á sínum tíma, ég keypti aldrei hlutabréf í DeCode vegna veru minnar í tölvunefnd, ég átti ekki hlutabréf í bönkum eða tók kúlulán. Ég átti aldrei hlutabréf í Exista. Það gefur auga leið að hjá Lex mun ég ekki sinna málum sem ég hef komið að sem ríkissaksókn- ari, ef einhver slík mál eru þar til meðferðar á annað borð. Þá má ekki gleyma því að ég hef verið dómari í einkamálum og borgar- fógeti í yfir tuttugu ár. Mér hefur verið umhugað um sjálfstæði dómara og ákæruvalds- ins. Lagaumgjörðin er ekki nægj- anleg. Hið innra sjálfstæði, það er kjarkinn til að taka erfiðar ákvarð- anir, má ekki vanta. Ákvarðanir sem stjórnvöldum eru á móti skapi. Þetta sjálfstæði þarf að byggja upp. Það hefur tekist hjá dómstólunum. Ákæruvaldið hefur setið eftir.“ Föstudagsviðtaliðföstuda gur Valtýr Sigurðsson lætur af starfi ríkissaksóknara Aldrei áður áttu sér stað aðrar eins hausaveiðar og hreinsanir. Baráttan ekki lengur skemmtileg VALTÝR SIGURÐSSON „Þegar ég lít til baka er tvennt sem stendur upp úr,“ segir fráfarandi ríkissaksóknari. „Annars vegar hversu fljótt þessi fjörutíu ár hafa liðið og hins vegar þakklæti fyrir að fá tækifæri til að sinna öllum þessum skemmtilegu og ögrandi verkefnum. Það er ekki sjálfgefið að eiga erfitt með svefn í fjörutíu ár af tilhlökkun að komast í vinnuna.“ Valtýr Sigurðsson lætur af starfi ríkis- saksóknara í dag. Hann hefur varið stærstum hluta starfsævi sinnar í þágu réttarkerfisins. Hann rifjar upp helstu baráttumál sín á ferl- inum og ræðir um samfélagið eftir hrun og fjársvelti lögreglu og ríkissaksóknara- embættisins við Jóhönnu S. Sigþórsdóttur. Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.