Fréttablaðið - 01.04.2011, Side 32
2 föstudagur 1. apríl
núna
✽ Fylgist með tískunni
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
Í hár saman
Mugshot er dönsk/ís-
lensk hárgreiðslustofa
sem er til húsa í Ný-
höfn í Kaupmanna-
höfn. Eigend-
ur stofunnar
eru miklir tísku-
spekúlantar
og á milli þess
sem þeir klippa
og snyrta hár
skrifa þeir um
tísku og auð-
vitað hártísku
líka. Hægt
er að lesa færslur þeirra á slóð-
inni www.mugshothair.wordpress.
com. Síðan er litrík,
skemmtileg og fynd-
in og skrifin fara öll
fram á ensku, sem
betur fer.
Mannafælan
Bloggið www.
manrepeller.com
er stórskemmti-
leg lesning.
Stúlkan sem
heldur því úti
er bæði hnytt-
in og óhrædd
við að prófa
hitt og þetta
þegar kemur
að tísku.
Stúlkan er
bandarísk og
blogg hennar
er vinsælt þar í
landi.
H önnunarmarkaður á vegum Pop-up og RFF fer fram í gamla Sautján-húsinu á Laugavegi 91
um helgina. Yfir þrjátíu hönnuðir taka þátt og því
má fullyrða að þetta sé stærsti hönnunarmarkaður
sem haldinn hefur verið hér á landi.
„Þetta er okkar stærsti markaður frá upphafi
og jafnframt sá fyrsti sem við setjum upp í sam-
starfi við RFF. Alls taka þrjátíu og þrír hönnuðir
þátt og þar af eru allir þeir sem sýna á RFF í ár,“ út-
skýrir Þórey Björk Halldórsdóttir, einn skipuleggj-
enda hönnunarmarkaðsins. Hún segir markaðinn
vera nokkuð sem enginn tískuunnandi ætti að
láta framhjá sér fara því þar verður bæði hægt að
kaupa nýjustu tísku auk þess sem margir hönnuð-
ir munu selja eldri fatnað á afslætti. Þeir hönnuðir
sem taka þátt í RFF munu einnig standa fyrir flottri
tískusýningu.
„Það verður mikið um skemmtileg tilboð og svo
auðvitað frábær stemning og skrautlegt og gott
úrval af allskyns fatnaði,“ segir Þórey.
Aaron Bullion hefur tekið að sér að taka húsnæð-
ið í gegn og gefa markaðinum skemmtilegra yfir-
bragð og hefur hann unnið að því undanfarna tvo
mánuði. Ekki mátti mála rýmið eða hengja nokk-
uð á veggina og því þurftu aðstandendur markað-
arins að nota ímyndunaraflið þegar kom að því að
skreyta húsnæðið. „Við þurftum að leggja höfuðið
í bleyti þegar kom að því að hanna rýmið og end-
uðum á því að skreyta það með fuglabúrum, risa-
stórum innkaupapoka, blöðrum og stjörnufiskum
sem hengdir verða á hvern bás,“ segir Þórey að
lokum.
Markaðurinn hefst klukkan 11.00 báða dagana og
stendur til klukkan 18.00. Fólki er bent á að fæstir
hönnuðanna taka á móti greiðslukortum. - sm
Stærsti hönnunarmarkaður landsins haldinn um helgina:
BREYTA SAUTJÁN-
HÚSINU Í MARKAÐ
EITURSVÖL Hönnuðurinn og raun-
veruleikastjarnan Nicole Richie var
með þessa eiturgrænu leðurtösku
á handleggnum þegar hún mætti í
veislu í Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTY
UNGLEG HÚÐ Immortelle & Bellis perennis-línan frá L‘Occitane inniheldur
andlitsvörur sem gefa húðinni frísklegt útlit. Tvær nýjar vörur hafa bæst við
línuna, andlitsskrúbb og -maski sem hreinsa húðina og gefa henni fallega
áferð. Fullkomin tvenna fyrir þær sem vilja hirða vel um húðina og viðhalda
frísklegu útliti.
Sænska tískuverslunin Monki
hefur ákveðið að opna svokallaða
pop-up verslun við Laugaveg 87
í dag og á morgun. Margir munu
án efa gleðjast við þessar fréttir
því verslunin er þekkt fyrir flotta
hönnun á viðráðanlegu verði.
Samkvæmt heimildum Föstu-
dags munu forsvarsmenn Monki
hafa ætlað sér að nota þessa að-
ferð til að þreifa fyrir sér á íslensk-
um markaði, en fyrirtækið rekur
nú þegar verslanir víða í Svíþjóð,
Noregi, Danmörku og Hong Kong.
Verslunin verður stútfull af nýjum
vorvörum frá Monki og gildir án
efa hið gamalkunna „fyrstir koma,
fyrstir fá“ í þessu tilfelli. Svo er
bara að bíða og vona að Monki-
mönnum lítist svo vel á okkur Ís-
lendinga að þeir opni hér verslun
til frambúðar.
Verslunin verður opin frá klukk-
an 12 til 18 í dag og á morgun. - sm
Monki opnar pop-up verslun við Laugaveg:
Monki stingur
upp kollinum
Sænsk flottheit Sænska tískuverslunin opnar pop-up verslun við Laugaveg í dag.
Hún verður aðeins starfrækt í tvo daga.
Stórkostlegt rými Þórey
Björk Halldórsdóttir er á meðal
skipuleggjenda hönnunar-
markaðsins. Tískuunnendur
mega ekki láta þennan markað
framhjá sér fara.
30 sec. Wrinkle Filler
Inniheldur sílikon micro eindir:
1. Fyllingarefni sem sléttir yfirborð húðar.
2. Virkar á ákveðin svæði sem örgjafi.
3. Kemur strax í veg fyrir hrukkumyndun.
Regenerist Eye Derma-Pod
1. Endurnýjar húðfrumur og gefur raka.
2. Dregur úr öldrunarmerkjum
húðarinnar, þrota og baugum.
Sölustaðir: Hagkaup Akureyri, Garðabæ, Holtagörðum, Kringlunni,
Skeifunni, Smáralind og Spönginni. Lyf og Heilsa Austurveri,
Eiðistorgi, Glerártorgi, Hrísalundi, Hveragerði, Kringlunni og
Vestmannaeyjum. Debenhams, Nana Hólagarði og Urðar Apótek.