Fréttablaðið - 01.04.2011, Qupperneq 36
6 föstudagur 1. apríl
Eftir tuttugu ára starf
í Mílanó hefur Systa
Björnsdóttir stimplað sig
inn sem einn eftirsóttasti
sviðsmyndahönnuður
borgarinnar. Hún flutti
nýverið heim til Íslands
og nýtur þess að taka
lífinu með ró, borða slát-
ur og ala einkasoninn
upp í heimahögunum.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
S
ysta ákvað að flytja
út til Ítalíu eftir að
hafa lokið námi á
myndlistarbraut við
Kennaraháskóla Ís-
lands og leggja stund á iðnhönn-
un. Hún flutti til Flórens og þar
kynntist hún fólki sem starfaði
innan leikhúsbransans þar í borg
og heillaðist mikið af því um-
hverfi. Hún ákvað því að flytja sig
um set og hefja nám í leikmynda-
hönnun í Mílanó og hefur nú
starfað við það síðastliðin tuttugu
ár. „Ég lærði sviðsmyndahönnun
fyrir leikhús, kvikmyndir og sjón-
varp. Þetta var nýtt nám við skól-
ann og bekkurinn var mjög fá-
mennur. Við fengum þess vegna
mjög góða þjónustu frá kennur-
um okkar og fórum til dæmis oft
með þeim í vettvangsferðir í vinn-
una til þeirra. Flest okkar fengu
einnig vinnu strax eftir útskrift í
gegnum þá,“ rifjar Systa upp.
Að náminu loknu vann Systa á
ýmsum ólíkum vinnustöðum og
um hríð vann hún til að mynda
fyrir ítalska MTV. Hún segir tím-
ann hjá sjónvarpsstöðinni hafa
verið mjög skemmtilegan enda
var starfsliðið allt ungt að árum
líkt og hún. „Það var mjög eft-
irsóknarvert að vinna hjá MTV
þó illa væri borgað, enda þótti
það flott þegar maður var svona
ungur,“ segir hún og skellir upp
úr.
Hún vann einnig um stund hjá
kaffiframleiðandanum Lavazza og
hannaði fyrir þá kaffihús víða um
heim í tengslum við afmæli fyrir-
tækisins. Hún færði sig að lokum
að mestu leyti yfir í auglýsinga-
geirann þar sem hún vann sig
upp í stjórnunarstöðu með vinnu-
semi og ákveðni. „Það er svolítið
gamli stíllinn á þessu á Ítalíu, þar
byrjar maður neðst og vinnur sig
svo upp með tímanum. Ég byrj-
aði sem sagt sem aðstoðarmað-
ur og vann sem slíkur allt þar til
ég ákvað að klippa á naflastreng-
inn við yfirmann minn og fara að
vinna sjálfstætt,“ segir hún.
GRÝTT MEÐ DÖÐLUM
Systa hefur ferðast mikið í
tengslum við starf sitt, heimsótt
ólíka menningarheima og unnið
með alls konar fólki. Hún segir
þetta einn af kostum starfsins en
viðurkennir að ýmsar skrautlegar
uppákomur geti átt sér stað þegar
tekið er upp í framandi löndum.
Hún minnist sérstaklega verk-
efnis sem hún tók að sér fyrir
breska leikstjórann John Madden,
sem leikstýrði meðal annars kvik-
myndinni Shakespeare in Love,
og fór fram í Marokkó. „Ég gleymi
þessu atviki aldrei. Við vorum
að taka upp Coke-auglýsingu og
ég þurfti að fara á markaðinn til
þess að finna muni fyrir tökurnar.
Á þessum tíma var ég með mjög
stutt hár og var klædd í gallabux-
ur og hlýrabol og áður en ég lagði
af stað ráðlagði aðstoðarmað-
urinn minn mér að skella sjali
yfir axlirnar á mér sem ég gerði.
Þegar við komum svo á markað-
inn fannst heimamönnum ég svo
ósiðsamlega klædd að ég var grýtt
með döðlum og öðrum ávöxtum
og við aðstoðarmaðurinn minn
þurftum að hlaupa í skjól,“ segir
Systa og skellir upp úr.
Annað eftirminnilegt atvik átti
sér stað við undirbúning á verk-
efni fyrir svissneskt fyrirtæki.
„Við áttum að byggja eftirmynd
af íbúðargötu og þar sem þetta
var um sumar og veður var gott
ákváðum við að smíða sviðs-
myndina úti. Þegar allt var til-
búið skall allt í einu á þrumu-
veður og það myndaðist eins og
vindsveipur akkúrat þar sem við
höfðum byggst sviðsmyndina
sem splundraðist á fimm mínút-
um. Maður hefur nú lent í ýmsu,“
segir hún hlæjandi.
EINKASONURINN LÍKT OG
HIMNASENDING
Líkt og áður hefur komið fram
bjó Systa í ein tuttugu ár í Míl-
anó. Hún segir borgina iða af lífi
og menningu, stutt er frá henni
niður að strönd og ekki er nema
nokkurra klukkustunda akstur til
ítölsku Alpanna og því ekki furða
að Systa hafi kunnað vel við lífið
í menningarborginni. „Hverjum
finnst ekki heillandi að búa við
nánast stöðuga sól og sumar-
hita?“ spyr hún hlæjandi. „Matar-
menningin í Ítalíu er líka einstök
og Ítalir eru miklir nautnaseggir
þegar kemur að mat. Mér fannst
voða indælt að búa í Mílanó og
hefði líklega aldrei ílenst ef mér
Það var mjög
eftirsóknarvert
að vinna hjá MTV þó
illa væri borgað, enda
þótti það flott þegar
maður var svona
ungur.“
Sigríður Björnsdóttir sviðsmyndahönnuður bjó í Mílanó í ein tuttugu ár. Hún er nú flutt heim ásamt einkasyninum og nýtur þess að taka lífinu með ró.
GRÝTT MEÐ DÖÐLUM
Í MAROKKÓ
SOHO/MARKET Á FACEBOOK
Grensásvegur 16 - sími 553 7300
Opið mán-fös 12–18. Laugd. 12–17
Kjóll 8.990.-
Blúndutoppur 1.990.- SM - ML
Taska 9.990.- einnig til í vínrauðu
Hálsmen með eyrnalokkum
2.750.-
Vinur nr 7000 á facebook fær
veglega úttekt, skráðu þig núna.
SUMAROPNUN
12 – 18 virka daga
12 – 17 laugardaga.
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM.