Fréttablaðið - 01.04.2011, Qupperneq 50
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Fyrir 56 árum greindi Tíminn frá því að ákveðið
hefði verið að halda leiðtogafund heimsveld-
anna í Reykjavík dagana 20. til 24. apríl þetta ár.
Æðstu menn Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og
Bretlands myndu hittast á fundi og hefðu Sovét-
menn óskað eftir að fundað yrði í Reykjavík. Þá
var Dwight Eisenhower forseti Bandaríkjanna,
Winston Churchill forsætisráðerra Bretlands og
Nikita Krústsjov leiðtogi Sovétríkjanna. Daginn
eftir kom fram að fréttin var aprílgabb.
Leiðtogar heimsvelda áttu þó síðar eftir að
funda í Reykjavík. Richard Nixon Bandaríkjafor-
seti, Georges Pompidou Frakklandsforseti, Henry
Kissinger og Giscard D‘ Estaing funduðu um
heimsmálin á Kjarvalsstöðum 1973. Árið 1986
ræddu síðan Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
og Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna,
afvopnunarmál stórveldanna í Höfða í Reykjavík.
ÞETTA GERÐIST: 1. APRÍL ÁRIÐ 1955
Leiðtogafundur aprílgabb
Dwight Eisenhower.
ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR (1930-1971) rithöfundur og listakona fæddist þennan dag.
„Skýrast sé ég litina með lokuðum augum eða í myrkri. Þó greini ég þá vel með opnum
augum í björtu, ef áhrifin eru sterk að öðru leyti.“
Gull og silfur, skartgripaverslun og
verkstæði á Laugavegi 52 fagnar fjöru-
tíu ára starfsafmæli á sunnudaginn. Af
því tilefni verður opið á sunnudaginn
milli klukkan 14 og 18 og boðið upp á
kaffisopa og konfekt. Eins hefur verið
hönnuð sérstök skartgripalína, Tíma-
mót, í tilefni af afmælinu.
„Línan er táknræn fyrir fyrirtækið
og sögu þess,“ útskýrir Sigurður Stein-
þórsson, gullsmíðameistari og eigandi
Gulls og silfurs. „Hún byggir á fjórum
hringjum, fyrir áratugina fjóra, með
þremur hringjum þar inni í sem standa
fyrir þrjár kynslóðir gullsmíðameist-
ara í sömu fjölskyldunni sem staðið
hafa að þessu fyrirtæki,“ segir Sig-
urður en hann tók við af föður sínum
Steinþóri Sæmundssyni gullsmíða-
meistara. Dóttir Sigurðar, Sólborg,
vinnur einnig sem gullsmiður hjá Gulli
og silfri en hún er aðalhönnuðurinn að
baki nýju línunnar.
En hvernig gengur samvinnan þegar
fjölskyldan vinnur svona náið saman?
„Þetta er bara eins og ítölsk stórfjöl-
skylda og samstarfið gengur vel,“ segir
Sigurður hlæjandi. „Konan mín er
verslunarstjóri hér en við höfum verið
gift í 35 ár og unnið saman alla daga.
Tvær dætranna koma einnig þegar
mikið er að gera, tengdasynirnir hafa
meira að segja komið að þessu líka.“
Spurður hvort útlit sé fyrir að fjórða
kynslóðin taki við segir hann það vel
líklegt, sköpunin liggi í blóðinu. Það sé
þó engin skylda. „Sex ára barnabarn
mitt gaf mér í afmælisgjöf sérhannaða
hringa sem hann teiknaði sjálfur, svo
það gæti vel orðið. Sjálfur hefði ég allt-
af farið í eitthvað skapandi, arkitektúr
eða eitthvað slíkt en valdi gullsmíði,“
segir hann. „Það er gaman að teikna
og forma. Fólk kemur með hugmynd-
ir til okkar og við teiknum fyrir það
og smíðum á staðnum,“ segir Sigurð-
ur og bætir við að það sé þjónusta sem
ekki sé sjálfsögð. Allt skart hjá Gulli
og silfri sé smíðað á staðnum og ekkert
fjöldaframleitt, innflutt skart að finna
í hillunum.
„Það er mikið atriði fyrir okkur að
halda uppi íslensku handverki. Það er
allt annað að eiga einstakan skargrip
sem þú hefur jafnvel séð hvernig varð
til, en við leyfum fólki að kíkja inn á
verkstæðið hjá okkur meðan gripurinn
er í smíðum. Þetta stendur fólki ekki til
boða alls staðar. Skartgripir eru mjög
persónulegir hlutir og tilheyra gjarn-
an mikilvægum stundum í lífi fólks. Á
þessu byggjum við í Gulli og silfri.“
heida@frettabladid.is
GULL OG SILFUR Á LAUGAVEGI: FAGNAR FJÖRUTÍU ÁRA STARFSAFMÆLI
Eins og ítölsk stórfjölskylda
FRÁ UPPHAFSÁRUM FYRIRTÆKISINS Hjónin Steinþór Sæmundson og Sólborg S. Sigurðardóttir
ásamt sonum sínum, Sigurði og Magnúsi og starfsfólki. MYND/GVA
FARSÆLT FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI Hjónin Sigurður G. Steinþórsson gullsmiður og Kristjana J.
Ólafsdóttir hafa rekið verslunina Gull og silfur í 40 ár á Laugaveginum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listakonan Sigurdís Harpa
er með sýningu í Gallerí
Fold á Rauðarárstíg með
myndum af 31 skeggjuðum
karlmanni. Þær eru til sölu
og kosta 30.000. Þriðjung-
ur af andvirðinu rennur til
Krabbameinsfélags Íslands í
tilefni af Mottumarsátakinu.
Myndirnar eru nýjar og
sýna skeggjaða einstaklinga
úr mannlífi og sögusviði
Íslands í bland við þekkta
erlenda menn. „Mig lang-
aði að styrkja hið þarfa átak
Krabbameinsfélagsins svo
ég ákvað að taka þátt á minn
máta,“ segir Sigurdís Harpa
og þakkar Gallerí Fold fyrir
að styðja við söfnunina.
Sýningin stendur til 4.
apríl. Verkin eru jafnframt
birt á heimasíðu sigurdísar,
www.sigurdis.is.
Málaði skeggjaða
EITT VERKANNA Sigurdís gefur
þriðjung söluandvirðis til
Krabbameinsfélagsins.
Myndlistarsýning með verk-
um Ingu Ragnarsdóttur og
Svövu Björnsdóttur verður
opnuð í dag í Kunstraum 34 í
Stuttgart í Þýskalandi. Hún
er framhald af sýningarröð
listakvennanna sem héldu
tvær sýningar á Íslandi á
síðasta ári, í Edinborgarhús-
inu á Ísafirði og Listasafni
Íslands.
Sýningin heitir Tíminn
fer ekki, hann kemur og
dregur nafn sitt af græn-
lensku spakmæli. Hún er
rýmisinnsetning, tilraun til
að tengjast framrás tímans
á myndrænan hátt og fram-
kalla upplifun sem gefur
ímyndunaraflinu lausan
tauminn.
Kunstraum 34 er gallerí
starfrækt af myndlistar-
mönnm sem ráða til sín sýn-
ingarstjóra en er jafnframt
styrkt af Stuttgartborg.
Verk þeirra eru náskyld
og myndmálið af sama bergi
brotið, þó efniviðurinn sé
ólíkur. - gun
Sýna saman í Stuttgart
LISTAKONURNAR Inga Ragnarsdóttir og Svava Björnsdóttir nýta rýmið,
formið, efnið og litinn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Jónsdóttir
frá Brautarholti,
lést laugardaginn 26. mars á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 2. apríl kl. 14. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
MS félagið, sími 568 8620.
Guðríður Svala Haraldsdóttir
Ólafur Haraldsson Alda Rut Sigurjónsdóttir
Daníel Ingi Haraldsson Steinunn Ásta
Guðmundsdóttir
Halldór Friðrik Haraldsson Arna Pálsdóttir
Katrín Lilja Haraldsdóttir Reynir Sigursteinsson
Guðrún Birna Haraldsdóttir Gísli V. Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Sigríður Óladóttir
Vogatungu 29a, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 30. mars á líknardeild Landakots.
Útförin verður auglýst síðar.
Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson
Sigurbjörn Tryggvi Gunnarsson Magnea Bjarnadóttir
Óli Pétur Gunnarsson
Þorsteinn Marinó Gunnarsson Lilja Sigurðardóttir
Erla Dögg Gunnarsdóttir Grétar Þorsteinn
Einarsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri
Eyþór Ágústsson
fæddur í Flatey á Breiðafirði,
búsettur í Stykkishólmi,
varð bráðkvaddur í Flatey þann 24. mars sl. Útförin fer
fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 2. apríl kl.
14.00. Við bendum á minningarkort Flateyjarkirkju
(Guðrún Marta Ársælsdóttir og Sigurborg Leifsdóttir).
Dagbjört S. Höskuldsdóttir
Óskar Eyþórsson Helga Sveinsdóttir
Ingveldur Eyþórsdóttir
Aðalsteinn Þorsteinsson Helga Finnbogadóttir
Höskuldur Þorsteinsson
og barnabörn
Merkisatburðir
1807 Trampe stiftamtmaður
birtir auglýsingu um
brunavarnir í Reykja-
vík. Bannað er að reykja
pípu innanhúss.
1855 Einokunarverslun Dana
aflétt.
1873 Hilmar Finsen stiftamt-
maður skipaður fyrsti
landshöfðinginn.
1896 Álafoss hefur ullar-
vinnslu sem stendur allt
til ársins 1991.
1924 Adolf Hitler dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir
valdaránstilraun í Mün-
chen árið 1923.
1936 Alþýðutryggingalög taka
gildi. Skylda er að stofna
sjúkrasamlög í sýslum
og kaupstöðum.
1955 Aldarafmæli frjálsrar
verslunar minnst í flest-
um kaupstöðum lands-
ins.