Fréttablaðið - 01.04.2011, Blaðsíða 64
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
LOKALEIKUR íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí á HM kvenna er í kvöld en heimsmeistarakeppnin fer nú fram í fyrsta sinn
í Skautahöllinni í Laugardal. Íslensku stelpurnar hafa unnið tvo síðustu leiki sína og mæta Suður-Kóreu klukkan 20.00 í kvöld. Nýja-
Sjáland hefur unnið alla leiki sína og er komið upp í 3. deildina en íslensku stelpurnar keppa um annað sætið við þær kóresku í
kvöld.
Íslendingadagar í Vesturheimi
Ferð á merkustu hátíðir Íslendinga í Vesturheimi á vegum
Þjóðræknisfélags Íslendinga og Vesturheims sf dagana
24. júlí-7. ágúst.
Ferðatilhögun: Flug til Winnipeg sunnudaginn 24. júlí
Skoðunarferð um Nýja Ísland
Nýjung: Skoðunarferð um Íslendingaslóðir í
vestanverðu Manitoba – farið um Voga og til
Reykjavíkur!!
Minnsta nýlenda Íslendinga í Norður Ameríku heimsótt
Hvað er Baldur í Manitoba?
Íslendingadagur í Mountain í Norður Dakota
Íslendingadagurinn á Gimli í Manitoba
Frjálsir dagar í Winnipeg – Gist í miðbænum
á Delta Winnipeg
Ferðalýsing á www.vesturheimur.is
Nánari upplýsingar á www.vesturheimur.is og hjá
Jónasi Þór í síma 861-1046 og á jonas@vesturheimur.is
ATH
LÆKKAÐ VERÐ
KÖRFUBOLTI Það eru stórir hlutir að
gerast í Garðabænum en svein-
ar Teits Örlygssonar í Stjörn-
unni eru að blómstra á besta
tíma. Þeir unnu Íslandsmeistara
Snæfells í tvígang í Fjárhúsinu í
Stykkishólmi en þetta voru einu
töp Snæfells á heimavelli í vetur.
Það þarf alvörulið til þess að sópa
sjálfum Íslandsmeisturunum í
sumarfrí.
„Þetta er mjög sárt og ég er
ekkert viss um að maður átti sig
á þessu fyrr en síðar. Ég er ekki
alveg tilbúinn að sætta mig við
þetta eins og er,“ sagði Ingi Þór
Steinþórsson, þjálfari Snæfells,
eftir leikinn en það féllu tár hjá
leikmönnum Snæfells inni í klefa
eftir leik.
Snæfell varð deildarmeistari
þvert á spár fjölmargra spekinga
en var síðan sópað í frí. Enn færri
áttu von á þeirri niðurstöðu.
Flestir bjuggust við spennuleik
en spennan var í raun búin í hálf-
leik. Stjarnan hreinlega gekk frá
meisturunum í öðrum leikhluta
sem liðið vann 30-9.
„Við stilltum ekkert upp í
öðrum leikhluta. Á meðan klikk-
aði Fannar Helgason ekki á skoti
hinum megin. Þeir hittu á svaka
frammistöðu og náðu 20 stiga for-
skoti. Við vorum ekki nógu sterk-
ir andlega og náðum aldrei að
stjórna þessum leik,“ sagði Ingi.
Strákarnir hans reyndu að
spyrna við fótum en Stjarnan
átti svör við öllu. Mótlætið fór
síðan í taugarnar á heimamönn-
um og Sean Burton var vísað úr
húsi þegar hann fékk sína aðra
óíþróttamannslegu villu. Í kjöl-
farið kom upp almennur pirringur
þegar byrjað var að hrinda and-
stæðingnum.
Stjörnumenn létu það ekki
trufla sig heldur léku við hvurn
sinn fingur. Þeir voru sterkari
aðilinn í einvíginu og undirstrik-
uðu það í þessum leik að þeir eru
einfaldlega betri í dag. Jovan er
að spila frábærlega, Lindmets er
mikill fengur fyrir liðið og Justin
Shouse ávallt traustur og skilar
stórum körfum. Þess utan er liðs-
heildin mögnuð.
„Það féll allt með Stjörnunni
sem átti að falla. Ég óska þeim
innilega til hamingju og þeir eru
vel að þessu komnir. Þetta er ekki
ósanngjörn niðurstaða. Þá langaði
meira í sigur en okkur. Það voru
ekki sömu vígtennurnar í okkur
og fyrr í vetur. Ég veit nokkurn
veginn af hverju en ætla ekki að
segja það núna,“ sagði Ingi Þór
en hann verður áfram þjálfari
liðsins. henry@frettabladid.is
Lömbin þögnuðu
í Fjárhúsinu í gær
Það var hljóðlátt í Fjárhúsinu í Stykkishólmi í gær
þegar Stjarnan sópaði Íslandsmeisturum Snæfells
í sumarfrí. Stjarnan vann öruggan sigur, 88-105, í
gær og rimmu liðanna samtals 3-0. Stjarnan mætir
annaðhvort KR eða Keflavík í lokaúrslitunum.
STÓR STUND FYRIR STJÖRNUNA Stjörnumenn fagna hér sigri á Snæfelli og sæti í
lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORSTEINN
KÖRFUBOLTI „Menn eru að stíga upp
á réttum tíma. Við gátum ekkert
fyrir áramót en við höfðum ekk-
ert miklar áhyggjur af því. Við
vorum betra liðið í þessari rimmu
og það er enginn vafi á því,“ sagði
glaðbeittur þjálfari Stjörnunnar,
Teitur Örlygsson, eftir sigurinn á
Snæfelli í gær.
Teitur sagði í lok tímabils í
fyrra að hann vissi nokkurn veg-
inn hvaða púsl vantaði í liðið svo
það gæti farið lengra. Hann virð-
ist hafa fundið réttu púslin.
„Renato gefur okkur mikið inni
í teignum en það hefur okkur
vantað. Svo fáum við Daníel og
Marvin til þess að styrkja þetta,“
sagði Teitur en hann hefur talað
niður vonir síns liðs hingað til en
það er ekki hægt að taka lið sem
sópar út meisturunum annað en
mjög alvarlega.
„Snæfell er í einhverri smá
kreppu núna og það hjálpaði. Það
er erfitt að verja titil og ég þekki
það vel sjálfur. Ég sá KR gegn
Keflavík og þeir líta hrottalega
vel út. Það er seinni tíma vanda-
mál og ég vil helst ekki hugsa um
það strax. Ég ætla að njóta þess
að hafa náð þessum árangri,“
sagði Teitur en er hann með lið
í höndunum sem getur farið alla
leið?
„Ég vil ekki vera með neinar
slíkar yfirlýsingar. Við ætlum
að njóta áfangans og svo undir-
búa okkur af kappi fyrir það sem
bíður okkar. Það leggja sig allir
fram í liðinu og það ber menn
oft langt en hvort það dugi veit
ég ekki. Leikgleðin skín samt af
mínum mönnum og það er frábær
liðsheild hjá okkur. Við vinnum
og töpum saman.“
- hbg
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var sigurreifur í Hólminum í gær:
Leikgleðin skín af okkur
TEITUR ÖRLYGSSON Hefur margoft spilað til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn sem
leikmaður en hann er nú búinn að koma Stjörnunni alla leið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Snæfell-Stjarnan 88-105 (32-51) Stjarnan vann 3-0
Stig Snæfells: Zeljko Bojovic 19, Sean Burton 13, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 13, Jón
Ólafur Jónsson 11, Ryan Amaroso 10, Egill Egilsson 8, Emil Þór Jóhannsson 6, Sveinn
Arnar Davíðsson 5, Kristján Andrésson 2, Daníel A. Kazmi 1.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 25, Renato Lindmets 22, Justin Shouse 15, Fannar
Freyr Helgason 14, Guðjón Lárusson 8, Marvin Valdimarsson 8, Daníel G. Guðmunds-
son 7, Ólafur Aron Ingvason 3, Dagur Kár Jónsson 2, Kjartan Atli Kjartansson 1.
63 STIG Í SÍÐUSTU TVEIMUR Jovan
Zdravevski fór á kostum í einvíginu á
móti Snæfelli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI