Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 Fimmtudagur skoðun 20 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Popp Skólar og námskeið 25. ágúst 2011 197. tölublað 11. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 Victoria Beckham er þekkt fyrir fínpússað útlit sem hún full- komnar með himinháum hælum. Nú þarf dívan hins vegar að breyta til því eftir aðgerð á baki hafa læknar fyrirskipað henni að klæðast flatbotna skóm. Það verður því forvitnilegt að líta skóbúnað Victoríu þegar hún kynnir nýja línu sína á tískuvikunni í New York eftir hálfan mánuð. Rakel Sólrós Jóhannsdóttir fatahönnuður segir fatastíl sinn klassískan og áberandi.Freistar gæfunnar í London Þ etta er Anna Sui-kjóll sem kærastinn minn, Alexander Dan, gaf mér þegar ég var í starfsnámi hjá Anna Sui. Mér þykir mjög vænt um kjólinn. Hann minnir mig á skemmtilega tíma,“ segir Rakel Sólrós Jóhannsdóttir fatahönnuður, þegar Fréttablaðið forvitnast um eftirlætisflíkina hennar.Rakel lýsir kjólnum sem klassískum en áberandi. „Kannski er það bara minn stíll,“ segir hún hlæjandi. „Mér finnst þægilegt að vera í einhverju klassísku en poppa það upp. Ég er til dæmis í lit-ríkum Kronkron-skóm og með silkiklút sem ég keypti í Marokkó við kjólinn en í klassískum svörtum jakka yfir. Jakkann hannaði ég sjálf.“Undanfarið ár hefur Rakel unnið hjá Farmers Market og sinnt eigin hönnun á kvöldin. Nú er hún á leiðinni til London að freista gæfunnar. „Ég ætla að reyna að komast í starfsnám hjá hönnuði, vera í ár og sjá svo til. Ég hef alltaf verið á leiðinni að prófa eitthvað nýtt og taka áhættuna og nú er komið að því.“Ytra ætlar Rakel að nota frítímann til að sinna eigin hönnun og hennar fyrsta verk verð-ur að kaupa sér notaða saumvél. „Annars er ég alveg handalaus.“ heida@frettabladid.isOpnum með nýja haustvöru Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Hlaupainnlegg Minnka álag á ökkla, hné og bak Stuðningur fyrir fætur Aukin dempun Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18.Lokað á laugardögum í sumar.Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is Vertu vinur Þ E S S I S TÆ K K A R Þ I G U M N Ú M E R teg 42026 - vel fylltur og flottur, fæst í BC skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,- skólar og nám keið FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2011 FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • ÁGÚST 2011 ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Skólaostur i sneiðum og 1 kg stykkjum á tilboði Opið til 21 FÓLK Tvíburabræðurnir Ármann og Sigdór Sigurðssynir eru níræð- ir í dag. Bræðurnir ólust báðir upp á Norðfirði en kynntust þó ekki fyrr en þeir voru orðnir níu ára. Ástæðan var sú að móðir þeirra lést þegar þeir voru mán- aðargamlir og þeir voru teknir í fóstur hvor á sitt heimilið, annar í þorpinu en hinn í sveitinni. Þeir hittust því ekki fyrr en þeir byrj- uðu í skóla níu ára gamlir en urðu ekki vinir fyrr en eftir fermingu. Síðan eru þeir óaðskiljanlegir. Ármann og Sigdór eru eineggja tvíburar og afar líkir útlits enda segja þeir þeim hafa verið ruglað saman alla tíð. Þeir viðurkenna líka að það hafi komið fyrir í annasömum kaupstaðaferðum að annar þeirra hafi mætt á stað í nafni hins og jafnvel skrifað undir skjöl. Bræðurnir byrjuðu ungir að stunda sjó enda segja þeir að um fátt annað hafi verið að ræða á Norðfirði. Allt stríðið sigldu þeir til dæmis hvor á sínum bátnum. Bræðurnir fluttu báðir til Hafnarfjarðar árið 1955. Þar hafa þeir átt heima síðan og hald- ið hvor með sínu Hafnarfjarðar- liðinu til að geta verið ósammála um eitthvað, að eigin sögn. Þeir komu sér samt saman um að halda upp á afmælið í Haukaheimilinu á laugardag. - gun / sjá síðu 26 Eineggja tvíburarnir Ármann og Sigdór Sigurðssynir fagna níræðisafmæli í dag: Bræðrum ruglað saman í 90 ár SIGDÓR OG ÁRMANN Sjórinn var starfs- vettvangur þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÓSKABARN Í HEIMINN Mikil hamingja ríkir nú á heimili Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur og Kevins Kristofers Buggle. Þeim fæddist sonur á föstudag og hefur hann fengið nafnið Adam Ástráður. Sjá síðu 6 N-STREKKINGUR AUSTAST í dag, 8-12 m/s NV-til en hægari annars staðar. Skýjað með köflum NA-til og dálítil væta en bjartara yfir SV-til. Hiti 6-14 stig. VEÐUR 4 7 7 7 12 11 REYKJAVÍK Hægt gengur að ná fram kröfum um hagræðingu innan borgarkerfisins og sumir efast um að það takist að uppfylla kröf- urnar á þessu ári. Sex mánaða upp- gjör borgarinnar verður lagt fram í borgarráði í dag. Trúnaður hefur ríkt um tölur uppgjörsins og er það að kröfu Kauphallarinnar. Enn er óvíst hvort uppgjörið verður gert opinbert í dag, en það er borgar- ráðs að ákveða það. Meðal þeirra sviða þar sem illa gengur að ná fram hagræðingu er íþrótta- og tómstundasvið. Ómar Einarsson sviðstjóri staðfestir það, en vísar að öðru leyti í sex mánaða uppgjörið. Ragnar Þorsteinsson, fræðslu- stjóri í Reykjavík, segir að inn- leiðing nýs skipulags gangi ágæt- lega hjá menntasviði. „Auðvitað eru menn á fullu að berjast í því að ná fram þeirri fjárhagsáætlun sem lögð var fram. Ég vona að við náum því.“ Upphaflega var gerð krafa um 4,2 prósenta hagræðingu á menntasviði. Veitt var 200 millj- óna króna aukafjárveiting til grunnskóla og krafan því lækkuð niður í þrjú prósent, eða um 550 milljónir króna. Borgaryfirvöld lögðu fram áætlun um sameiningu skóla og leikskóla og átti hún að skila hag- ræðingu á þessu ári. Heimildir blaðsins herma að ekki náist að uppfylla þær væntingar og óvíst sé að hún skili nokkru á árinu. Kjartan Óskarsson, skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, segir of snemmt að spá fyrir um afdrif hagræðingarkrafna. Nýr kjara- samningur hafi áhrif og menn séu enn í lausu lofti. Hann vonast til að áætlun liggi fyrir áður en skóla- starf hefst á mánudag. Umræðan um sex mánaða upp- gjörið hefur verið bundin trún- aði, þar sem borgin á skuldabréf í Kauphöllinni. Þykir mörgum kjörn- um fulltrúum óeðlilegt að Reykja- víkurborg lúti sömu lögmálum og hvert annað fyrirtæki í Kauphöll- inni. Það hamli pólitískri umræðu um stjórnun borgarinnar. - kóp Hægari framvinda við hagræðinguna Illa gengur að uppfylla hagræðingarkröfur innan borgarkerfisins. Sex mánaða uppgjör lagt fram í dag. Óljóst er hvernig hagræðing næst fram á öllum sviðum borgarinnar. Trúnaður hefur ríkt um uppgjörið að kröfu Kauphallarinnar. Fatnaður í teppalíki Hlýlegur ullarfatnaður sem má sveipa um sig eins og teppi er áberandi hjá íslenskum hönnuðum. allt 2 Lyftistöng fyrir dansinn Katrín Hall verður dómari í nýjum dansþætti. fólk 44 UMHVERFISMÁL Umtalsverðar fjár- hæðir munu sparast gangi áætlun ríkisstjórnarinnar um orkuskipti í samgöngum upp. Árið 2020 á hlutfall endurnýjanlegrar orku í samskiptum að vera tíu prósent, en í dag nemur það einu prósenti. Náist þetta mun innflutningur jarðefnaeldsneytis minnka að sama skapi með tilheyrandi gjaldeyrissparnaði. Sala á bensínu og olíu dróst nokkuð saman árið 2010, miðað við árin á undan. Samkvæmt áætlun voru seldir um 197 þús- und lítrar af bensíni það ár, en voru rúmlega 205 þúsund næstu tvö ár á undan. Árið 2010 er áætl- að selst hafi 128 þúsund lítrar af olíu, en þeir voru um 135 þúsund árin 2008 og 2009. - kóp / sjá síðu 12 Orkuskipti í samgöngum: Auka hlut inn- lendrar orku VÍSINDI, AP Á jörðinni lifa um það bil 8,8 milljón tegundir lífvera, en hingað til hafa aðeins 1,9 millj- ónir verið færðar til bókar. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn. Af þessum fjölda tilheyra flest dýraríkinu, eða 7,8 milljónir, sveppategundir eru taldar rúm- lega 600 þúsund og plöntur um 300 þúsund. Þessar niðurstöður bregða ljósi á hversu skammt á veg vísindin eru í raun komin og nýjar tegund- ir finnast enn reglulega. Niðurstaðan hefur vakið upp líflega umræðu þar sem sumum finnst hún jafnvel hófsöm. - þj Fjölbreytni náttúru jarðar: Nær 7 milljónir lífvera ófundnar LOÐINN HUMAR Þessi tegund krabbadýrs er loðin og blind og skyld humri. Hún fannst í fyrsta sinn árið 2005 á miklu dýpi í Suður-Kyrrahafi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Áfram mokveiði Ytri-Rangá heldur sessi sínum sem aflahæsta laxveiðiá landsins. veiði 50 Stórslagur í Vesturbæ KR og ÍBV mætast í uppgjöri toppliðanna í Pepsi-deild karla í kvöld. sport 48 FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.