Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 4
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR4
FORTE
Multidophilus Forte er breiðvirk
10 MILLJARÐA VIRKRA GERLA.
„Probiocap®”
Multidophilus forte er
MULTI
DOPHILUS
MENNTAMÁL Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
gagnrýnir kaup Reykjavíkurborg-
ar á eignum Ísaksskóla. Borgar-
ráð samþykkti kaupin í síðustu
viku, en kaupverðið nemur 184
milljónum króna.
„Mér finnst þetta sérkennilegt
eftir allt það sem á undan er geng-
ið í menntamálum hjá Reykja-
víkurborg. Það er búið að setja
allt skólastarf í uppnám, leik- og
grunnskóla sem og frístunda-
starf,“ segir Sóley, og vísar þar
til hagræðingar og sameiningar í
skólakerfinu.
Samkvæmt tillögu um samein-
ingu skóla á hún að skila 150 millj-
ónum króna ein og sér, sem felst
aðallega í minni kostnaði við laun
og stjórnun. Tillögurnar allar
gera ráð fyrir 15 milljóna sparn-
aði á þessu ári, en hann mun nema
nokkur hundruð milljónum, sam-
kvæmt tillögunum, þegar fram í
sækir.
Sóley segir að í ljósi þessa sé
ráðstöfunin gagnvart Ísaksskóla
sérkennileg. „Mér finnst skjóta
skökku við að borgin skuli eiga 184
milljónir til að kaupa einkaskóla.“
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, segir stöðu Ísaks-
skóla hafa verið mjög þrönga og
skólastarf hafi stefnt í uppnám. Í
stað þess að auka fjárframlög hafi
verið brugðið á það ráð að borgin
keypti fasteignina, en skólinn hefði
forkaupsrétt að henni. Hann segir
ekki rétt að horfa til sparnaðarins
hvað varðar samhengi í upphæðum.
„Samhengið er frekar það að hver
nýr skóli kostar 1,5 til tvo milljarða
króna. Greiðslan fyrir Ísaksskóla
er svipuð og ársleiga slíkra skóla.
Þetta er því ekki hátt kaupverð.“
Hann segir hagsmunum borgar-
innar gagnvart börnunum í skól-
anum tryggða með þessari ráðstöf-
un og hagsmunum skólans einnig.
Með gjörningnum náist að losa
skólann við mjög óhagstætt banka-
lán. Tekið hafi verið til í rekstri
skólans og honum
hafi verið komið á
traustan grunn.
Sjálfstæðis-
flokkurinn studdi
kaupin og Hanna
Birna Kristjáns-
dóttir, oddviti
borgarstjórnar-
flokksins, segir að
nauðsynlegt hafi
verið að tryggja
eðlilegt skólahald. Betri leið hafi
verið að kaupa eignirnar en að
setja aukið fé í reksturinn.
„Þetta er tímabundið framlag og
borgin fær leigutekjur af eignun-
um. Skólanum gefst síðan kostur
á að kaupa þær aftur. Þetta trygg-
ir áframhaldandi skólarekstur og
hagsmuni barnanna.“
kolbeinn@frettabladid.is
Gagnrýnir kaup á
eignum Ísaksskóla
Borgarfulltrúi Vinstri grænna gagnrýnir 184 milljóna króna kaup Reykjavíkur-
borgar á eignum Ísaksskóla. Á sama tíma er sparnaður og sameining í skólum
borgarinnar. Aðrir flokkar telja að litlu hafi verið kostað til að bjarga skólanum.
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
DAGUR B.
EGGERTSSON
SÓLEY
TÓMASDÓTTIR
ÍSAKSSKÓLI Borgin hefur keypt húseignir Ísaksskóla á 184 milljónir króna. Skólinn
hefur síðan forkaupsrétt á eignunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Finnur Sveinbjörnsson, höfundur
aðsendrar greinar um Landsvirkjun, er
hvorki stjórnarmaður í Landsvirkjun
né ráðgjafi þess.
ÁRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
30°
30°
23°
29°
29°
22°
23°
27°
19°
32°
29°
30°
20°
24°
22°
21°Á MORGUN
víða 3-10 m/s,
hvassara austast.
LAUGARDAGUR
Fremur hægur
vindur.
8
8
7
7
7
7
9
9
12
11
11
10
5 7
3
6 6
6
10
3
3
4
7
12 11
7
7
9
8
8
1011
SVALUR Norðlæg
átt verður næstu
daga og hitinn
mætti vera hærri.
Það má búast við
næturfrosti inn til
landsins en 5-14
stigum yfi r daginn.
Dálítil væta austan-
lands í dag og á
morgun. Nokkuð
bjart suðvestan til í
dag og á laugardag
en dregur lítillega
fyrir á morgun.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Laun leikskólakennara hækka um 7,6
prósent en ekki 7 prósent eins og
fram kom í frétt um nýjan kjarasamn-
ing Félags leikskólakennara sem
birtist í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
MARKAÐSMÁL Íslensk auglýsing er í hópi þrjátíu
sem valdar hafa verið í úrslit í auglýsingasam-
keppni Sameinuðu þjóðanna í Evrópu um bestu
auglýsinguna gegn ofbeldi gegn konum. Alls
bárust rúmlega tvö þúsund og sjö hundruð aug-
lýsingar frá 40 löndum. Höfundur íslensku aug-
lýsingarinnar er Elsa Nielsen, grafískur hönn-
uður á Ennemm auglýsingastofunni.
Í tilkynningu frá Árna Snævarr, upplýsinga-
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna og einum af stjórn-
endum keppninnar, kemur fram að dómnefnd,
undir forystu auglýsingamannsins Jacques
Séguela, sem er einn af þekktustu auglýsinga-
mönnum Frakklands, velur sigurvegara úr hópi
þrjátíu efstu auglýsinganna sem eru frá fimm-
tán löndum og verða úrslit tilkynnt í október.
„Það er auðvitað sérstaklega ánægjulegt
fyrir mig sem Íslending sem vinn fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar, hve löndum mínum gengur
vel, en ég held að þetta sýni fyrst og fremst
styrk grafískrar hönnunar á Íslandi og hve
mjög málefnið brennur á Íslendingum,“ segir
Árni Snævarr.
Stefán Einarsson, hönnunarstjóri Hvíta
hússins, sigraði í sömu keppni Sameinuðu þjóð-
anna í Evrópu í fyrra en þá var þemað barátt-
an gegn fátækt í heiminum.
Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna
í Brussel stendur fyrir keppninni ásamt UN
Women og meðal annars með stuðningi Frétta-
blaðsins og Vísis.is.
- sv
Alþjóðleg auglýsingasamkeppni Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn konum:
Íslensk auglýsing komin í úrslit
PLEASE DON‘T TREAT US LIKE TRASH Auglýsing Elsu
Nielsen hjá Ennemm er komin í úrslit í auglýsinga-
keppni SÞ. MYND/SÞ
ENGLAND Seðlabanki Englands
fékk óvenjulega beiðni í síðustu
viku þegar Hugo Chávez, forseti
Venesúela, vildi fá heim gull-
forða lands
síns, eins fljótt
og unnt væri.
Það þýðir að
flytja þarf
99,2 tonn af
gullstöngum
frá London til
Caracas.
Chávez
hefur einnig
beðið um að fá heimsend 90 tonn
af gulli frá öðrum bönkum í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Í London reikna menn með að
fljúga þurfi 40 sinnum yfir Atl-
antshafið til þess að flytja gullið
til Caracas. Ekkert trygginga-
félag vill tryggja gullið verði
það sent allt í einu. - ibs
Forseti Venesúela:
100 tonn af
gulli yfir hafið
HUGO CHÁVEZ
FÉLAGSMÁL Íbúar Vestfjarða voru
rúmlega sex þúsund færri í fyrra
en þeir voru árið 1920. Íbúum í
dreifbýli á svæðinu fækkaði úr
rúmlega 8.500 í tæplega 700 á
sama tíma. Þetta kom fram á árs-
fundi Byggðastofnunar á mánu-
dag.
Stofnunin vinnur að verkefni
um stöðu byggðarlaga með mikla
fólksfækkun. Gefin verður út
skýrsla um verkefnið í haust en
sýnishorn úr henni var kynnt á
fundinum. Í skýrslunni kemur
einnig fram að á tímabilinu 1994
til 2009 varð yfir 20 prósenta
fækkun í 21 sveitarfélagi. Mesta
fækkunin varð í Árneshreppi,
meiri en 50 prósent. - þeb
Skýrsla um íbúaþróun:
Fækkað mikið
á Vestfjörðum
NEYTENDUR Neytendasamtökin
hvetja stjórnvöld til að fella hið
fyrsta niður tolla á innfluttar
landbúnaðarvörur sem ekki eru
framleiddar hér á landi. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
samtökunum.
Samtökin hafa lengi barist
fyrir því að innflutningstollar á
landbúnaðarafurðir verði lækk-
aðir og að lokum lagðir alfarið
af. Slíkt myndi efla samkeppni,
auka vöruúrval og að öllum lík-
indum lækka verð. „Það er eðli-
legt skref og ekki hægt að sjá að
nokkur geti sett sig upp á móti
slíkum breytingum,“ segir í til-
kynningu Neytendasamtakanna.
- sv
Neytendasamtökin mótmæla:
Stjórnvöld felli
niður tolla
STJÓRNSÝSLA Mannanafnanefnd
hefur samþykkt óskir um að
nafnið Mara og nafnið Ey verði
tekin á mannanafnaskrá.
Segir mannanafnanefnd um
bæði nöfnin, Möru og Ey, að þau
taki íslenskri fallbeygingu og
fylli að öðru leyti ákvæði laga um
mannanöfn. - gar
Ný nöfn viðurkennd:
Mega nefnast
Eyjar og Mörur
GENGIÐ 24.08.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,76
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,05 113,59
186,65 187,55
163,38 164,3
21,929 22,057
20,843 20,965
17,927 18,033
1,4766 1,4852
182,24 183,32
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is