Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2011 21
Tyrkir eru nú 79 milljónir að tölu. Tyrkland er þriðja
fjölmennasta ríki Evrópu á
eftir Rússlandi með sínar 139
milljónir manns og Þýzka-
landi með 81 milljón. Lífskjör
Tyrkja voru nálægt meðallagi
arabalanda 1960-1995, en eftir
það hófu Tyrkir sig til flugs
og státa nú af tvisvar sinnum
meiri kaupmætti þjóðartekna
en arabalöndin að jafnaði þrátt
fyrir skæða fjármálakreppu
2001. Tekjur á mann í Tyrk-
landi námu röskum fjórðungi af
meðaltali OECD-landa 1995 og
nema nú tæpum helmingi. Ekki
bara það: Tyrkir lifðu að jafn-
aði 19 árum skemur en Grikkir
1960, en nú er munurinn kom-
inn niður í sjö ár. Grískur hvít-
voðungur getur vænzt þess
að verða áttræður (strákar 77,
stelpur 83), tyrkneskur 73 ára
(strákar 71, stelpur 75). Ég rek
þessar tölur til að minna á, að
félagsvísar til dæmis um lang-
lífi eru órækur vottur um fram-
farir ekki síður en hagvísar á
borð við tekjur á mann.
Tyrkland deilir landamær-
um og langri sögu bæði með
Evrópu og Austurlöndum nær.
Istanbúl, stærsta borg lands-
ins með 15 milljónir íbúa, sumir
segja 20, liggur hálf í Evrópu,
hinn helmingurinn í Litlu-Asíu
handan við Bospórus-sundið.
Tyrkland sótti 1987 um aðild
að Evrópusambandinu (ESB).
Samningar hafa dregizt á lang-
inn vegna þrálátra efasemda
um ráðahaginn innan ESB. Þar
finnst sumum, að Tyrkir þurfi
að gera meira til að treysta
lýðræði og lyfta mannréttind-
um. Öðrum finnst saga Tyrk-
lands og Evrópu ekki vera nógu
samofin til að réttlæta aðild.
ESB-ríkin þurfa að komast að
sameiginlegri niðurstöðu um
aðildarumsókn Tyrklands. Þau
setja það ekki fyrir sig, að 99,8
prósent Tyrkja eru múslímar,
enda hefur stjórnmálum og trú-
arbrögðum verið haldið form-
lega aðskildum í Tyrklandi frá
stofnun nýs lýðveldis þar 1923.
Milljónir Tyrkja hafa lengi
búið og starfað í Þýzkalandi og
öðrum ESB-ríkjum við góðan
orðstír.
Langt í land
Sum ESB-ríki vilja gjarnan
hleypa Tyrkjum inn í sam-
bandið af utanríkispólitískum
ástæðum. Önnur aðildarríki ótt-
ast, að aðild Tyrklands að ESB
of snemma gæti kallað efna-
hagsleg og félagsleg vanda-
mál yfir sambandið og aðhyll-
ast heldur náin viðskiptatengsl
ESB við Tyrkland án fullrar
aðildar. Ef Grikkland með 11
milljónir íbúa gat komið sam-
bandinu í klípu, geta menn nú
spurt, hvað gæti Tyrkland þá
gert með sínar 79 milljónir? –
og það á opnum vinnumarkaði.
Tyrkland hefur búið við mestu
verðbólgu allra OECD-landa
frá 1960; Ísland er í öðru sæti.
Tyrkland hefur einnig búið við
afskipti hersins af stjórnmálum
annað veifið (herinn tók völdin
1960, 1971 og 1980), en nú virð-
ist ríkisstjórn landsins vera í
þann veginn að draga síðustu
vígtennurnar úr hernum. Enn
getur þó orðið alllöng bið á því,
að Tyrkland og ESB nái saman
um aðild Tyrkja að sambandinu.
Mörgum þykir þó brýna nauð-
syn bera til að hleypa Tyrkjum
að til að draga úr líkum á, að
gamla púðurtunnan á Balkan-
skaga springi í loft upp eina
ferðina enn með hörmulegum
afleiðingum annars staðar um
álfuna. Franski rithöfundur-
inn og lögfræðingurinn Mont-
esquieu vissi, hvað hann söng,
þegar hann sagði í riti sínu
Andi laganna (1748): Viðskipti
efla frið. Þetta er lykilhugsunin
að baki ESB og áframhaldandi
útvíkkun sambandsins.
Tyrkland var heimsveldi
á miðöldum, en veldi Tyrkja
leystist upp eftir fyrri heims-
styrjöldina 1914-1918, sem
kostaði 19 milljónir mannslífa
og mikla þjóðflutninga, meðal
annars milli Grikklands og
Tyrklands. Grikkir og Tyrkir
deila enn um Kýpur, en samt
gekk Kýpur í ESB 2004. Árin
1991-2001 voru háð fimm blóð-
ug stríð á Balkanskaga milli
þjóða, sem tilheyrðu Tyrklandi
á stórveldistímanum. Tvær
og hálf milljón manna misstu
heimili sín og 300 þúsund týndu
lífi í næsta nágrenni við ESB.
Á Balkanskaga búa nú 55 millj-
ónir manns í friði og spekt í tólf
eða þrettán löndum (Moldóva er
ýmist talin með eða ekki). Púð-
urtunnan virðist nú hafa verið
bleytt með viðskiptasamningum
þessara landa við ESB, samn-
ingum, sem löndin vona líkt og
ESB, að séu undanfari fullrar
aðildar. Fríverzlun er þaul-
reynd aðferð til að stilla til frið-
ar milli gamalla óvinaþjóða og
lyfta lífskjörum almennings.
Friður og umbætur
Eins og ég lýsti á þessum stað 1.
apríl í fyrra kæmi til greina að
bjóða Tyrkjum aðild að EFTA
og EES-samningnum, sem felur
í sér eins konar aukaaðild að
ESB án áskriftar að sameigin-
legri landbúnaðar- og sjávar-
útvegsstefnu ESB og evrunni.
EES-samningnum var frá byrj-
un ætlað að vera þjálfunarbúð-
ir og biðstofa fyrir lönd, sem
þurftu tíma til að ákveða, hvort
þau vildu ganga alla leið inn í
ESB. Með tilboði um aðild að
EES væri Tyrkjum veitt færi á
að tengjast Evrópu nánari bönd-
um til að efla frið og styrkja
umbótasinna í Tyrklandi og
veikja afturhaldsöflin, sem
horfa frekar til arabaheimsins
en Evrópu.
Fríverzlun er þaulreynd aðferð til að stilla
til friðar milli gamalla óvinaþjóða og
lyfta lífskjörum almennings.
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Tyrklandi fleygir fram ÚR ERLENDUM LEIÐURUMRöðin er komin að Assad
Einræðið í Sýrlandi er ekki síður
viðbjóðslegt en það líbýska en
það er erfiðara að brjóta það
á bak aftur. Þrýstingurinn gegn
stjórn Assads verður að halda
áfram og ekki má útiloka neinar
aðgerðir.
Lokaorrustan var háð við
aðalstöðvar Gaddafis í Trípólí
á þriðjudaginn en án vafa er
valdatíð einræðisherrans loksins
lokið. Vonandi kyndir það undir
arabíska vorinu á ný sem farið var
að kólna.
Hugrakkir mótmælendur í
Sýrlandi hafa brátt í hálft ár látið
ljós sitt skína gegn blóðugri stjórn
Bashar Assads. Örlög Gaddafis
hvetur þá; nú þegar hrópar mann-
fjöldinn „Nú er röðin komin að
þér, Bashar“. Því miður geta
atburðirnir í Líbýu orðið til þess
að Assad herðir aðgerðirnar gegn
sinni eigin þjóð. Hann hefur séð á
hverju harðstjóri á von.
wwww.dn.se
Úr leiðara Dagens Nyheter
Launalækkun mikilvæg skilaboð
Það má líta á það sem sterk
skilaboð að ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar skuli lækka eigin
mánaðarlaun um mörg hundruð
evrur. Í hagfræðilegu tilliti skiptir
launalækkunin auðvitað engu
máli. Hins vegar hafa slík sið-
ferðisleg skilaboð mikla þýðingu
þegar efnahagurinn versnar víða
um heim og kreppan nálgast
hraðar. Það væri auðvitað gott ef
leiðtogar viðskiptalífsins gerðu hið
sama en það er tæpast eitthvað
sem búast má við.
www.hbl.fi
Úr leiðara Hufvudstadsbladet
Básar húfa & sokkar
verð: 2.800 kr. (húfa)
verð: 2.200 kr. (sokkar)
Loki jakki
verð: 10.200 kr.
Frigg nærföt úr
Power Stretch®
verð: 7.900 kr. (peysa)
verð: 6.900 kr. (buxur)
Valhöll nærföt úr 100%
Merino ull (kláðafrí)
peysa: 3.900 - 5.900 kr.
buxur: 3.300 - 4.700 kr.
Í Leikskóla
er gaman
Klæddu þig velwww.66north.is
Höfuðborgarsvæðið: Bankastræti 9, Faxafen 12,
Kringlan, Smáralind og Miðhraun 11 Akureyri: Glerártorg
Mímir pollagalli (jakki & buxur)
verð: 9.500 kr./ settið
Fóðruð Dunlop stígvél
verð: 6.800 kr. (22-28)
verð: 7.800 kr. (29-37)
Væntanleg
í rauðu