Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 21

Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 21
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2011 21 Tyrkir eru nú 79 milljónir að tölu. Tyrkland er þriðja fjölmennasta ríki Evrópu á eftir Rússlandi með sínar 139 milljónir manns og Þýzka- landi með 81 milljón. Lífskjör Tyrkja voru nálægt meðallagi arabalanda 1960-1995, en eftir það hófu Tyrkir sig til flugs og státa nú af tvisvar sinnum meiri kaupmætti þjóðartekna en arabalöndin að jafnaði þrátt fyrir skæða fjármálakreppu 2001. Tekjur á mann í Tyrk- landi námu röskum fjórðungi af meðaltali OECD-landa 1995 og nema nú tæpum helmingi. Ekki bara það: Tyrkir lifðu að jafn- aði 19 árum skemur en Grikkir 1960, en nú er munurinn kom- inn niður í sjö ár. Grískur hvít- voðungur getur vænzt þess að verða áttræður (strákar 77, stelpur 83), tyrkneskur 73 ára (strákar 71, stelpur 75). Ég rek þessar tölur til að minna á, að félagsvísar til dæmis um lang- lífi eru órækur vottur um fram- farir ekki síður en hagvísar á borð við tekjur á mann. Tyrkland deilir landamær- um og langri sögu bæði með Evrópu og Austurlöndum nær. Istanbúl, stærsta borg lands- ins með 15 milljónir íbúa, sumir segja 20, liggur hálf í Evrópu, hinn helmingurinn í Litlu-Asíu handan við Bospórus-sundið. Tyrkland sótti 1987 um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Samningar hafa dregizt á lang- inn vegna þrálátra efasemda um ráðahaginn innan ESB. Þar finnst sumum, að Tyrkir þurfi að gera meira til að treysta lýðræði og lyfta mannréttind- um. Öðrum finnst saga Tyrk- lands og Evrópu ekki vera nógu samofin til að réttlæta aðild. ESB-ríkin þurfa að komast að sameiginlegri niðurstöðu um aðildarumsókn Tyrklands. Þau setja það ekki fyrir sig, að 99,8 prósent Tyrkja eru múslímar, enda hefur stjórnmálum og trú- arbrögðum verið haldið form- lega aðskildum í Tyrklandi frá stofnun nýs lýðveldis þar 1923. Milljónir Tyrkja hafa lengi búið og starfað í Þýzkalandi og öðrum ESB-ríkjum við góðan orðstír. Langt í land Sum ESB-ríki vilja gjarnan hleypa Tyrkjum inn í sam- bandið af utanríkispólitískum ástæðum. Önnur aðildarríki ótt- ast, að aðild Tyrklands að ESB of snemma gæti kallað efna- hagsleg og félagsleg vanda- mál yfir sambandið og aðhyll- ast heldur náin viðskiptatengsl ESB við Tyrkland án fullrar aðildar. Ef Grikkland með 11 milljónir íbúa gat komið sam- bandinu í klípu, geta menn nú spurt, hvað gæti Tyrkland þá gert með sínar 79 milljónir? – og það á opnum vinnumarkaði. Tyrkland hefur búið við mestu verðbólgu allra OECD-landa frá 1960; Ísland er í öðru sæti. Tyrkland hefur einnig búið við afskipti hersins af stjórnmálum annað veifið (herinn tók völdin 1960, 1971 og 1980), en nú virð- ist ríkisstjórn landsins vera í þann veginn að draga síðustu vígtennurnar úr hernum. Enn getur þó orðið alllöng bið á því, að Tyrkland og ESB nái saman um aðild Tyrkja að sambandinu. Mörgum þykir þó brýna nauð- syn bera til að hleypa Tyrkjum að til að draga úr líkum á, að gamla púðurtunnan á Balkan- skaga springi í loft upp eina ferðina enn með hörmulegum afleiðingum annars staðar um álfuna. Franski rithöfundur- inn og lögfræðingurinn Mont- esquieu vissi, hvað hann söng, þegar hann sagði í riti sínu Andi laganna (1748): Viðskipti efla frið. Þetta er lykilhugsunin að baki ESB og áframhaldandi útvíkkun sambandsins. Tyrkland var heimsveldi á miðöldum, en veldi Tyrkja leystist upp eftir fyrri heims- styrjöldina 1914-1918, sem kostaði 19 milljónir mannslífa og mikla þjóðflutninga, meðal annars milli Grikklands og Tyrklands. Grikkir og Tyrkir deila enn um Kýpur, en samt gekk Kýpur í ESB 2004. Árin 1991-2001 voru háð fimm blóð- ug stríð á Balkanskaga milli þjóða, sem tilheyrðu Tyrklandi á stórveldistímanum. Tvær og hálf milljón manna misstu heimili sín og 300 þúsund týndu lífi í næsta nágrenni við ESB. Á Balkanskaga búa nú 55 millj- ónir manns í friði og spekt í tólf eða þrettán löndum (Moldóva er ýmist talin með eða ekki). Púð- urtunnan virðist nú hafa verið bleytt með viðskiptasamningum þessara landa við ESB, samn- ingum, sem löndin vona líkt og ESB, að séu undanfari fullrar aðildar. Fríverzlun er þaul- reynd aðferð til að stilla til frið- ar milli gamalla óvinaþjóða og lyfta lífskjörum almennings. Friður og umbætur Eins og ég lýsti á þessum stað 1. apríl í fyrra kæmi til greina að bjóða Tyrkjum aðild að EFTA og EES-samningnum, sem felur í sér eins konar aukaaðild að ESB án áskriftar að sameigin- legri landbúnaðar- og sjávar- útvegsstefnu ESB og evrunni. EES-samningnum var frá byrj- un ætlað að vera þjálfunarbúð- ir og biðstofa fyrir lönd, sem þurftu tíma til að ákveða, hvort þau vildu ganga alla leið inn í ESB. Með tilboði um aðild að EES væri Tyrkjum veitt færi á að tengjast Evrópu nánari bönd- um til að efla frið og styrkja umbótasinna í Tyrklandi og veikja afturhaldsöflin, sem horfa frekar til arabaheimsins en Evrópu. Fríverzlun er þaulreynd aðferð til að stilla til friðar milli gamalla óvinaþjóða og lyfta lífskjörum almennings. Í DAG Þorvaldur Gylfason prófessor Tyrklandi fleygir fram ÚR ERLENDUM LEIÐURUMRöðin er komin að Assad Einræðið í Sýrlandi er ekki síður viðbjóðslegt en það líbýska en það er erfiðara að brjóta það á bak aftur. Þrýstingurinn gegn stjórn Assads verður að halda áfram og ekki má útiloka neinar aðgerðir. Lokaorrustan var háð við aðalstöðvar Gaddafis í Trípólí á þriðjudaginn en án vafa er valdatíð einræðisherrans loksins lokið. Vonandi kyndir það undir arabíska vorinu á ný sem farið var að kólna. Hugrakkir mótmælendur í Sýrlandi hafa brátt í hálft ár látið ljós sitt skína gegn blóðugri stjórn Bashar Assads. Örlög Gaddafis hvetur þá; nú þegar hrópar mann- fjöldinn „Nú er röðin komin að þér, Bashar“. Því miður geta atburðirnir í Líbýu orðið til þess að Assad herðir aðgerðirnar gegn sinni eigin þjóð. Hann hefur séð á hverju harðstjóri á von. wwww.dn.se Úr leiðara Dagens Nyheter Launalækkun mikilvæg skilaboð Það má líta á það sem sterk skilaboð að ráðherrar ríkis- stjórnarinnar skuli lækka eigin mánaðarlaun um mörg hundruð evrur. Í hagfræðilegu tilliti skiptir launalækkunin auðvitað engu máli. Hins vegar hafa slík sið- ferðisleg skilaboð mikla þýðingu þegar efnahagurinn versnar víða um heim og kreppan nálgast hraðar. Það væri auðvitað gott ef leiðtogar viðskiptalífsins gerðu hið sama en það er tæpast eitthvað sem búast má við. www.hbl.fi Úr leiðara Hufvudstadsbladet Básar húfa & sokkar verð: 2.800 kr. (húfa) verð: 2.200 kr. (sokkar) Loki jakki verð: 10.200 kr. Frigg nærföt úr Power Stretch® verð: 7.900 kr. (peysa) verð: 6.900 kr. (buxur) Valhöll nærföt úr 100% Merino ull (kláðafrí) peysa: 3.900 - 5.900 kr. buxur: 3.300 - 4.700 kr. Í Leikskóla er gaman Klæddu þig velwww.66north.is Höfuðborgarsvæðið: Bankastræti 9, Faxafen 12, Kringlan, Smáralind og Miðhraun 11 Akureyri: Glerártorg Mímir pollagalli (jakki & buxur) verð: 9.500 kr./ settið Fóðruð Dunlop stígvél verð: 6.800 kr. (22-28) verð: 7.800 kr. (29-37) Væntanleg í rauðu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.